InnlentNunnur báðu til guðs um fönn og endaðu í snjóboltastríði við prestinn – MYNDBAND Það var heldur betur stuð hjá nunnum í kaþólskri kirkju í Metairie í Louisiana í Bandaríkjunum en þær nutu sín í botn í snjóboltastríði við prestinn í kirkjunni. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs báðu þær til guðs um snjókomu og báðu söfnunarmeðlimi kirkjunnar að gera slíkt hið sama. „Rétt fyrir jólafríið, þegar það var 24°C hiti og rakt, var talað um að...
InnlentÍslenskur helfararsagnfræðingur varar við fasisma: „Aldrei verið jafn mikilvægt að þekkja söguna“ Íslenskur helfararsagnfræðingur varar við því að fasismi sé að rísa aftur í heiminum sem muni hafa hræðilegar afleiðingar sé ekkert gert. Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir, helfararsagnfræðingur og sérfræðingur hjá Reykjavíkurborg, skrifaði Facebook-færslu í gær í tilefni þess að 80 ár voru þá liðin frá frelsun útrýmingabúðanna Auschwitz en þar segir hún að það hafi aldrei verið eins mikilvægt og nú að...
InnlentÓhugnanleg skilaboð karlmanns til 15 ára drengs: „Langar að dópa þig upp“ Óhugnanleg skilaboð fullorðins karlmanns til 15 ára drengs voru birt í Facebook-hópnum Stöndum Saman – Verndum Börnin, en þar eru um 34 þúsund meðlimir. Karlmaðurinn er í skilaboðunum að klæmast við drenginn og bjóða honum kynlíf og eiturlyf. Samkvæmt frétt Nútímans um málið er drengurinn sagður vera fæddur 2009 og hafa verið 15 ára þegar skjáskotin af skilaboðunum voru tekin....
InnlentSunneva Einars setur gullfallegt heimili sitt á sölu Sunneva Einarsdóttir, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í handbolta, hefur ákveðið að setja heimili sitt á sölu en um er að ræða afar bjarta og vel skipulagða hæð í Safamýri. Skipting eignarinnar er þannig að íbúðin sjálf er 123,2 fm og bílskúrinn 27,7 fm. Sunneva býr þar með eiginmanni sínum Þórði Rafni Guðmundssyni, pípara og fyrrverandi handboltamanni, og þrem dætrum þeirra hjóna. Stutt...
InnlentSveinn Andri stríðir Áslaugu Örnu: „Hún hlýtur að vera sjálfri sér samkvæm“ Sveinn Andri Sveinsson skýtur föstum skotum á Sjálfstæðisflokkinn í nýrri Facebook-færslu. Stjörnulögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson stríðir Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur sem fór mikinn í fjölmiðlum þegar í ljós kom að Flokkur fólksins hafði þegið himinháa styrki án þess að vera löglega skráður sem stjórnmálaflokkur. Nú er hins vegar komið í ljós að fleiri flokkar, og þar með talinn Sjálfstæðisflokkurinn, höfðu einnig...
InnlentGísli Bragi er fallinn frá Gísli Bragi Hjartarson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, er fallinn en hann var 85 ára gamall. Akureyri.net greindi frá andláti hans. Gísli fæddist á Akureyri árið 1939 og voru foreldrar hans Lilja Sigurðardóttir og Hjörtur Gísli Gíslason og áttu þau fimm börn alls. Gísli var mikill íþróttagarpur og keppti á skíðum og í frjálsum íþróttum og þá stundaði hann golf áratugum...
InnlentInga Sæland glímir við víðtækt vantraust – „Það dugar ekki að láta, eins og þetta sé smotterí“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, glímir við víðtækt vantraust i kjölfar þess að hafa ólöglega þegið styrki fyrir flokk sinn að upphæð 240 milljónir króna. Inga harðneitar að endurgreiða styrkina og svarar ásökunum með árásum á fjölmiðla sem hún telur flytja falsfréttir. Til viðbótar styrkjamálinu er Inga sökuð um að hafa í hótunum við skólameistara Borgarholtsskóla og vísa til áhrifa...
Innlent„Punisher“ töflum smyglað til landsins – Rauðbleikar og sterkar Í tilkynningu frá lögreglu til fjölmiðla greinir hún frá töflum sem smyglað hefur verið til landsins sem hún telur að hafi mögulega leitt til andláts. „Nýlega var lagt hald á MDMA (ecstasy) töflur á leið til landsins en við rannsókn á töflunum kom í ljós að þær innihéldu tvöfalt meira magn MDMA en meðaltalsstyrkur haldlagðra efna hefur verið. Þessar töflur...
InnlentKrefjast fjögurra milljóna króna vegna umskurðar barns á Akureyri Kona sem er sökuð um að hafa fengið óþekkta konu um að umskera son sinn í heimahúsi á Akureyri árið 2022 þarf að greiða fjórar milljónir í miskabætur ef héraðsdómur hlustar á saksóknara í málinu. Eftir að umskurðurinnn var framkvæmdur þurfti að flytja drenginn, sem var þá 17 mánaða gamall, á sjúkrahús vegna blæðingar. Þá þurfti að endurumskera hann til...
InnlentGlerhús Sjálfstæðisflokksins mölbrotnar – Þáði 167 milljónir rangt skráður Það hefur stundum verið sagt að fólk eigi ekki að kasta grjóti úr glerhúsi en það virðist vera tilfellið þegar kemur að Sjálfstæðisflokknum ef marka má frétt Vísis um flokkinn í dag. Það er greint frá því að flokkurinn hafi þegið 167 milljónir króna þrátt fyrir að hann hafi verið skráður sem félagasamtök en ekki sem stjórnmálaflokkur en skráningu hans...
InnlentTafir urðu á Reykjavíkurflugvelli þegar kennsluflugvél hlekktist á í lendingu Óhapp varð þegar kennsluflugvél kom inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Var önnur flugbrautin lokuð á meðan rannsókn stóð yfir. Samkvæmt RÚV hlekktist kennsluflugvél á í lendingu á Reykjavíkurflugvelli í dag. Engin meiðsl urðu á fólki en nokkrar tafir urðu á flugi um flugvöllinn á meðan rannsóknarnefnd samgönguslysa kannaði vettvanginn. Af þeim sökum var önnur flugbrautin lokuð á meðan. Búið er...
InnlentBjörn Leví rýnir í nýnasistakveðju Elon Musk: „Af hverju neitar hann að segja það bara beint út?“ Björn Leví Gunnarsson segir greinilegt að kveðja Elon Musk hafi verið nýnasistakveðja og færir fyrir því rök í nýrri Facebook-færslu. „Það er nefnilega nauðsynlegt að kalla hlutina réttu nöfnunum. Þetta er fasista/nasistakveðja. Það sem ef ekkert hægt að fullyrða um er hvort þetta var meint sem slík kveðja.“ Þannig hefst Facebook-færsla fyrrverandi þingmanns Pírata, Björns Levís Gunnarssonar. Í færslunni færir...