Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Björn Leví rýnir í nýnasistakveðju Elon Musk: „Af hverju neitar hann að segja það bara beint út?“

Björn Leví rýnir í nýnasistakveðju Elon Musk: „Af hverju neitar hann að segja það bara beint út?“
Björn Leví Gunn­ars­son Fyrrum þing­maður Pírata.

Björn Leví Gunn­ars­son segir greini­legt að kveðja Elon Musk hafi verið nýnas­ista­kveðja og færir fyrir því rök í nýrri Facebook-færslu.

„Það er nefni­lega nauð­syn­legt að kalla hlut­ina réttu nöfn­unum. Þetta _er_ fas­ista/nas­ista­kveðja. Það sem ef ekk­ert hægt að full­yrða um er hvort þetta var meint sem slík kveðja.“ Þannig hefst Facebook-færsla fyrr­ver­andi þing­manns Pírata, Björns Levís Gunn­ars­sonar. Í færsl­unni færir hann rök fyrir þeirri stað­hæf­ingu að Elon Musk hafi, í inn­setn­ing­ar­há­tíð Donalds Trump, verið að gefa nas­ista­kveðju er hann sló sér á bringu og útrétti hönd­ina og það tvisvar sinnum. Björn Leví hélt áfram:

„Hér er hægt að skoða nokkur atriði í þessu sam­hengi. Hópar nýnas­ista þekktu þetta sem kveðju til sín. Ansi margir hafa samt reynt að verja þetta lát­bragð Musk með því að bera saman ljós­myndir af ýmsu öðru fólki sem virð­ist vera að gera sama lát­bragðið, en í mynd­bandi sést aug­ljós­lega að lát­bragðið er öðru­vísi. Enda hægt að veifa hendi á alls konar hátt sem getur litið út fyrir að vera fas­ista­kveðja í einum ramma þeirrar kveðju (https://www.reuters.com/…/image-shows-aoc-hugging-us…/). Ég veit ekki til þess að nýnas­istar hafi tekið neina af þeim kveðjum til sín heldur. Þannig að þar er bara um klass­íska afvega­leið­ingu að ræða.“

Og enn heldur hann áfram:

„Leiðum þá hug­ann að þessu atviki og horfum á það bara út frá því sem gerð­ist. Þarna er tví­mæla­laust gerð fas­ista­kveðja (hver svo sem mein­ingin þar á bak við var) með orð­unum að hjarta hans færi til áheyr­enda. Myndband frá 2023 sýnir Musk nota sömu orð en annað lát­bragð (https://www.instagram.com/reel/DFK9bBhJWes/?igsh=MWxuZjN6bTA0cm04Yg==) – þannig að þetta er ekk­ert ný kveðja. Lát­bragðið með kveðj­unni er hins vegar nýtt.“

Því næst beinir Björn Leví orðum sínum að þeim sem verja kveðj­una umdeildu:

„Ok, hvar erum við þá stödd með þetta. Ef allir sem benda á önnur dæmi um svona kveðju þekkja þær kveðjur sem fas­ista­legar, en ekki þessa kveðju – þá erum við á dálítið spes stað. Ég veit að til­gangur þess sam­an­burðar er að spyrja fólk af hverju það gagn­rýndi ekki ein­hverja aðra fyrir svipað lát­bragð, að láta eins og hér sé um hræsni að ræða. En það kald­hæðn­is­lega við það er að í því felst sam­þykki á því að lík­indi kveðju Musk við fas­ista­kveðju séu það mikil að það verði að pakka í vörn.“

Björn Leví bendir einnig á það í færsl­unni að Musk hafi aldrei neitað því opin­ber­lega að kveðjan hafi ekki verið nýnasta­kveðja.

„En pælum þá í því ein­falda. Hættum að flækja hlut­ina alltaf. Ef þetta var ekki meint sem nýnas­ista­kveðja (já, það eru þrjú orð notuð hérna um þetta, nas­ista/fas­ista/nýnas­ista – nýnas­ista er lík­lega rétt­ast en hin orðin eru upp­runa­lega til­vís­unin fyrir sögu­legt sam­hengi) … ef þetta var ekki meint svo­leiðis, af hverju er þá svona erfitt að segja það bara? Allir aðrir virð­ast geta sagt fyrir Musk að hann hafi ekki gert nýnas­ista­kveðju (jú, aug­ljós­lega) eða ekki meint þetta sem slíka kveðju (við vitum það ekki af því að hann neitar að segja það beint út).“

Að lokum spyr Píratinn af hverju Musk geti ekki svarað spurn­ing­unni um kveðj­una beint en hann segir ástæð­una vera þá að Trump treysti á stuðn­ing nýnas­ista.

„Af hverju neitar hann að segja það bara beint út? Af hverju getur hann ekki svarað þess­ari spurn­ingu beint? Af hverju er svarið bara póli­tískt óbeint svar?

Jú, af því að Trump stólar á stuðn­ing þess­ara hópa. Þetta voru hóp­arnir sem hann hrós­aði eftir 6. jan­úar. Sagðist elska (https://youtu.be/zJ2P7XHHYjw?si=_9BJCs-92yU1VXLm).

Þetta er póli­tíkin í hnot­skurn. Þetta er og verður nýnas­ista­kveðja af því að þannig lítur þetta út þangað til Musk segir það í mjög skýru og beinu máli að þetta sé ekki slík kveðja. Enginn annar hefur átt erfitt með að neita fyrir slíka ásökun í beinum orðum.“

Kveðjan umdeilda:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina