InnlentOddvitar Flokks fólksins kynntir til leiks – Tómasi og Jakobi sparkað Nú er ljóst að þeir Tómas A. Tómasson og Jakob Frímann Magnússon verða ekki oddvitar áfram í komandi þingkosningum fyrir hönd Flokks fólksins en flokkurinn kynnti í dag nýja oddvita en Tómas og Jakob eru báðir þingmenn. Í yfirlýsingu frá Tómasi sagði hann frá því að honum hafi borist símtal í vikunni þar sem honum var greint frá því að...
InnlentÖssur segir Ingu valdspilltan leiðtoga: „Alltaf með túlann fullan af lýðræðishjali“ Össur Skarphéðinsson lætur Ingu Sæland fá það óþvegið í nýrri Facebook-færslu þar sem hann talar um brottrekstur Jakobs Frímanns Magnússonar og Tómasar A. Tómassonar úr Flokki fólksins. Færsla hins fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar byrjar á eftirtöldum orðum: „Valdspilltur leiðtogi Inga Sæland talar sig móða um skort á lýðræði – nú síðast þegar starfsstjórn var í myndun – en á sama tíma...
InnlentSigurjón Þórðarson útilokar ekki oddvitasæti fyrir Flokk fólksins: „Er klár í hvað sem er“ Sigurjón Þórðarson útilokar ekki að hann taki oddvitasæti Fólks fólksins í Norðausturkjördæmi, nú þegar Jakob Frímann Magnússon hefur verið settur út af sakramentinu. Heilbrigðisfulltrúinn og varaþingmaður Flokk fólksins í Norðvesturkjördæmi, Sigurjón Þórðarson segist í samtali við Mannlíf vera til í að bjóða sig fram í hvaða sæti sem honum býðst fyrir komandi kosningar. „Ég er til í að vera í...
InnlentDóra Björt var lögð í einelti af kennurum: „Við megum ekki skera niður okkar fegurstu blóm“ Dóra Björt Guðjónsdóttir var lögð í einelti af kennurum á sínum yngri árum. Um þetta opnaði hún í Facebook-færslu rétt í þessu. Pírataframbjóðandinn Dóra Björt Guðjónsdóttir segir frá því í nýrri Facebook-færslu að hún hafi hlotið þann heiður að ávarpa ráðstefnu ADHD-samtakanna nýlega og segir frá því í leiðinni að hún sjálf sé með ADHD. „Ég hlaut þann heiður að...
InnlentHvern vilt þú sjá sem næsta forsætisráðherra? Alþingiskosningar eru á næsta leiti og ekki ólíklegt að þjóðin fái nýjan forsætisráðherra en alls hafa ellefu flokkar gefið út að þeir muni bjóða fram lista sína og keppast um atkvæði almennings. Venjan er sú að formenn einhvers stjórnmálaflokksins taki við forsætisráðherra embættinu og vill Mannlíf því spyrja lesendur sína um besta kostinn. Rétt er þó að taka fram að...
InnlentGrímur Grímsson íhugar framboð – Ákveður sig í dag Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er að íhuga framboð fyrir Viðreisn. Grímur staðfestir við RÚV að hann sé að íhuga að bjóða sig fram fyrir Viðreisn í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu í komandi Alþingiskosningum. Segist hann hafa sagt yfirmönnum sínum frá málinu en að ákvörðun um framboð verði líklegast tekin í dag. Viðreisn í Reykjavík ætli...
InnlentKlofin stjórn RÚV enduræður Stefán í skugga símamálsins – Varaformaður ósáttur með að auglýsa ekki Stefán Eiríksson útvarpsstjóri var endurráðinn með minnsta mögulega meirihluta stjórnar Ríkisútvarpsins. Fjórir af níu stjórnarmönnum lýstu sig andvíga endurráðningu hans og vildu auglýsa en fimm vildu ganga starx frá endurráðningu til fimm ára. Stjórn var því þverklofin. Stefán er umdeildur. Yfir starfi hans hvílir skuggi símamáls Páls Steingrímssonar skipstjóra. Páll Steingrímsson og Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks. Myndin er samsett...
InnlentDrukkinn ökumaður á hvolfi Drukkinn ökumaður brást illa við afskiptum lögreglu. Hann var stöðvaður í austurborginni en reyndi að komast undan hrammi laganna og lagði á flótta. Þetta fór illa því ökumaðurinn endaði utan vegar og velti bifreið sinni. Blessunarlega urðu ekki slys á ökumanni eða farþegum. Maðurinn var handtekinn og hann vistaður í fangageymslu. Hún mun svara til saka með morgninum. Maður í...
InnlentArna Jónsdóttir vill leiða Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi: „Nú er kominn tími á breytingar“ Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar gefur kost á sér til að leiða lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum í lok nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni. Arna tók við starfi bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar sumarið 2022 en hún hefur einnig setið nokkrum sinnum sem varaþingmaður fyrir Samfylkinguna. Í tilkynningunni segir meðal annars: „Ég hef ákveðið að gefa kost á mér...
InnlentFaðir Kolfinnu úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald Sigurður Fannar Þórsson, sem grunaður er um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni, Kolfinnu Eldeyju að bana um miðjan september, var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 14. nóvember. Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurðinn við Vísi. Kolfinna Eldey fannst látin við Krýsuvíkurveg 15. september síðastliðinn eftir að faðir hennar hafði sjálfur tilkynnt lögreglu um...
InnlentFimmtán ára drengur týndur í tvo sólarhringa – Gaf sig fram við lögreglu blautur og kaldur Fimmtán ára drengur strauk að heiman 20 mínútum eftir að hann hafði verið fluttur þangað frá meðferðarheimilinu Stuðla, í kjölfar brunans. Hans er enn leitað. Mbl.is segir frá því að fimmtán ára drengur, sem hafði verið vistaður á meðferðardeild Stuðla síðan í ágúst, hafi verið keyrður heim til foreldra sinna eftir brunann á Stuðlum á laugardagsmorgun. Foreldrarnir fengu einungis korters...
InnlentSegir andlát piltsins á Stuðlum vitnisburð um „áhugaleysi stjórnvalda í málefnum barna á Íslandi“ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir segir harmdauða unglingspiltsins á Stuðlum á dögunum vera „enn einn vitnisburðurinn um lífshættulegt afskipta og áhugaleysi stjórnvalda í málefnum barna á Íslandi.“ Leikkonan hreinskilna, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir gerir andlát unglingspiltsins sem lést í bruna á Stuðlum, að umræðuefni í nýrri Facebook-færslu en þar kallar hún Stuðla „barnfangelsi“ og skýtur fast á stjórnvöld. „Um hvað ætlum við að...