InnlentLýðræðisflokkurinn kynnir frambjóðendur sína til leiks – MYNDBAND Lýðræðisflokkurinn hefur birt nöfn þeirra sem verða efstir á lista flokksins í komandi Alþingiskosningum en flokkurinn stefnir á að bjóða fram í öllum kjördæmum. Formaður flokksins er Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og lögmaður, en Arnar fékk rúm 5% atkvæða í forsetakosningum sem fóru fram í sumar. Suðvesturkjördæmi: 1. Arnar Þór Jónsson, lögmaður 2. Hrafnhildur Sigurðardóttir, kennari 3. Magnús Gehringer,...
InnlentBorgarstjórinn misstígur sig enn og aftur – Fyrst ævareiðir kennarar og nú Grafarvogsbúar Íbúar í Grafarvogi eru ævareiðir vegna ummæla Einars Þorsteinssonar borgarstjóra sem féllu í Bítinu á Bylgjunni fyrr í vikunni. Þar gerði hann lítið úr sjónarmiðum forsvarsmanna íbúasamtaka svæðisins sem eru á móti þeirri þéttingu byggðar sem boðuð í hverfinu og talaði niður til þeirra. Einar sagði óánægju um uppbyggingu í hverfinu aðallega koma frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks og vísaði til formanns...
InnlentÞrír búðarþjófar og hávaðaseggur Nóttin var að mestu án átaka hjá lögreglunni og smærri afbrot einkennandi. Búðarþjófar voru áberandi. Þrír ökumenn voru stöðvaðir við akstur þar sem þeir voru að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. Símtölin voru fremur dýrkeypt þar sem þeir þurfa að greiða sekt sem nemur í hverju tilviki 40 þúsund krónum. Búðarþjófar náðust í tveimur verslunum í...
InnlentHáskóli Íslands svarar engu um hegðun Hannesar: „Skýrt dæmi um baráttu milli góðs og ills“ Á mánudaginn í síðustu viku var haldinn fyrirlestur í Þjóðminjasafni Íslands en sá sem talaði á fyrirlestrinum er Ely Lassman. Hann er fyrrverandi hermaður í ísraelska hernum. Fyrirlesturinn bar nafnið Ísrael, Arabaríkin og Vesturveldin. Fyrirlesturinn var lokaður almenningi en á honum útskýrði Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, að það hafi verið gert af öryggisástæðum. Aflýsa þurfti fyrirlestri...
InnlentHjólar í síðustu ríkisstjórn: „Þetta hafa VG afrekað en þykjast nú vera vinstriflokkur aftur“ Illugi Jökulsson rífur flokka síðustu ríkisstjórnar Íslands í sig í nýlegri Facebook-færslu. Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson birti skjáskot af frétt Vísis þar sem framkvæmdarstjóri Viðskiptaráðs talaði um einkarekna skóla sem lausn í skólamálum hér á landi. Í texta sem Illugi skrifar við myndina hjólar hann í Sjálfstæðisflokkinn, Vinstri græna og Framsókn. Illugi skrifar: „Þarna er mergurinn málsins. Þetta hafa ríkisstjórnir Katrínar...
InnlentFlestir kjósendur vilja Sigurð Inga sem næsta forsætisráðherra Íslands Alþingiskosningar eru á næsta leiti og ekki ólíklegt að þjóðin fái nýjan forsætisráðherra en alls hafa ellefu flokkar gefið út að þeir muni bjóða fram lista sína og keppast um atkvæði almennings. Venjan er sú að formenn einhvers stjórnmálaflokksins taki við forsætisráðherra embættinu og spurði Mannlíf lesendur sína um besta kostinn í gær Rétt er þó að taka fram að...
InnlentKennaraverkfallDómur hefur fallið – Verkfallsboðun kennara lögleg Verkfallsboðun kennara er lögleg, samkvæmt niðurstöðu Félagsdóms. Kennarasamband Íslands var sýknað í morgun í Félagsdómi af kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga er taldi verkfallsboðun kennara ólöglega. Vísir segir frá málinu. SÍS stefndi boðun verkfalls í fjöldi skóla vegna þess að engin kröfugerð lág fyrir í kjaradeilunni en formaður Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, segir stefnuna ekki hafa áhrif á boðuð verkföll...
InnlentUppnám á leikskólanum Mánagarði sem var lokað í gær – Börn á bráðadeild með hættulega Ecoli-sýkingu Börn á leikskólanum Mánagarði við Eggertsgötu hafa greinst með Ecoli-smit. Staðfest er að fjögur börn hafa greinst og grunur leikur á að níu börn hafi smitast. Þau voru send á bráðadeild Landspítalans til greiningar. Uppnám var á leikskólanum sem hefur verið lokað vegna þessa ástands. Ekki er vitað til þess að neitt barnanna hafi veikst alvarlega, sem getur verið fylgifiskur...
InnlentÍvar þakkar guði lífsbjörgina: „Ég byrjaði 11 ára að nota kannabis og drekka“ Ívar Örn Katrínarson gekk um tíma undir nafninu Dr. Mister en hann var meðlimur hljómsveitarinnar Dr. Mister & Mister Handsome sem gerði garðinn frægan á Ísland árið 2006 þegar sveitin gaf út plötuna Dirty Slutty Hooker Money. Með honum í sveitinni var Guðni Rúnar Gunnarsson og nutu lögin Kokaloca og Is It Love? gríðarlegra vinsælda. Ívar gaf nýlega út bókina...
InnlentSnorri Másson átti trúnaðarfund með forsætisráðherra: „Okkur á milli? Mín og Bjarna? Bara samtal“ Bjarni Benediktsson átti trúnaðarfund með Snorri Mássyni í stjórnarráðinu í síðustu viku. Fram kemur í viðtali Stefáns E. Stefánssonar siðfræðings í Spursmálum í dag, að Snorri Másson, fjölmiðlamaður og frambjóðandi Miðflokksins í komandi kosningum, hafi átt trúnaðarfund með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í stjórnarráðinu í síðustu viku. Snorri var sýnilega vandræðalegur þegar Stefán bar upp spurninguna „hvenær hittirðu Bjarna Benediktsson síðast?“...
InnlentKennaraverkfallJón Gnarr tekur upp hanskann fyrir kennara: „Gætu veikindi vegna myglu skýrt þetta?“ Jón Gnarr tekur upp hanskann fyrir kennara og kemur með áhugaverðan punkt varðandi aukin veikindi í stéttinni. Grínistinn og frambjóðandi Viðreisnar í komandi Alþingiskosningum, Jón Gnarr, skrifaði Facebook-færslu í gær en með færslunni birtir hann skjáskot af frétt mbl.is sem fjallaði um úttekt Viðskiptaráðs á skólamálum. Þar kemst Viðskiptaráð meðal annars að þeirri niðurstöðu a veikindahlutfall kennara vera almennt mun...
InnlentSanna lenti í „hakkavél“ Stefáns siðfræðings: „Mér varð strax ljóst að þetta yrði frekar aggresíft“ Sanna Magdalena Mörtudóttir segist hafa lent í „hakkavél“ Stefáns E. Stefánssonar í Spursmálum á mbl.is, þegar hann spurði hana út í breytingar á skattalögum undanfarna áratugi. Oddviti Sósíalista í Reykjavík suður, Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifaði Facebook-færslu eftir hádegi í dag þar sem hún segist hafa farið í „aggresíft“ viðtal hjá siðfræðingnum Stefáni E. Stefánssyni í Spursmálum þar sem hún var...