InnlentSmituð Mánagarðsbörn hugsanlega á fjórða tug: „Maður er í losti“ Ellefu börn til viðbótar hafa sýnt einkenni þess að hafa sýkst af E.coli á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku en blóðprufur úr þeim verða greindar í dag. Fram að því höfðu alls 27 börn verið greind með sýkingu. Í heildina hafa þá 38 börn sýnt einkenni en RÚV greindi fyrst frá málinu. Tvö börn eru ennþá á gjörgæslu og alvarlega...
InnlentValgeir sniðgenginn: „Í mínum huga á orðið heiður ekki heima hér heldur lítilsvirðing“ Tónlistarmaðurinn Valgeir Guðjónsson er eigi sáttur við að honum sé ekki boðið að taka þátt í heiðurstónleikum fyrir hina goðsagnakenndu hljómsveit Spilverki þjóðanna; hann tjáir sig um málið á Facebook-síðu sinni. „Heiður eða lítilsvirðing Kæru vinir Spilverks þjóðanna, þennan tölvupóst ritaði ég í gær sem svar við boði á tónleika í Hörpu nk sunnudag sem Jón Ólafsson stendur fyrir og...
InnlentPáll skipstjóri kærir Símamálið til saksóknara: Krafa um að útvarpsstjóri svari fyrir símakaup Páll Steingrímsson skipstjóri hefur vísað Símamálinu svokallaða til ríkissaksóknara og krefst þess að lögreglu verði gert að taka málið upp að nýju. Páll sættir sig ekki við að ákvörðun lögreglustjórans á Norðurlandi eystra um að hætta rannsókn máls nr. 316 2021-003997 standi. Rannsókn málsins stóð árum saman og var vinnulagið fordæmt af fjölmiðlamönnum sem voru með stöðu grunaðra ekki síður...
InnlentÖgmundur segir söguna endurtaka sig: „Ég man eftir ógleðinni sem setti að mér“ Ögmundur Jónasson rifjar upp ógeðfellda frétt sem hann flutti árið 1980 og segir söguna hafa endurtekið sig nýlega. Fyrrum fréttamaðurinn og ráðherrann Ögmundur Jónasson skrifaði færslu á heimasíðu sinni þar sem hann rifjar upp fremur ógeðfellda frétt sem hann flutti þegar hann var fréttamaður í erlendum fréttum á Sjónvarpinu. Þar birtist fréttaklippa af presti blessa bandarískar sprengjuflaugar sem átti að...
InnlentSniðganga Lýðræðisflokkinn vegna Elds: „Hættulegur fyrir þjóðina á alla vegu“ Það gustar heldur betur um Eld Smára Kristinsson, formann Samtakanna 22, en hann var nýverið kynntur sem oddviti á lista Lýðræðisflokksins í Norðurvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Mikil umræða hefur skapast um framboð Elds í hópnum Sniðganga fyrir Palestínu en Eldur er einn dyggasti stuðningsmaður Ísrael á Íslandi, og þó víðar væri leitað, en flestir Íslendingar standa með Palestínu, ef marka...
InnlentBjörn Leví um skipun Jóns Gunnarssonar: „Það hlýtur að þurfa að svara fyrir það á einhvern hátt“ Björn Leví Gunnarsson segir að fréttir af því að Jón Gunnarsson sé orðinn sérstakur fulltrúi Bjarna Benediktssonar í matvælaráðuneytinu, hljómi eins og hans sé „einhver aukaráðherra“. Sagt var frá því í morgun að Bjarni Benediktsson, forsætis- og matvælaráðherra í nýju starfsstjórninni, hefði gert Jón Gunnarsson þingmann að „sérstökum fulltrúa“ sínum í matvælaráðuneytinu. Sjálfur sagði Jón í samtali við Morgunblaðið að...
InnlentJón segir kerfið hafa brugðist syni sínum sem lést á Stuðlum: „Geiri var einstaklega ljúfur“ Jón K. Jacobsen missti Geir Örn Jónsson, 17 ára son sinn, þann 19. október í eldsvoðanum á Stuðlum en Jón opnar sig um brunann, baráttuna við kerfið og líf sonar síns í viðtali við Heimildina. Í viðtalinu lýsir Jón því að hann hafi í mörg ár reynt að fá aðstoð frá kerfinu til að hjálpa syni sínum en þegar hann...
InnlentInnnbrotsþjófur vopnaður plastsverði gripinn á vettvangi – Búðarþjófar réðust á starfsmann Lögreglan brá skjótt við þegar tilkynning barst um innbrotsþjóf að störfum. Það fylgdi sögunni að hann væri með eggvopn.Þjófurinn var handtekinn áður en hann komst inn í húsnæðið. Við leit á honum fannst leikfangasverð úr plasti í bakpoka. Ökumaður bifreiðar var fluttur á Bráðamóttöku til skoðunar eftir árekstur tveggja bifreiða. Ekki er vitað um meiðsli hans. Báðar bifreiðar fjarlægðar með...
InnlentVerkfall lækna yfirvofandi – Viðræður staðið yfir síðan í apríl Læknar á vegum ríkisins munu fara í verkfall þann 18. nóvember næstkomandi náist ekki að semja um kaup og kjör en samningaviðræður hafa staðið yfir síðan í apríl hjá ríkissáttasemjara. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir í samtali við RÚV að mikið óánægja sé meðal lækna um deiluna. „Við höfum ekki fengið styttingu vinnuvikunnar eins og aðrar heilbrigðisstéttir hafa löngu...
InnlentNautahakk mögulegur sökudólgur í Mánagarði Mögulegt er að E.coli sýkingin sem smitaði börn á leikskólanum Mánagarði hafi borist með nautahakki en málið er til skoðunar samkvæmt Guðrúnu Aspelund sóttvarnalæknir. Í samtali við mbl.is segir Guðrún að algengt sé að þegar slík sýking kemur upp sé nautahakk sökudólgurinn en hakk var í boði á leikskólanum í seinustu viku. 18 börn eru þessa stundina undir eftirliti Landspítalans...
InnlentEinn handtekinn vegna andláts konu: „Rannsókn málsins er á frumstigi“ Einn hefur verið handtekinn í tengslum við andlát konu á sjötugsaldri en greint er frá því í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en tilkynnt var um málið um miðnætti. „Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
InnlentDóra reyndi að fá Andrés til að þiggja 2. sætið: „Vinur minn er hugsjónamaður fram í fingurgóma“ Dóra Björt Guðjónsdóttir reyndi að fá Andrés Inga Jónsson til að þiggja 2. sæti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður en hann „haggaðist ekki“. Borgarfulltrúi Pírata og nú frambjóðandi flokksins til Alþingiskosninganna í nóvember, skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hún dásamaði Andrés Inga Jónsson, þingmann Pírata en hann ákvað á dögunum að færa sig neðar á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður...