InnlentÚtför Bryndísar Klöru í beinu streymi klukkan 15 Útför Bryndísar Klöru Birgisdóttur verður gerð út frá Hallgrímskirkju klukkan 15 í dag. Verður útförinni streymt á YouTube. Bryndís Klara lést eftir hnífstunguárás við Skúlagötu á Menningarnótt í ágúst. Hafa foreldrar hennar boðað þann boðskap að fráfall hennar verði til þess að vopnaburður hverfi af sjónarsviðinu og að kærlekurinn verði eina vopnið. Við útförina kemur þekkt tónlistarfólk fram en henni...
Innlent68 nýttu sér neyslurými Rauða Krossins fyrsta mánuðinn: „Ótrúlega þakklátir fyrir þessa þjónustu“ Neyslurými Rauða krossins, sem ber nafnið Ylja, hefur verið starfrækt í Borgartúni einn mánuð. Verkefnið hefur farið mjög vel af stað þennan fyrsta mánuð að sögn starfsmanna Rauða Krossins. „Það er ótrúlega góð tilfinning og mikill léttir að vera komin í fullan gang. Það hefur rosalega mikil vinna átt sér stað og við erum stolt af þessu verkefni og að...
InnlentVilt þú nýja stjórnarskrá? Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra Íslands, hélt í vikunni stefnuræðu sína fyrir komandi þingvetur. Eitt af því sem Bjarni nefndi var stjórnarskrá Íslands. „Í vetur er tækifæri til að sammælast um skynsamlegar breytingar á stjórnarskránni. Horfa ætti til kafla um forseta Íslands, Alþingi og dómstóla auk þess sem skoða mætti ákvæði um kjördæmaskipan og jöfnun atkvæða. Markmiðið ætti ávallt að vera að...
InnlentFríða Dís dansar um borð í húsbáti Fátt er skemmtilegra en íslensk tónlist og það er vegna þess að Íslendingar eru ótrúlega hæfileikaríkir á þessu sviði. Eina sem er betra en íslensk tónlist er ný íslensk tónlist og hefur Mannlíf valið fimm nýleg íslensk lög sem allir þurfa að hlusta á um helgina. Fríða Dís – The Boathouse Dance The Sweet Parade – Desperate Love (for Isol)...
InnlentLandhelgisgæslan varar sjófarendur við ísjökum – Sá stærsti 33 metrar á hæð og 110 metrar á lengd Fjölmargar tilkynningar hafa borist varðstjórum í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um borgarísjaka á Vestfjarðarmiðum og á Húnaflóa í vikunni. Hafa verið sendar siglingaviðvaranir sjófarendum af þeim sökum. Á vef Landhelgisgæslunnar segir að áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri hafi siglt framhjá sjö ísjökum á leið sinni frá Húnaflóa að Norðurfirði í gær. Eru jakarnir allt frá því að vera um þrír metrar á hæð...
InnlentPrestur gagnrýnir Guðrúnu biskup: Ekkert matarboð eða uppvask hjá Jesú Nýkjörinn biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, fær kaldar kveðjur frá séra Kristni Jens Sigurþórssyni í blaðagrein í dag. Presturinn telur að biskupinn kunni ekki að predika þrátt fyrir að hafa kennt predikunarfræði við Háskóla Íslands. Grein Kristins ber yfirskriftina „Sannir lærisveinar og ósannir“. Í grein sinni vísar Kristinn til predikunar Guðrúnar í Hallgrímskirkju sem hann taldi mislukkaða í skilningi fræðanna....
InnlentHlæjandi hnífamaður ógnaði farþegum í strætisvagni – Unglingur kastaði hnífi að öðrum í slagsmálum Nokkur ótti greip um sig í strætisvagni þegar maður mundaði hníf innan um farþega. Þegar lögregla hafði afskipti af manninum fannst enginn hnífur en vitni sögðu að maðurinn hafi kastað honum frá sér. Maðurinn var fjarlægður úr strætisvagninum og er málið í rannsókn. Vitni staðhæfði að maðurinn hefði verið ógnvekjandi og hlegið á meðan hann mundaði vopnið. Annað hnífamál kom...
InnlentSniðgangan 2024: „Venjulegt fólk sem getur ekki horft aðgerðalaust á þjóðarmorðið í Palestínu“ Sniðgangan 2024 verður gengin á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri laugardaginn 14. september kl. 14:00. Sniðgangan 2024 verður farin til að vekja athygli á sniðgöngu fyrir Palestínu og mikilvægi þess að sniðganga Ísrael og ísraelskar vörur þar til stjórnvöld í Ísrael lúta alþjóðalögum og virða frelsi og réttindi Palestínumanna, að því er fram kemur í fréttatilkynningu um málið. Frá mótmælum gegn þjóðarmorðinu...
InnlentMinnast Bryndísar Klöru með friðarkertum: „Þessi atburður sló mig“ Útför Bryndísar Klöru Birgisdóttur fer fram á morgun en Anna Björt Sigurðardóttir vill hvetja landsmenn til að kveikja á kertum til að minnast hennar en hægt er að kaupa sérstakt friðarkerti í öllum helstu matvöruverslunum landsins og rennur allur ágóði af sölu þess í minningarsjóð Bryndísar Klöru. „Ég fékk þessa hugmynd og fann að mig langaði að koma henni út....
InnlentKjartan bæjarstjóri kominn í veikindaleyfi – Greindist með krabbamein í sumar Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson er kominn í veikindaleyfi en í sumar greindist hann með krabbamein. Samkvæmt vef Víkurfrétta hófst hormónameðferð strax í kjölfar greiningar en stefnt er að því að Kjartan Már gangist undir geislameðferð í október og nóvember. Þar kemur einnig fram að hann muni áfram sinna ýmsum sérverkefnum í samráði við Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, formann bæjarráðs en...
InnlentRóbert Spanó húðskammar dómsmálaráðherra: „Þetta snýr ekki að persónu vararíkissaksóknara“ Það verður ekki sagt að Róbert Spanó, einn virtasti lögmaður í sögu Íslands og fyrrum forseti Mannréttindadómstóls Evrópu, gefi Guðrúnu Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra Íslands, háa einkunn fyrir hvernig hún tók á máli Helga Magnúsar Gunnarssonar en hann greinir frá skoðun sinni um málið í aðsendri grein á Vísi. Eftir miklar vangaveltur ákvað Guðrún að víkja Helga ekki úr starfi vararíkissaksóknara en...
InnlentÓlafur geðlæknir segir reiðina sterka tilfinningu: „Hluti af sorgarviðbrögðum og vanmáttarkennd“ Í nýjum pistli sínum ræðir Ólafur Þór Ævarsson reiði og gefur góð ráð hvernig er hægt að bæta reiðistjórnun. „Reiði er sterk mannleg tilfinning sem einkennist af andúð og mótstöðu gegn mótlæti eða rangindum. Reiðin getur verið gagnleg og jafnvel lífsnauðsynleg til þess að tjá tilfinningar og skoðanir eða til mótmæla. Þá beinist hún að einhverjum eða einhverju, er skiljanleg...