Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

68 nýttu sér neyslurými Rauða Krossins fyrsta mánuðinn: „Ótrúlega þakklátir fyrir þessa þjónustu“

68 nýttu sér neyslurými Rauða Krossins fyrsta mánuðinn: „Ótrúlega þakklátir fyrir þessa þjónustu“
Notendur neyslu­rým­is­ins eru ánægðir með starfs­fólkið að sögn Rauða Krossins – Mynd: Rauði Krossinn

Neyslu­rými Rauða kross­ins, sem ber nafnið Ylja, hefur verið starf­rækt í Borg­ar­túni einn mánuð. Verk­efnið hefur farið mjög vel af stað þennan fyrsta mánuð að sögn starfs­manna Rauða Krossins. 

„Það er ótrú­lega góð til­finn­ing og mik­ill léttir að vera komin í fullan gang. Það hefur rosa­lega mikil vinna átt sér stað og við erum stolt af þessu verk­efni og að geta loks­ins boðið upp á öruggt rými til að nota í,“ sagði Eva Dögg Þórs­dóttir, verk­efna­full­trúi í neyslu­rým­inu, í frétta­til­kynn­ingu um málið. „Í byrjun komu fleiri til að nýta sér rýmið en við bjugg­umst við. Til þessa hafa 68 not­endur komið til okkar í 263 heim­sóknum.“

Þakklæti og léttir

 „Aðstaðan er komin í gott horf. Það er allur lífs­nauð­syn­legur bún­aður til staðar í rým­inu, en það vantar reyndar ennþá stál­borð sem verða sett upp. Svo er nátt­úru­lega við­búið að það verði alls konar litlir hlutir sem kemur í ljós að væri gott að hafa og þá græjum við það bara,“ segir Eva.

„Við erum hins vegar bara rétt að byrja að ná almenni­lega til ein­stak­linga sem nota vímu­efni í æð. Allir sem hafa komið eru ótrú­lega þakk­látir fyrir þessa þjón­ustu og það er búið að vera mjög gaman að heyra frá þeim hvað þau eru ánægð með að þetta úrræði sé loks­ins komið,“ útskýrir Eva. „Fólk talar líka um hvað þetta sé hrein og nota­leg aðstaða og hvað starfs­fólkið sé gott. Við höfum upp­lifað mikið þakk­læti og létti hjá not­endum og þau segja okkur að þetta sé ein­fald­lega frá­bært.“

Jákvæð viðbrögð

Neyslu­rýmið er opið alla virka daga milli 10-16 og á föstu­dögum milli 10-14, en þessi opn­un­ar­tími kemur til móts við opn­un­ar­tíma gisti­skýl­anna. Hug­myndin er að þetta úrræði sé í boði þegar skjól­stæð­inga­hóp­ur­inn hefur ekki í önnur hús að venda að sögn Rauða Krossins.

 „Við höfum líka verið rosa­lega heppin með frá­bæra starfs­manna­hóp­inn sem okkur hefur tek­ist að setja saman í neyslu­rým­inu,“ sagði Eva. „Þetta er fag­fólk sem kemur úr mörgum ólíkum áttum en tengj­ast samt öll á ein­hvern hátt inn í þennan mála­flokk. Við höfum líka verið í afar góðu sam­bandi og sam­starfi við kerfin í kringum okkur og við höfum bara heyrt af og orðið vör við jákvæð við­brögð við þjón­ust­unni sem er við erum að bjóða upp á,“ sagði verk­efna­stjór­inn að lokum að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina