InnlentKári er látinn Kári Árnason fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu er látinn 80 ára gamall en Akureyri.net greinir frá andláti hans. Kári fæddist á Akureyri árið 1944 og voru foreldrar hans Ingunn Jónsdóttir og Árni Friðriksson. Kári var einn af bestu knattspyrnumönnum Íslands á sínum tíma og varð meðal annars bikarmeistari með ÍBA árið 1969 en hann lék einnig með KA á sínum ferli....
InnlentGrímuklæddir sakleysingjar í Kópavogi – Alelda við Rauðavatn Fólki í Kópavogi þegar tveir grímuklæddir menn á rafhlaupahjólum fóru um bæinn. Virtist sem svo að þarna væru á ferð misyndismenn í skuggalegum erindum. Lögregla brá skjótt við og náði mönnunum. Kom þá á daginn að þarna voru á ferð sakleysingjar að safna flöskum og dósum. Róstursamir gestir á gistiheimili í miðborginni neituðu að hafa sig á brott. Lögreglan náði...
InnlentGalli í gufubaði kostar Reykjavíkurborg tugi milljóna Talið er að kostnaður sem Reykjavíkurborg þarf að standa undir verði á bilinu 20 til 25 milljónir vegna viðgerðar á gufubaði í Sundhöll Reykjavíkur en ástæðan á viðgerðunum sögð vera galli í fyrri uppsetningu. Gufubaðið hefur verið lokað síðan í janúar. „Það var einhver galli í fyrri framkvæmdum eða fyrri uppsetningu á gufubaðinu sem þurfti að leiðrétta. Það þurfti að...
InnlentHronn hafnað Í síðustu kom Mannanafnanefnd saman og samþykkti sex eiginnöfn. Tvö karlmannsnöfn voru samþykkt og fjögur kvenmannsnöfn. Kvenmannsnöfnin sem voru samþykkt eru Roj, Ana, Ahelia og Maríabet en karlmannsnöfnin tvö sem fengu samþykki voru Núri og Foster. Einu nafni var hins vegar hafnað og það var kvenmannsnafnið Hronn. Samkvæmt nefndinni var því hafnað vegna skilyrðis að ný nöfn skuli ekki koma...
Innlent„Þegar ég kem úr sturtu situr berrassaður eldri maður við skápana og hefur sig til í rólegheitum“ Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson er með skemmtilegri mönnum; og hann er ófeiminn viðað deila skoðunum sínum og reynslu – og segir vel frá: „Ég skrapp í sund eins og ég geri stundum. Nuddið og kaldi potturinn hafa hingað til forðað því að ég leggist af öllum mínum þunga á örorkusystemið. En það er önnur saga,“ segir Jakob og bætir við:...
InnlentJohn Cena leggur skóna á hilluna Fjölbragðaglímukappinn, leikarinn og rapparinn John Cena hefur tilkynnt að hann muni hætta að glíma á næsta ári og leggja glímuskóna á hilluna en hann hefur verið einn af þekktustu glímuköppum heimsins undanfarin 20 ár og hefur unnið til fjölda titla sem slíkur. Cena tilkynnti þetta á WWE-viðburðinum Money in the Bank um helgina en líklegt þykir að hann muni einbeita...
InnlentMagnús er fallinn frá Magnús Magnússon er látinn 97 ára gamall en mbl.is greinir frá þessu. Magnús var lengi einn af fremstu vísindamönnum Íslands og var lykilmaður í þróun verkfræði og raunvísinda við Háskóla Íslands. Magnús var menntaður stærðfræðingur og eðlisfræðingur frá hinum virta Cambridge-háskóla á Englandi og vann síðar meir við rannsóknir á afstæðiskenningu Einsteins við Princeton-háskólann í Bandaríkjunum. Magnús var eins og...
InnlentNakinn maður djöflaðist á bílum um hánótt – Fyllibyttur sofnuðu á gangstétt í miðborginni Furðumál næturinnar átti sér stað á svæði lögreglunnar í Mosfellsbæ. Nakinn maður vakti athygli þar sem hann lét illum látum á almannafæri. Bílar fóru í taugarnar á honum iog hann veittist að þeim. Lögregla fór á vettvang stöðvaði framferði mannsins. Hann var undir áhrifum og taldi lögreglan ráðlegt að læsa hann inni í fangaklefa þar til hann verður viðræðuhæfur. Nakti...
InnlentÁstin blómstrar hjá Kára og Evu Sjálfur kóngurinn Kári hefur fundið ástina í örmum gyðjunnar Evu. Það var Smartland sem greindi fyrst frá þessu. Já, Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Eva Bryngeirsdóttir jógakennari og einkaþjálfari hafa fundið taktinn í dansi ástarinnar og una sér vel; þau fóru saman á Moco safnið í Barcelona á Spáni og eftir þá ferð fóru þau út að borða. Þetta...
InnlentSegja afturför í réttindamálum hinsegin fólks og margra minnihlutahópa: „Þetta var sjokk“ „Okkur langaði að halda bókmenntahátíð sem myndi upphefja og setja í fókus hinsegin höfunda,“ segir Eva Rún Snorradóttir sem er önnur skipuleggjenda hinsegin bókmenntahátíðarinnar Queer Situations sem haldin verður í fyrsta skipti dagana 22. til 24. ágúst: „Bæði höfunda sem eru hinsegin og eru að skrifa um hinsegin málefni en líka bækur sem eru út fyrir miðjuna í formi og...
InnlentSegir að Kamala Harris verði að taka við keflinu af Biden: „Hún myndi bursta Donald Trump“ Adam Schiff, einn af leiðtogum demókrataflokksins í fulltrúadeild Bandaríkjaþings segist algjörlega viss um að Kamala Harris varaforseti myndi bursta Donald Trump með ef Joe Biden myndi hætta við framboð sitt. Adam Schiff. Adam Schiff mætti í umræðuþáttinn Meet the Press á sjónvarpsstöðinni NBC í dag – og vitanlega var farið yfir mál málanna í stjórnmálum vestanhafs, stöðu Joe Biden forseta...
InnlentSpá afar litlum hagvexti Nokkuð hefur dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði síðustu mánuðina og hefur eftirspurn eftir vinnuafli minnkað að mati hagfræðideildar Landsbankans, en það er RÚV sem greindi fyrst frá. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans – Una Jónsdóttir – segir að hátt vaxtastig hafi áhrif á þróun efnahagsmála hér á landi: „Stýrivextirnir eru alveg ábyggilega farnir að hafa veruleg áhrif. Það er að hægja...