„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
InnlentGuðbergur er fallinn frá Guðbergur Bergsson er látinn. Hann fæddist 16. október árið 1932 og ólst upp í Ísólfsskála. Hann var á meðal þekktastu rithöfunda landsins. Eftir hann liggur fjöldi bókmenntaverka á borð við skáldsögur og smásögur. Þekktasta verk hans er Tómas Jónsson, mertsölubók sem kom út árið 1966. Hann lét sig þjóðfélagsmál miklu varða og skrifaði fjölda greina um margvísleg efni. Hann var...
InnlentBubbi segir storm í fæðingu: „Vonin er falin í unga fólkinu“ Bubbi Morthens segir að torfbæjum í jakkafötum fari fækkandi í nýrri Facebook-færslu. Stormur unga fólksins sé á leiðinni. Goðsögnin Bubbi Morthens er eins og alþjóð veit, mjög á móti hvalveiðum. Í færslu á Facebook í dag sagði hann að það sem hann kallar torfbæi í jakkafötum, fari fækkandi en þá á hann við fólk með gamaldags hugarfar. Lætur hann ríkisstjórnarflokkana...
InnlentTelur aðgerðir lögreglu hafa heppnast vel: „Það var enginn aðsúgur gerður að okkur“ Aðstoðaryfirlögreglustjóri telur að aðgerðir lögreglu hafi endað vel. Anahita Babaei og Elissa Biou sem höfðu hlekkjað sig við hvalveiðiskip í gærmorgun eru nú komnar niður. Þær hafa verið kærðar fyrir húsbrot og voru færðar til skýrslutöku eftir að þær komu niður. Kristján Helgi Þráinsson aðstoðaryfirlögreglustjóri sagði í samtali við mbl.is að aðgerðir lögreglu hafi heppast vel og konunum heilsaðist vel....
InnlentMA og VMA verði sameinaðir: „Þá aukum við hagkvæmni“ Menntaskólinn á Akureyri og Verkmenntaskólinn á Akureyri munu sameinast ef allt gengur eftir. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti á fundi í Hofi í dag að stæði til að sameina MA og VMA og eru skólameistarar skólanna jákvæðir fyrir þessari sameiningu. Þó að málið sé ekki frágengið þá eru þetta meðmæli stýrihóps sem var skipaður í apríl. „Niðurstaða stýrihópsins...
InnlentMótmælunum að ljúka – Anahita og Elissa koma niður Mótmælunum sem Anahita og Elissa standa fyrir í hvalveiðibátunum er nú að ljúka. Anahita og Elissa hafa ákveðið að koma niður úr möstrum hvalveiðibátana en þær hafa verið hlekkjaðar þar síðan snemma í gærmorgun. Þær sögðust ekki geta haldið lengur út. Anahita var sú fyrri til að koma niður og fékk sér langþráðan vatnssopa. Kveikt hefur verið á vélum Hvals...
InnlentStefán er ánægður með mótmælin í Reykjavíkurhöfn: „Sé tvær sterkar ungar konur“ Stefán Pálsson segist vona að mótmælunum í Reykjavíkurhöfn ljúki með „glans“ í stað þess að aktivistarnir gefist upp „úrvinda um miðja nótt“ „Átti leið um höfnina og kíkti á hvalveiðibátana. Í mínum huga er þetta öflug mótmælaaðgerð og þegar gríðarlega vel heppnuð. Ég fylgist með atburðarásinni og sé tvær sterkar ungar konur sem hafa náð að setja strik í reikninginn...
InnlentÁsa fær yfir 200 milljónir: „Opna augu fólks fyrir heiminum sem við búum í“ Ása Skúladóttir, stjarneðlisfræðingur, hefur hlotið styrk upp á rúmar 200 milljónir króna. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu sem Mannlífi barst fyrr í dag en Ása er einn virtasti stjarneðlisfræðingur Evrópu. Styrkurinn er frá Evrópska rannsóknarráðinu en með styrknum mun Ása reyna svara grundvallarspurningum um vetrarbrautina okkar og hvernig frumefnin urðu til. En auk þess að vera vísindamaður heldur Ása...
InnlentSara Lind heldur forstjórastólnum án auglýsingar – Ráðuneytið auglýsti starfið ekki Sara Lind Guðbergsdóttir verður áfram forstjóri Ríkiskaupa, þrátt fyrir að hafa verið skipuð tímabundið í stöðuna eða til 31. ágúst. Skipunartími hennar hefur verið framlengdur til áramóta, þrátt fyrir yfirlýsingar um að starf hennar yrði auglýst. Fjármálaráðherra skipaði Söru Lind Guðbergsdóttur sem forstjóra Ríkiskaupa tímabundið, án þess að auglýsa stöðuna. Vakti ráðstöfun Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra athygli því Sara Lind er...
InnlentVaktmaður Hvals stefndi mótmælendum í lífshættu 1987: „Það er haugalygi“ Hvalveiðimótmælin í skipunum Hval 8 og Hval 9 eru svo sannarlega ekki þau fyrstu. Árið var 1987 og þrír ungir mótmælendur hlekkjuðu sig í einn sólarhring við skipið Hval 8. Þar voru á ferðinni Magnús Skarphéöinsson, Kjartan Guðnason og Ragnar Ómarsson. „Þetta var gert til þess að koma í veg fyrir veiðar bátsins en til stóð að senda hann út...
InnlentJónas lést við smalamennsku Maðurinn sem fannst látinn innarlega í Eyjafirði á laugardagskvöld hét Jónas Vigfússon. Lætur hann eftir sig eiginkonu, tvær uppkomnar dætur og sjö barnabörn. Viðbragðsaðilum barst beiðni um aðstoð á laugardagskvöld en þá hafði Jónas verið við smalamennsku hátt upp í hlíðum Hagárdals að norðanverðu. Lögreglan sagði að afar erfiðlega hafi gengið að komast til hans og vegna misvinda í dalnum...
InnlentBjörn Leví sakar Bjarna Ben um blekkingar: „Þetta er svona sjónhverfing. Sjáið tekjuveisluna“ Björn Leví Gunnarsson sakar Bjarna Benediktsson um blekkingar varðandi stöðu ríkissjóðs. Píratinn Björn Leví Gunnarsson heldur áfram að vera þyrnir í augum Sjálfstæðisflokksins með aðhaldi sínu, í nýrri færslu á Facebook. Þar tekur hann fyrir stöðu ríkissjóðs en Björn Leví bendir á að afkoma ríkisins hafi verið neikvæð um 130 milljarða árið 2021 og neikvæð um 175 milljarða í fyrra....
InnlentGunnar Smári blokkaði mann um helgina: „Hann er óviðkunnanlegur, ókurteis og uppáþrengjandi dóni“ Gunnar Smári Egilsson blokkaði mann á Facebook um helgina. Ástæðan var að hann var „uppáþrengjandi dóni.“ Sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson skrifaði langan pistil á Facebook í gær þar sem hann segir frá því að hann hafi blokkað mann á Facebook í gær. Sagði hann manninn hafa byrjað vel. „Hann byrjaði að senda mér skilaboð og sagðist þekkja mig og fjölskyldu...