Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Gunnar Smári blokkaði mann um helgina: „Hann er óviðkunnanlegur, ókurteis og uppáþrengjandi dóni“

Gunnar Smári Egilsson.
Gunnar Smári Egilsson.

Gunnar Smári Egilsson blokk­aði mann á Facebook um helg­ina. Ástæðan var að hann var „upp­á­þrengj­andi dóni.“

Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson skrif­aði langan pistil á Facebook í gær þar sem hann segir frá því að hann hafi blokkað mann á Facebook í gær. Sagði hann mann­inn hafa byrjað vel. „Hann byrj­aði að senda mér skila­boð og sagð­ist þekkja mig og fjöl­skyldu mína, sagð­ist muna eftir mömmu sem dó snemma í vor.“ En svo fór sam­talið að súrna. „Fór síðan að tala eins og hann þekkti fjár­mál mín, sem hann aug­ljósa gerði ekki, og byrj­aði að ýja að alls­konar. Ég sagði honum að hætta að senda mér þessi skila­boð, en hann hélt áfram. Þá sagði ég honum að ég myndi blokka hann ef hann héldi áfram. Sem hann gerði, svo ég blokk­aði hann.“

Gunnar Smári sagð­ist ekk­ert þekkja mann­inn. „Bara að hann er óvið­kunn­an­legur, ókurt­eis og upp­á­þrengj­andi dóni.“ Restin af pistl­inum fer í að tala almennt um blokk­anir Gunnars Smára á Facebook en hann skoð­aði lista yfir þá sem hann hafði blokkerað frá því að hann byrj­aði á sam­fé­lags­miðl­inum árið 2009. Alls hefur hann blokkað 52 mann­eskjur, allt karl­menn fyrir utan eina konu og eina gervi­mann­eskju. Gunnar Smári segir að dóna­skapur ókunn­ugra komi í gusum á Facebook. Fyrsta gusan hafi komið þegar hann byrj­aði á miðl­inum en þá var hann for­maður SÁÁ og svo hafi komið önnur gusa þegar hann stofn­aði Sós­í­alista­flokk Íslands. „Þegar við stofn­uðum Sós­í­alista­flokk­inn koma önnur svona gusa af mönnum sem eltu mig um Facebook og vildu sanna að ég væri algjör hálf­viti, lyg­ari, land­níð­ingur og ill­menni. Þetta er í sjálfu sér sak­laust, öllum getur ekki líkað við allt og alla, en fólk ber óþol sitt mis­jafn­lega. Ég blokk­aði bara þá sem voru með yfir­gengi­legan dóna­skap, hót­anir eða helltu sér yfir fjöl­skyldu mína, jafn­vel börn.“

Sós­í­alista­for­ing­inn reikn­aði út að hann blokki menn á 98 daga fresti en hann nefnir einnig þá hópa sem hann er í for­svari fyrir en þeir telja tug­þús­undir fólks. Segir hann að lokum að í grunn­inn sé Facebook-sam­fé­lagið gott sam­fé­lag. „En miðað við að ég hef ekki blokkerað fleiri þá verð ég að segja að þetta er ekki svo slæmt sam­fé­lag. Auðvitað er hér offram­boð af lélegum skoð­unum, en þær eru oft­ast sak­lausar. Fólk er hins vegar fast­heldið á skoð­anir sínar, ekki síst þær verstu. En mað­ur­inn var ekki skap­aður alvitur og alsjá­andi. Þvert á móti lifir hann í þoku og þvælist þar fyrir sjálfum sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar