InnlentÓli Ufsi segir Svandísi í ruglinu – Sjómenn sem þora segi allir það sama: „Grisjum þennan stofn“ Ólafur Jónsson eða Óli Ufsi eins og hann er oft kallaður, fyrrverandi skipstjóri, segir að nóg sé af fiski á miðunum og segir Hafró og Svandísi Svavarsdóttur í „algjöru rugli með ráðgjöfina.“ Ólafur birti ljósmynd af hrognum á Facebook-síðu sinni og skrifaði eftirfarandi texta við myndina: „Aldrei sést önnur eins veiði í Buktinni og sýnir okkur svo sannarlega að HAFRÓ...
InnlentTilkynning frá Agli Ólafssyni: „Sköpunargleðiganga mín heldur áfram“ Einn ástsælasti söngvari og leikari þjóðarinnar, Egill Ólafsson sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi. Fram kom í fréttum í gær að Stuðmenn hafi neyðst til að aflýsa tónleikum sem halda átti í Hörpu í nóvember vegna þess að Egill er með Parkinsons-sjúkdóminn. Og um það er tilkynning söngvarans. „Eins og mörg ykkar vissuð, hef ég verið að kljást við Parkinssons...
InnlentArnar Grant segir marga leita til sín og biðja um ráð: „Förum vel með okkur“ Einkaþjálfarinn Arnar Grant, sem síðustu misseri hefur meira verið í sviðsljósinu fyrir meinta fjárhúgunartilraun og stormasamt ástarsamband við Vítalíu Lazarevu, býður netverjum nú 8 heilræði fyrir að bæta heilsuna í vetur. “Margir eru að spyrja mig ráða núna. Förum vel með okkur,” segir Arnar sem birtir ráðin sín á Facebook . Hann hvetur fólk til að byrja með að fara...
InnlentSagt upp fyrir að tala of mikið : „Elsku vinir og viðskiptavina, þið gera lifið betra“ Rebeccu Cathrine Kaad Ostenfeld, var sagt upp störfum í gær í Krambúðinni í Búðardal. Greindi Rebecca frá uppsögninni á Facebook síðu sinni og birti mynd af uppsagnarbréfinu. Formleg ástæða uppsagnarinnar er sögð vera skipulagsbreyting en að sögn Rebccu fannst verslunarstjóranum hún tala of mikið við viðskiptavini. Uppsögnin er sérstök að því leytinu til að Rebecca var útnefnd sem Dalamaður ársins...
Innlent„Ég sé ekki eftir einu einasta skrefi!” – Anna María sakaði Aron Einar og Eggert um nauðgun „Takk allir sem hafa stutt við bakið á mér, ykkur verð ég ævinlega þakklát. Ég er að gróa,“ segir Anna María Bjarnadóttir, í færslu á Facebook, af því tilefni að henni voru veitt Hugrekkisverðlaun Stígamóta á dögunum. Anna María steig fram í maí síðastliðnum þar sem hún sagði þá Aron Einar Gunnarsson, fyrirliða íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, og Eggert Gunnþór...
InnlentPétur segir að sigur Guðlaugs gæti bjargað VG: „Það eina sem getur bjargað þessum flokki“ „Merkilegt að lesa inn einhver mörk hjá Katrínu. Hún ber Bjarna og Sjálfstæðisflokkinn til valda og á svo allt í einu að stappa niður fætinum og segja nei, takk við Guðlaugi Þór. Hún er sem sé til í fara út í mýri með Vg en er þar voða kresin á í hvaða poll hún stígur. Mér finnst þetta ekki merkileg...
InnlentKlikkun á kirkjuþingi: „Króaði sóknarnefndarformann af og frussaði yfir hann tertu í bræði sinni“ Það var ansi hart tekist á innan Þjóðkirkjunnar á nýafstöðnu kirkjuþingi. Segir svo frá á vefsíðu fréttarefsins Eiríks Jónssonar að Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands hafi verið „dregin harkalega yfir naglabretti hins hreinskilna sóknarnefndarformanns, Óskars Magnússonar úr Fljótshlíðinni.“ Segir Eiríkur að svo virtist sem kirkjuþingsmönnum yrði „létt við að einhver segði það sem öllum bjó í brjósti þótt það hefði...
InnlentSólveig tekur fyrirtækjaeigendur til bæna – Krefst þess að öll mánaðarlaun hækki um 167.000 krónur Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, greinir frá því á Facebook að í morgun hafi hún sent kröfugerð til Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd félagsins. Þar ber helst að nefna kröfu um að öll mánaðarlaun hækki um samtals 167.000 krónur yfir þriggja ára samningstíma. Hún segir þann tíma liðinn að fyrirtækjaeigendur geti komist upp með að borga fólki annað en mannsæmandi laun....
InnlentBjarni búinn að vera – „Arnþrúður var gersamlega sjokkeruð“ Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra mun tapa komandi formannskosningum í Sjálfstæðisflokknum. Þetta kom fram á Útvarpi Sögu á dögunum. Þar sá Guðrún spákona fyrir endalok Bjarna þökk sé forboðnum kúnstum, kukli og dularfulls pendúl. Arnþrúður Karlsdóttir þáttastjórnandi var í áfalli þegar pendúllinn kvað sinn dóm. Gagnrýnandinn geðþekki, Jón Viðar Jónsson, greinir frá þessu galdramáli á Facebook. „Útvarp Saga klikkar ekki. Ég var...
InnlentEgill getur ekki sungið lengur: „Telur hann best að koma hreint fram og játa sig vanmáttugan“ Egill Ólafsson, einn allra besti söng- og leikari Íslandssögunnar, er með Parkinsonssjúkdóminn. Stuðmenn aflýstu í dag „Með allt á hreinu“ kvikmyndatónleika sem halda átti í Hörpu 11. nóvember næstkomandi. Fram kemur í frétt Rúv að hljómsveitin hafi sent miðakaupendum tölvupóst þar sem ástæðan er sögð sú að Egill Ólafsson, aðalsöngvari Stuðmanna sé með Parkinsons. „en þar sem hann getur ekki...
InnlentÖlvuð kona handtekin á veitingastað – Rafskútuslys í Kópavogi Helgin hjá lögreglunni var heldur annasöm ef marka má dagbók lögreglu. Kona í annarlegu ástandi var handtekin á veitingastað í miðbænum. Fór hún ekki eftir fyrirmælum lögreglu og var því látinn gista í fangaklefa. Fyrr um kvöldið hafði lögregla afskipti af þremur mönnum á heimili sínu í Hafnarfirði. Voru mennirnir grunaðir um vörslu fíkniefna og afhentu þeir lögreglu áætluð efni....
InnlentSnorri vildi Þórdísi Kolbrúnu í hásæti Valhallar: „En Snorri þú ert svo vel tengdur konunni í þér“ Listamaðurinn Snorri Ásmundsson segir að „mjög margir stuðningsmenn mínir hafa að undanförnu haft samband við mig og skorað á mig í formannskjör. Fyrstu viðbrögð mín voru að ég dæsti, því ég hef nóg annað að gera með tímann minn.“ Listamaður með risastóru eLLi. Þótt Snorri sé upptekinn er hann ekki neikvæður og er meira fyrir já en nei: „En áköfustu...