Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Tilkynning frá Agli Ólafssyni: „Sköpunargleðiganga mín heldur áfram“

Egill Ólafsson er ánægður með plötu Kára Egilssonar.
Egill Ólafsson er ánægður með plötu Kára Egils­sonar. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Einn ástsælasti söngvari og leikari þjóðarinnar, Egill Ólafsson sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi.

Fram kom í fréttum í gær að Stuðmenn hafi neyðst til að aflýsa tónleikum sem halda átti í Hörpu í nóvember vegna þess að Egill er með Parkinsons-sjúk­dóminn. Og um það er tilkynning söngvarans.

„Eins og mörg ykkar vissuð, hef ég verið að kljást við Parkinssons veiki síðustu misseri. Þrátt fyrir það söng ég á sviði Hörpunnar, með mínum gömlu félögum í Stuð­mönnum fyrir ári síðan – og það slapp fyrir horn. Núna, ári síðar, gengur það því miður ekki, ég get einfald­lega ekki stólað á röddina lengur – það er staðreynd sem ég verð að horfast í augu við.

Það er sárt að geta ekki staðið undir væntingum og þurfa að bregðast mínum gömlu félögum og ekki síður tónleika­gestum, en stundum er nauðsynlegt að láta í minni pokann, þó ég ætli mér ekki að vera minni­pokamaður.

Um leið og ég þakka ykkur skilning og stuðning og biðst velvirðingar, vil ég að það komi skýrt fram að sköpunar­gleðiganga mín heldur áfram og það þótt heilinn sé orðinn spar á ýmis gleði­hormón.“

Þá segir Egill einnig frá plötu sem hann náði að taka upp í vor en Mannlíf sagði frá gerð plötunnar, fyrst miðla.

„Í vor náði ég að syngja inn á nýja tvöfalda plötu með músík eftir mig, „tu duende / el duende“. Þar naut ég fulltingis kúbversku söng­konunnar Lissy Hernández og Ellenar Kristjáns­dóttur.

Þeir sem hafa forkeypt þá plötu fá hana afhenta nú í nóvember, annars er útgáfu­dagurinn 9. febrúar.“

Að lokum segir Egill frá því að hann er síður en svo hættur að skapa þó röddin sé farin en út kemur ljóðabók eftir hann innan skamms.

„Að auki kemur út innan skamms ljóðabók um föður minn, sem oft var nefndu ,,sjófuglinn“, en hét Ólafur Ásmundsson Egilsson.Og áfram heldur sköpunar­gleðiganga mín – vonandi sem lengst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning