Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sólveig tekur fyrirtækjaeigendur til bæna – Krefst þess að öll mánaðarlaun hækki um 167.000 krónur

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Mynd/skjáskot RÚV
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, greinir frá því á Facebook að í morgun hafi hún sent kröfugerð til Samtaka atvinnu­lífsins fyrir hönd félagsins. Þar ber helst að nefna kröfu um að öll mánaðar­laun hækki um samtals 167.000 krónur yfir þriggja ára samnings­tíma. Hún segir þann tíma liðinn að fyrirtækja­eigendur geti komist upp með að borga fólki annað en mann­sæmandi laun.

Færsla hennar í heild sinni má lesa hér fyrir neðan en hér má lesa kröfu­bréfið.

Í morgun sendi ég fyrir hönd samninga­nefndar Eflingar kröfugerð félagsins til Samtaka atvinnu­lífsins. Kröfu­gerðina má skoða í fyrstu athugasemd við þessa færslu.

Algjör einhugur var hjá samninga­nefnd Eflingar um kröfu­gerðina og var hún samþykkt einróma á fundi okkar í gær, eftir mikla vinnu.

Í körfu­gerðinni förum við fram á hækkun allra mánaðar­launa um samtals 167.000 krónur yfir þriggja ára samnings­tíma. Við setjum fram kröfu um sérstakra framfærslu­uppbót. Við krefjumst krónutöluhækkunnar að fyrirmynd Lífs­kjara­samningsins.

Afkoma fyrir­tækja og hagvöxtur eru í hæstu hæðum. Með hækkunum kröfu­gerðar samninga­nefndar Eflingar er hlutdeild félags­fólks í hagvextinum tryggð. Ef að við fórnum kaupmætti okkar þá rennur hagvöxturinn til eigenda fyrir­tækjanna, en ekki þeirra sem með vinnu sinni skapa hann. Vinnandi fólk og fulltrúar þeirra geta aldrei samþykkt slíka nálgun í kjara­samningum. Fyrirtækja­eigendur njóta arðs af sínum eigun en launa­tekjur eru í hættu. Eflingar-félagar munu ekki að umbera aðför auðmagns­eigenda að lífs­skilyrðum sínum og fjöl­skyldna sinna í vetur.

Hluti þeirra hækkana sem við förum fram á snýr að því að leiðrétta það fráleita ástand að laun verka og láglaunafólks dugi ekki til fram­færslu samkvæmt opinberum viðmiðum. Staðreyndin er sú að viðvarandi halla­rekstur er á heimilum lágtekju­fólks. Full­vinnandi fólk sem að jafnvel bætir við sig aukavinnu kemur samt út í mínus á hverjum mánuði. Það er til háborinnar skammar í einu ríkasta þjóð­félagi í heimi.

Við í samninga­nefnd Eflingar höfum lagt mikla vinnu í undir­búning kröfu­gerðarinnar. Þess ber einnig að geta að yfir 4500 Eflingar­félagar eiga þátt í mótun hennar með þátttöku sinni í kjara- og viðhorfs­könnun félagsins sem framkvæmd var á 10 tungu­málum.

Verkefni okkar í samninga­nefnd Eflingar er skýrt. Við ætlum að standa vörð um hagsmuni Eflingar-félaga og halda áfram á þeirri braut að ná fram kjara­bótum fyrir félags­fólk. Þau sem skapa verðmætin og halda uppi grunn­kerfunum eiga heimtingu á hlutdeild í hagvexti og auð samfélagsins.

Greiðsla mann­sæmandi launa er ekki hættuleg samfélagi okkar. Þvert á móti er það einfald­lega skylda eigenda fyrir­tækjanna að greiða vinnu­aflinu mann­sæmandi laun fyrir unna vinnu.

Félags­fólk Eflingar vill búa í samfélagi jöfnuðar og réttlætis. Það vill berjast gegn misskiptingu og stétt­skiptingu. Það krefst sanngirni og virðingar. Það er tilbúið til að standa saman til að knýja á um betri kjör. Og af þessum ástæðum veit ég að Eflingar-fólk mun ná raun­verulegum árangri í vetur.

Sjáumst í barátt­unni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning