InnlentVill ekki að Bjarni leiði flokkinn áfram: „Hinum djúpstæða vanda afneitað eða umræðan þögguð niður“ Lögfræðingurinn og sagnfræðingurinn Björn Jón Bragason er með gleggri stjórnmálaskýrendum skersins; hann fjallar um þá kreppu sem komin er upp í Sjálfstæðisflokknum, og finnst honum ólíklegt að Bjarni Benediktsson sé rétti maðurinn til að leiða flokkinn áfram. Bjarni Benediktsson. Hann birtir grein á DV þar sem hann fer yfir stöðu mála flokksins. „Frjálsir stjórnmálaflokkar eru ein meginforsenda lýðræðislegra stjórnarhátta og...
InnlentÚtilokar Sjálfstæðisflokkinn: „Sveltistefna flokksins er að bitna mjög harkalega á almenningi“ Formaður þingflokks Samfylkingarinnar – jafnaðarflokks Íslands – lögfræðingurinn Helga Vala Helgadóttir, útilokar samstarf með Sjálfstæðisflokknum á næstu árum; Helga Vala er í dag sú eina sem eftir stendur í forystusveit Samfylkingarinnar eftir nánast algjöra endurnýjun á forystu flokksins á Landsfundi í gær, en þetta kemur fram á Vísi. Helga Vala segir: „Við skuldum þjóðinni að gefa Sjálfstæðisflokknum frí. Ég held...
InnlentSjúklingum sem dvelja á Vífilsstöðum stendur til boða að flytja sig á Selfoss: Aðstandendur ósáttir Aðstandandi sjúklings er afar ósáttur við hvernig sé staðið að breytingum á starfsemi Vífilsstaðaspítala, en þetta kemur fram á RÚV. Boðaðar breytingar hafa ekki verið kynntar fjölskyldum sjúklinga á Vífilsstöðum; en eldri manni var nýverið boðið rými á Selfossi án þess að greint hefði verið frá því að til stæði að breyta rekstri spítalans og flytja alla sjúklinga þaðan. Kemur...
InnlentSéra Arnaldur hvetur Jón Baldvin til að „misbjóða ekki fleirum“ og hætta að „þrjóskast við“ Séra Arnaldur Máni Finnsson birtir grein í Morgunblaðinu þar sem hann hvetur Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra og sendiherra til að setjast í helgan stein. Arnaldur er sonur Elísabetar Þorgeirsdóttur; hún steig fram í pistli í Morgunblaðinu og gagnrýndi framgöngu Jóns Baldvin gagnvart þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar; er Elísabet ein þeirra kvenna sem lýst hafa kynnum...
InnlentStaðfestir framboð undir dynjandi lófaklappi: „Sjálfstæðisflokkurinn á að vera langstærstur“ Eins og Mannlíf greindi langfyrst frá allra fjölmiðla á Íslandi, þá hefur Guðlaugur Þór Þórðarson ákveðið að taka slaginn við Bjarna Benediktsson sitjandi formann Sjálfstæðisflokksins, um næstu helgi; þá fer fram landsfundur flokksins. Guðlaugur Þór tilkynnti opinberlega um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins rétt í þessu; gerði það í troðfullri Valhöll og undir dynjandi lófaklappi. Sagði hann einfaldlega að kominn...
InnlentTapi Bjarni gegn Guðlaugi mun hann hætta: „Þá er mínum tíma í stjórnmálum bara lokið“ Formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarni Benediktsson, sagði í útvarpssþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun að tíma hans í stjórnmálum væri lokið ef Guðlaugur Þór Þórðarson fer með sigur af hólmi í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer um næstu helgi: „Ég hef heyrt í honum,“ svaraði Bjarni þegar hann var spurður hvort Guðlaugur Þór hefði tjáð honum hvort af...
InnlentSegir Bjarna á útleið og að hans bíði frátekið starf: „Bjarni mun hafa mátað sig í það embætti“ Eins og fram hefur komið mun Guðlaugur Þór Þórðarson tilkynna opinberlega – af eða á – um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins á eftir, eða um klukkan 12:30 í Valhöll. Margir bíða spenntir eftir ákvörðun Guðlaugs Þórs; framboð myndi hræra hressilega upp í tilveru Sjálfstæðismanna á Íslandi; verði ekki af framboði er ljóst að Bjarni Benediktsson mun sitja áfram, eins...
InnlentÁ ofsahraða innanbæjar og fleiri mál Meira en 100 mál voru skráð í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á milli 17 í gær og 5 í morgun. Voru 7 einstaklingar vistaðir í fangagklefa á því tímabili. Um klukkan fjögur í nótt var tilkynnt um konu í annarlegu ástandi á veitingastað í miðbænum; hún var tekin höndum – grunuð um brot á lögreglusamþykkt; vistuð sökum ástands í fangageymslu....
InnlentMaður datt í stiga Dagbók lögreglunnar segir frá því að maður datt í stiga; hlaut hann áverka á höfði og missti meðvitund. Þurfti að flytja manninn með hraði í sjúkrabíl á bráðadeild til aðhlynnningar. Þá var einnig sagt frá því í dagbókinni að tvær erlendar konur hafi verið handteknar á hóteli í miðborginni; grunaðar um fjársvik. Voru konurnar vistaðar fyrir rannsókn málsins í fangageymslu...
InnlentBrynjar orðinn afi: „Ég held að þessi kynlausa veröld muni á endanum drepa okkur öll úr leiðindum“ Mikil gleði umvefur líf Brynjars Níelssonar þessa dagana, og hann segir frá því hvers vegna svo sé: „Það urðu tímamót í lífi mínu á fimmtudaginn þegar ég varð afi eða foreldri foreldris barns, eins og það mun heita ef frumvarp Pírata nær í gegn.“ Bætir við: „Ég held að vísu að þessi kynlausa veröld „frjálslyndu umbótaaflanna“ muni á endanum drepa...
Innlent„Allar tennurnar í einni stúlkunni á bænum voru eyðilagðar þar sem hún var lamin svo illa“ Óhætt er að segja að Margrét Esther Erludóttir fatahönnuður hafi átt erfiða æsku. Það sem gengið hefur á í lífi hennar er með ólíkindum; um það allt má lesa í frábæru viðtali Mannlífs við þessa mögnuðu konu. Margrét Esther segir frá dvöl sinni á fósturheimili úti á landi; nefnir sveitabæ á Norðurlandi þar sem voru fleiri börn í fóstri; þar...
InnlentMaría Sigrún á RÚV er „innvígð og innmúruð í vinahóp Bjarna Ben og nánustu stuðningsmanna hans“ Ólafur Arnarson, ritar áhugaverðan pistil á Hringbraut. Ólafur Arnarson. Segir: „Sjónvarpsfréttakonan geðþekka, María Sigrún Hilmarsdóttir hjá ríkissjónvarpinu, hefur blandað sér í átökin innan Sjálfstæðisflokksins á þann hátt að yfirstjórn ríkissjónvarpsins hlýtur að taka til alvarlegrar skoðunar. Stofnunin verður að standa fyrir utan átök innan einstakra flokka en því fer fjarri þegar skoðuð er „frétt“ Maríu Sigrúnar frá því í gær....