Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vill ekki að Bjarni leiði flokkinn áfram: „Hinum djúpstæða vanda afneitað eða umræðan þögguð niður“

Björn Jón Bragason sagnfræðingur.
Björn Jón Bragason sagn­fræð­ingur.

Lögfræðingurinn og sagn­fræðingurinn Björn Jón Bragason er með gleggri stjórnmála­skýrendum skersins; hann fjallar um þá kreppu sem komin er upp í Sjálfstæðis­flokknum, og finnst honum ólíklegt að Bjarni Benediktsson sé rétti maðurinn til að leiða flokkinn áfram.

Bjarni Bene­dikts­son.

Hann birtir grein á DV þar sem hann fer yfir stöðu mála flokksins.

„Frjálsir stjórn­málaflokkar eru ein megin­forsenda lýðræðislegra stjórnar­hátta og svo vel megi takast til við stjórn ríkis þurfa að vera til staðar breiðir þjóðar­flokkar sem geta orðið hreyfiafl umbóta í samfélögum.

Sjálfstæðis­flokkurinn var lengst af slíkur flokkur með meðal­fylgi í kringum 37% á landsvísu og um 45% í bæjar­félögum. Í krafti styrksins gat flokkurinn haft forgöngu um mörg stærstu hagsmunamál þjóðarinnar á grund­velli nokkuð skýrra hugsjóna um einstaklings­frelsi, mann­réttindi, lýðræði, réttar­ríki, atvinnu­frelsi og sér í lagi frjáls viðskipti.

Hér er þó rétt að slá þann varnagla að því fer fjarri að flokkurinn hafi fylgt þessum hugsjónum jafn­einarðlega og talsmenn hans láta oft í veðri vaka.

Sjálfstæðis­flokkurinn lét verslunar- og fjár­festinga­höft viðgangast alltof lengi, hann hefur fram á þennan dag umborið viðskipta­hömlur í land­búnaði og aðhyllst alls kyns forræðis­hyggju svo fátt eitt sé nefnt.

Samt sem áður má færa fyrir því gild rök að flokkurinn hafi haft forgöngu um að leiða til lykta mörg helstu hagsmunamál lýðveldisins.

Í alþingis­kosningum 2007 hlaut Sjálfstæðis­flokkurinn 36,6% atkvæða og 25 menn kjörna undir forystu Geirs H. Haarde formanns og Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur vara­formanns.

Ef við horfum til skoðana­kannana Gallups þá var meðaltals­fylgi Sjálfstæðis­flokksins um og yfir 40% fram á árið 2008. Fylgið mældist sem dæmi 45,1% í júlí 2007. Síðan féllu viðskipta­bankarnir og flokkurinn tapaði alls níu þing­mönnum í kosningunum 2009 undir forystu nýs formanns, Bjarna Benedikts­sonar; hlaut aðeins 23,7% atkvæða.

Fylgis­hrunið þá var við erfiðar aðstæður í meira lagi en litið til kannana Gallups fór flokkurinn að hjarna við síðar sama ár.

Í október 2009 mældist fylgið 32,7% og var almennt yfir þriðjungi næstu misserin. Sögulega var þetta samt slælegur árangur. Þegar óvinsælar vinstri­stjórnir voru við völd hér á árum áður var ekki óalgengt að kannanir sýndu sjálfstæðis­menn með helmings­fylgi og þegar þarna var komið sögu var það svo sannarlega óvinsæl vinstri­stjórn sem hélt um valda­tauma.

Gallup mældi fylgi Sjálfstæðis­flokksins 35,5% í janúar 2013 en aðeins 22,2% í apríl sama ár. Flokkurinn náði nokkuð að rétta úr kútnum þegar kom að kosningunum það ár, hlaut þá 26,7% á landsvísu og 19 menn kjörna.

Enn bætti flokkurinn við sig 2016. Fylgið fór upp í 29,0% og tveir þingmenn bættust við.

Illa gekk að mynda ríkis­stjórn í kjölfarið og það var ekki fyrr en á nýju ári sem til varð stjórn Sjálfstæðis­flokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar undir forsæti Bjarna Benedikts­sonar. Það var brothætt samstarf enda þing­meirihlutinn eins naumur og hugsast gat.

Fall stjórnarinnar skrifast ekki eingöngu á Bjarta framtíð. Það er mat margra að forsætis­ráðherra hefði þurft að leggja mun meiri rækt við forystu­hlutverk sitt í stjórninni.

Síðan þá hefur formaður stærsta stjórn­málaflokks landsins ekki komið til álita sem forsætis­ráðherra.

Í kjölfar þess að ríkis­stjórn Bjarna Benedikts­sonar féll 2017 var efnt til kosninga. Þá missti Sjálfstæðis­flokkurinn fimm menn og fylgið fór niður í 25,2%. Niður­staða kosninganna veitti enga skýrari kosti á stjórnar­myndun en verið höfðu á fyrra kjör­tímabili. Pólitísk upplausn misserin á undan og tvennar alþingis­kosningar með skömmu millibili kölluðu á að málin yrðu hugsuð upp á nýtt.

Það var við þær aðstæður sem hið sérstæða stjórnar­form varð til sem spannar allt pólitíska litrófið en undir forsæti helsta foringja sósíal­ista hér á landi. Stefnan hefur verið eftir því: ríkis­útgjöld vaxið hratt og skuldir að sama skapi.

Erfitt er að sjá margt sem minnir á grunn­gildi Sjálfstæðis­flokksins við framkvæmd stjórnar­stefnu síðustu fimm árin.

Sjálfstæðis­flokkurinn tapaði enn í síðustu alþingis­kosningum, hlaut næst­verstu kosningu frá upphafi eða 24,4% en þing­mannatalan hélst óbreytt.

Eftir þær kosningar horfði raunar svo við að ýmsir kostir voru á stjórnar­myndun en forystu Sjálfstæðis­flokksins leið svo vel í faðmi og undir verk­stjórn Vinstri grænna að flokkarnir endurnýju heit sín með Framsóknar­flokknum.

Áfram verða fjárlög því afgreidd með miklum halla, ríkis­útgjöld stóraukin og almennar vinstri­áherslur ríkjandi í flestum mála­flokkum.

Það var á sinn hátt táknrænt að ráðist var í umfangs­mikla stækkun Stjórnar­ráðsins á þessum tímamótum og ráðherrum fjölgað um tvo. Grunn­gildi sjálfstæðis­manna um sparnað í opinberum rekstri eru farin veg allrar veraldar. Útþensla hins opinbera og aðrar vinstri­áherslur svo grímu­lausar að tal forystu­manna Sjálfstæðis­flokksins um aðhald í ríkis­rekstri og einstaklings­frelsi eru hjóm eitt.

Einn gamal­reyndur sjálfstæðis­maður orðaði það svo í samtali okkar á dögunum að flokkurinn starfaði ekki lengur á grund­velli neinnar hugmynda­fræði. Hann væri nú orðinn ekkert annað en valda­flokkur — allt gengi út að að hanga á völdum sama hvað það kostaði.

Hverfum aftur til ársins 1978 sem kalla mætti annus horribilis í sögu Sjálfstæðis­flokksins en þá gerðist það í fyrsta sinn að flokkurinn lenti utan ríkis­stjórnar á sama ári og hann missti meirihluta í borgar­stjórn.

Í kjölfarið lögðust flokks­menn í alvarlega sjálfs­skoðun, haldnir voru fjölmennir fundir þar sem hin vonda staða var rædd í þaula og forystu­menn sættu harðri gagnrýni fyrir opnum tjöldum.

Skipaðir voru starfs­hópar sem lögðust yfir málin og á grund­velli þeirrar vinnu sótti flokkurinn fram á nýjan leik og rétti úr kútnum.

Allt annað er uppi á tengnum nú og ljóst að vandræða­gangur í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka kostaði Sjálfstæðis­flokkinn mörg atkvæði í nýliðnum sveitar­stjórnar­kosningum (og líklega er flokkurinn ekki enn búinn að bíta úr nálinni með banka­söluna).

Hvarvetna tapaði flokkurinn fylgi og í Reykjavík var útkoman hin versta frá upphafi. Þar hlaut hann aðeins 24,5% atkvæða. Hið sama má segja um fylgis­tapið í borginni og á landsvísu: Málin eru ekki rædd opinskátt á vettvangi flokksins. Engir fundir, engir vinnu­hópar skipaðir.

Annað hvort er hinum djúpstæða vanda afneitað eða umræðan þögguð niður. Vart má á milli sjá hvort er alvarlegra.

Þeir sem lærðu latínu vita að hörmungar­árið er anni horribiles í fleirtölu.

Það er kannski viðeigandi nafngift á svipugöng Sjálfstæðis­flokksins undan­farin áratug og vandséð að núverandi formaður leiði flokkinn upp úr þeim táradal.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning