Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Séra Arnaldur hvetur Jón Baldvin til að „misbjóða ekki fleirum“ og hætta að „þrjósk­ast við“

Séra Arnaldur Máni Finnsson.
Séra Arnaldur Máni Finnsson.

Séra Arnaldur Máni Finnsson birtir grein í Morgun­blaðinu þar sem hann hvetur Jón Baldvin Hannibalsson fyrr­verandi ráðherra og sendi­herra til að setjast í helgan stein.

Arnaldur er sonur Elísabetar Þorgeirs­dóttur; hún steig fram í pistli í Morgun­blaðinu og gagnrýndi framgöngu Jóns Baldvin gagnvart þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar; er Elísabet ein þeirra kvenna sem lýst hafa kynnum sínum af Jóni Baldvin inn á MeToo-síðu sem sett var á laggirnar fyrir þremur árum síðan:

Jón Baldvin Hanni­bals­son

„Ég er son­ur konu sem var beitt kyn­ferðisof­beldi og hef­ur reynt að vinna sig út úr þeirri reynslu, meðal ann­ars með harðsnú­inni göfg­un til­finn­inga eins og reiði og sárs­auka, um langa hríð og viljað styðja önn­ur sem búa að erfiðri reynslu.

Það er henn­ar hlut­skipti, eins og margra sem þráðu að njóta sann­mæl­is á liðinni öld, þar sem kyn, kyn­hneigð, stétt eða önn­ur staða gat or­sakað jaðar­setn­ingu. Hún var hluti þjóðfé­lags­breyt­inga þar sem hin valda­lausu kölluðu eft­ir hinum heil­aga rétti til að vera upp­reist­ar mann­eskj­ur. Ég spyr þig: Get­ur þú ímyndað þér hvert hún sótti kraft­inn til að stíga fram, þrátt fyr­ir niður­brot og níðings­skap manns sem mis­beitti valdi í krafti stétt­ar og stöðu? Það var jú fyrst fyr­ir hálfri öld síðan en hann þrjósk­ast við það enn í dag.“

Bætir við:

„Þau sem standa nærri verða þolendur þess líka. Þekkjum það öll. Þolandi eða aðstandandi; gildir það ekki einu? Ég er á móti ofbeldi og stend með þolendum ofbeldis því reynslan mótar mann. Og því stíg ég fram hér.

Því fer fjarri að sá sem friðhelgi krefst leiti náðar. Hann smyr í andlit viðhlæjenda og játninga­bræðra spurningunni um það hvað sé að „að njóta sannmælis“. Þannig krefst hann samsektar þeirra sem útvega vettvang glæpa hans. Því býð ég örlítinn fróðleik þó hollráð verði engin þegin. Ofbeldinu er viðhaldið. Við þá sem velja sér opinberan vettvang með sjálfs­réttlætingar­svip til að útmála meintan fjölskyldu­harmleik, saklausum lesendum þessa fjöl­miðils til miska, segi ég: Misbjóðið ekki fleirum. Gangið til náða.

Vittu nú til Jón minn, sumt er ekki svara vert. Það ætti reynsl­an af því að klæm­ast við ung­meyj­ar að hafa kennt þér. Ég votta samúð mína öllu samferða­fólki í „ævintýrinu“ sem líf hins mikla skóla­manns og stjórn­vitrings hefur verið. Sem betur fer ráðum við því sjálf hvenær við stígum inn á það svið, hvaða hlutverk við tökum – ef við höfðum einhvern tíma tækifæri til þess – og hverju við höfnum. Við erum sjálfráða um það hvort, hvernig og hvenær ævintýri „hins mikla satýrikons“ lýkur í okkar eigin lífi. Lífið er ekki stríðs­völlur kappa. Völd og áhrif ekki náðin sjálf. Höfðingj­um forn­ald­ar reynd­ist erfitt að sjá á eft­ir áhrifa­valdi sínu og ját­ast und­ir það lög­mál að dóm­ur sög­unn­ar og æðri mátt­ar­valda er ekki í þeirra hönd­um. Þeir höfðu val um að setj­ast í helg­an stein. Ég hvet þig, hr. Jón Bald­vin Hanni­bals­son, til þess að láta á það reyna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning