Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

María Sigrún á RÚV er „innvígð og innmúruð í vinahóp Bjarna Ben og nánustu stuðningsmanna hans“

María Sigrún Hilmarsdóttir fréttakona á RÚV.
María Sigrún Hilm­ars­dóttir frétta­kona á RÚV.

Ólafur Arnarson, ritar áhuga­verðan pistil á Hringbraut.

Ólafur Arnarson.

Segir:

„Sjónvarps­frétta­konan geðþekka, María Sigrún Hilmars­dóttir hjá ríkis­sjónvarpinu, hefur blandað sér í átökin innan Sjálfstæðis­flokksins á þann hátt að yfir­stjórn ríkis­sjón­varpsins hlýtur að taka til alvarlegrar skoðunar. Stofnunin verður að standa fyrir utan átök innan einstakra flokka en því fer fjarri þegar skoðuð er „frétt“ Maríu Sigrúnar frá því í gær. Vert er að hafa í huga að hún er „innvígð og innmúruð“ í vinahóp Bjarna Benedikts­sonar og nánustu stuðnings­manna hans – eins og glöggt kemur fram í „frétt“ hennar.“

Áslaug Arna og Bjarni Ben á góðri stundu.

Bætir við:

„María Sigrún gerir mikið úr meintum árangri Bjarna og reynir að gera lítið úr fylgis­hruni flokksins í formannstíð hans – talar um að tal um fylgistap flokksins sé „innantómt“.

Það eru mikil tíðindi sé það skoðun frétta­stofu ríkis­sjón­varpsins að fylgis­hrun Sjálfstæðis­flokksins í formannstíð Bjarna sé „innantómt“ tal.

Ekki er við því að búast að þetta sé mat frétta­stofunnar en greini­lega er þetta einka­skoðun Maríu Sigrúnar úr innsta hring valda­hópsins í flokknum.“

Ennfremur:

„Í Alþingis­kosningunum 2007, í formannstíð Geirs Haarde, hlaut flokkurinn 36,6 prósent greiddra atkvæða. Í næstu kosningum árið 2009 féll fylgi flokksins niður í 23,7 prósent en þá hafði Bjarni Benediktsson tekið við formennskunni. Í kosningunum 2007 leiddi Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir lista Sjálfstæðis­flokksins í Suðvestur kjördæmi. Þá studdu 42,6 prósent kjósenda lista flokksins sem fékk 6 menn kjörna á þing. Undir forystu Bjarna í kosningunum 2009 var fylgið einungis 27,6 prósent í kjör­dæminu. Bjarni Benediktsson hefur leitt Sjálfstæðis­flokkinn í gegnum fimm Alþingis­kosningar sem formaður. Fylgi flokksins hefur í öllum tilvikum verið með því lakasta sem flokkurinn hefur náð í sögunni.“

Ólafur segir að „sjónvarps­frétta­konan hefði alveg mátt nefna þessar mikilvægu stað­reyndir í umfjöllun sinni. Hún valdi hins vegar að láta það ógert. Einhverjum þykir vafalaust ósann­gjarnt að bera saman niður­stöður kosninga árið 2007 og svo eftir hrunið sem varð árið 2008. Þá er rétt að líta á samanburð milli kosninga 2007, í formannstíð Geirs Haarde, og svo úrslit kosninganna í fyrra, haustið 2021 þegar fékk Sjálfstæðis­flokkurinn undir formennsku Bjarna einungis 24,4 prósent atkvæða. Þá voru liðin heil 13 ár frá hruni og engin sanngirni í því að afsaka sig lengur með orðunum „það varð hér hrun“, eins og Jóhanna Sigurðar­dóttir gerði gjarnan þegar hún var rökþrota í kappræðum.“

Hann færir í tal að „frá kosningunum 2009 til kosninganna í fyrra bætti Sjálfstæðis­flokkurinn einungis við sig núll komma sjö prósent fylgi. Það er nú allur árangurinn. Sennilega er það megin­skýring þess að æ fleiri flokks­menn í Sjálfstæðis­flokknum telja fullreynt með forystu Bjarna Benedikts­sonar og líta svo á að hann verði að víkja eigi flokkurinn að eiga sér endur­reisnar von. María Sigrún dregur það fram í „frétt“ sinni að Bjarni hafi langtum meira fylgi í sínu kjördæmi en Guðlaugur Þór í Reykjavík.

Hún hefði mátt láta þess getið að Sjálfstæðis­flokkurinn hefur alltaf haft mesta fylgi sitt í Suðvestur kjördæmi og þar á undan í forvera þess, Reykja­neskjördæmi. Þegar Þorgerður Katrín leiddi listann 2007 var fylgið 42,6 prósent en 30 prósent undir forystu Bjarna haustið 2021. Upp undir þriðja hvert atkvæði hefur tapast á þessum 12 árum. Þeir sem vilja fjalla um samanburð milli kjördæma verða að halda því til haga að sjálfstæðis­menn hafa flutt sig til Garða­bæjar, Seltjarnarness og fleiri staða í kjördæmi Bjarna á meðan vinstri sinnuðu fólki hefur fjölgað í Reykjavík. Það er staðreynd sem verður að horfast í augu við.“

Ólafi færir í tal að „ríkis­sjónvarpið hefur enn ekki fjallað um þá fléttu sem Bjarni Benediktsson og nánustu samstarfs­menn hans höfðu í undir­búningi og ætluðu að slengja fram á sjálfum lands­fundinum. Bjarni er orðinn dauð­þreyttur á stjórn­mála­vafstrinu og enda­lausum vonbrigðum með lélegt fylgi. Hann ætlaði hreinlega að draga sig í hlé á lands­fundinum um næstu helgi og gera tillögu um að Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir tæki við formennsku í flokknum, fyrsta konan í sögunni. Ótrúlegt en satt!“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir.

Hann segir einfald­lega að „metnaður Áslaugar er takmarka­laus en pólitískir hæfi­leikar hennar eru enn sem komið er takmarkaðir. Hugmyndin þykir því ekki bera vott um skarpa dómgreind Bjarna Benedikts­sonar heldur einkennast fremur af þreytu og löngun til að losna eftir langa og stranga vakt mikilla vonbrigða.

Verður Guð­laugur Þór Þórð­ar­son næsti for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins?

Guðlaugur Þór ruglar þessi áform Bjarna heldur betur og því er hlaupin talsverð kergja í ýmsa viku fyrir lands­fundinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning