Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bjarni búinn að vera – „Arnþrúður var gersamlega sjokkeruð“

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra mun tapa komandi formanns­kosningum í Sjálfstæðis­flokknum. Þetta kom fram á Útvarpi Sögu á dögunum. Þar sá Guðrún spákona fyrir endalok Bjarna þökk sé forboðnum kúnstum, kukli og dular­fulls pendúl. Arnþrúður Karls­dóttir þátta­stjórnandi var í áfalli þegar pendúllinn kvað sinn dóm.

Gagn­rýnandinn geðþekki, Jón Viðar Jónsson, greinir frá þessu galdra­máli á Facebook.  „Útvarp Saga klikkar ekki.  Ég var að hlusta áðan á part úr viðtali sem Arnþrúður útvarps­stýra átti við Guðrúnu spákonu (eða hvað á að kalla hana).  Sú var með pendúl sem „svaraði“ henni eftir því hvernig hann sveiflaðist aðspurður um eitt og annað en aðallega íslenska pólitík.  Og þar eru engin smátíðindi í vændum eftir því sem Guðrún og pendúllinn fullyrða.  Bjarni Ben mun nú í fyrsta lagi hverfa af formanns­stóli í Sjálfstæðis­flokknum og Áslaug Arna taka við af honum.  Þegar pendúll var spurður um Guðlaug Þór virtist hann bara dingla ósköp áhugaleysis­lega,“ lýsir Jón Viðar.

Pendúllinn var þó ekki hættur að sveiflast. „Allt verður vitlaust þegar Íslands­banka­skýrslan verður opinber, kvað pendúll og ekki batnar ástandið eftir því sem hinum furðulegu málum Íbúðar­lánasjóðs sem ég hef ekki enn náð að skilja nema mjög takmarkað, vindur fram.  Það fer sem sé allt á suðupunkt og á endanum tekur við einhverskonar þjóð­stjórn, þó ekki undir forystu Katrínar Jak.  Guðrún miðill talaði annars af svo lítilli virðingu um pólitískt siðferði íslenskra ráðamanna að á stundum var nánast eins og Jónas heitinn Kristjánsson, sá skarpi og skeleggi þjóðfélags­rýnir, væri genginn aftur – nema hann hafi verið með puttann á pendúlnum?  Svo sagði miðillinn/pendúllinn margt fleira sem ég gat ekki sett á mig – jú, eitt, kosningar verða ekki fyrr en næsta vor og þá mun Sigmundur nokkur Davíð jafnvel eiga endurkomu.  Og Bjarni Ben fær eitthvert gott jobb í Ameríku,“ lýsir Jón Viðar.

Jón Viðar telur allur líkur á því að Arnþrúður hafi trúað hverju orði á þessari galdra­messu. Orð hennar um þetta hafi væri samkvæmis­leikur hafi ekki verið trúverðug. „Eins og þið heyrið þá er Útvarp Saga með þetta og ekki skrýtið þó stöðin eigi erfitt með að harka út styrki frá hinu opinbera meðan aðrar eins véfréttir mæla þar málum.  Og ég tek fram að Arnþrúður var gersam­lega sjokkeruð og þráspurði um allt mögulegt, hverjir yrðu td. ráðherrar sem pendúllinn virtist vita lítið um.  Svo sagði hún

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning