InnlentVarað við mikilli ölduhæð: „Hvatt til aðgæslu við ströndina þar sem sjór gæti gengið á land“ Í færslu Landhelgisgæslunnar á samfélagsmiðlinum Facebook er varað við mikilli ölduhæð – norður og norðaustur af landinu – samhliða afar hvössum vindi fyrir norðan á morgun og mánudag. Ásamt þessari miklu ölduhæð er ljóst að það má búast við mjög miklu brimi við ströndina á norðausturhorninu: „Nú er stækkandi straumur; og þar sem gera má ráð fyrir talsverðum áhlaðanda við...
InnlentMagga missti af tengifluginu: „Er þetta happadrætti að komast um borð í vél Icelandair?“ Ritstjórinn á Fréttin.is – Margrét Friðriksdóttir – getur ekki ferðast til Úkraínu til að fylgjast með atkvæðagreiðslum um sameiningu nokkurra úkraínskra héraða í nánd við Rússland. Þetta staðfestir Margét í samtali við vefmiðilinn mbl.is. Kveðst Margŕét hafa misst af tengiflugi til Rússlands, eftir að henni var vísað úr flugvél Icelandair í gær fyrir að neita að nota grímu. Hún er...
InnlentRauð veðurviðvörun á Austurlandi – Fólk beðið um að tryggja lausamuni Veðurstofa Íslands hefur gefið úr rauða veðurviðvörun fyrir Austurland: „Norðvestan rok eða ofsaveður, 25-33 m/s með vindhviðum yfir 45 m/s, hvassast sunnantil. Miklar líkur á foktjóni og grjótfoki og fólk er hvatt til þess að tryggja lausamuni. Ekkert ferðaveður á meðan veðrið gengur yfir.“ Vegagerðin hefur gefið út að óvissustig ríki á Suðaustur- og Austurlandi og búast megi við lokunum...
InnlentBrynjar þreklaus á dansiballi: „Ég ætlaði að draga dómsmálaráherra með mér sem hélt nú ekki“ Á nýjustu fésbókarfærslu Brynjar Níelssonar greinir hann frá reynslu sinni á skemmtun sem haldin var í gærkveldi sem hluti að Lagadeginum. Hafði Brynjar reynt að draga með sér vin sinn Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra en sá hafi ekki nennt: „Ég ætlaði að draga dómsmálaráherra með mér sem hélt nú ekki. Hann væri nú kaffærður af lögfræðingum allan daginn í ráðuneytinu og...
InnlentOrðspor Íslands í Namibíu í rjúkandi rúst Þróunarsamvinnustofnun Íslands eða ÞSSÍ starfaði frá 1981 til 2015 þegar hún var lögð niður og verkefni hennar sett undir Utanríkisráðuneytið. Meðal verkefna sem stofnunin stóð fyrir var þróunarstarf í Namibíu. Auk þess að útvega mannskap til hafrannsókna átti stofnunin þátt í að koma sjómannaskóla á laggirnar í afríkuríkinu en hóf hann starfsemi árið 1994. Í skýrslu sem gerð var fyrir...
InnlentÍ góðum málum – Í slæmum málum Í góðum málum Tannlæknirinn Heimir Hallgrímsson, sem er í guðatölu hér á landi eftir að hafa aðstoðað Lars Lagerbäck við að koma karlaliði Íslands á Evrópumótið og síðan komið liðinu á Heimsmeistaramótið fyrir nokkrum árum, er heldur betur í góðum málum. Á dögunum var tilkynnt að Heimir hafi verið ráðinn aðalþjálfari karlaliðs Jamaíka í knattspyrnu en liðið er í 62...
InnlentSorgarsaga stúlknanna að Laugalandi – „Mér líður illa hér og ég er mjög hrædd við Ingjald“ Nærri 90 prósent þeirra unglingsstúlkna sem vistaðar voru að meðferðarheimilinu Laugalandi, áður Varpholti, upplifðu ofbeldi af hálfu Ingjalds Arnþórssonar forstöðumanns. Yfirgnæfandi meirihluti stúlknanna, nánar tiltekið 88 prósent þeirra eða 30 stúlkur af 34, upplifði andlegt ofbeldi af hans hálfu og um helmingur þeirra ýmist varð fyrir eða varð vitni að líkamlegu ofbeldi á meðferðarheimilinu. Í ágústmánuði 2007 var fyrst fjallað...
InnlentNorðanfiskur og Fisherman ehf. brutu gegn lögum – Ekkert vistvænt við „vistvænt sjóeldi“ Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að Norðanfiskur og Fisherman ehf. höfðu brotið gegn lögum með villandi markaðsetningu þegar fyrirtækin höfðu merkt vörur sínar með fullyrðingum um vistvænt og sjálfbært laxeldi. Neytendasamtökin greindu frá. Fyrirtækjunum var gert að gera svara fyrir hvort einhverjar vottanir lægju að baki fullyrðingunum. Norðanfiskur benti á að birgjar þeirra skilgreindu sig sjálfir sem vistvæna. Fisherman ehf....
InnlentFólki gert að gera ráðstafanir og huga að lausamunum – Óveður í aðsigi Haustlægðirnar eru byrjaðar að gera vart við sig og búast má við vaxandi vindi í dag og í kvöld og nótt verður víða stormur. Er fólki bent á að huga að garðhúsgögnum og öðrum lausamunum til að forðast tjón. Samkvæmt Veðurstofu Íslands má reikna með að hvassast verði norðvestanlands. Þar segir: „Vaxandi suðvestanátt, 10-18 m/s um hádegi og 15-23 undir...
InnlentÞorsteinn Eggertsson var eitt sinn ritskoðaður: „Ég hef aldrei samið texta um gulan þorsk“ Þorsteinn Eggertsson hefur samið margan þekktan lagatextann. Í viðtali við Mannlífið með Reyni Traustasyni talar hann meðal annars um upphaf ferilsins sem hófst í Héraðsskólanum á Laugavatni, tímann þegar hann var Elvis Preysley Íslands, prakkarastrikin tengd bréfaskriftum, poppmessunni þegar hann hitti fínu frúna og hann segir hvað er á bak við nokkra þekkta lagatexta. Þorsteinn Eggertsson textahöfundur er Keflvíkingur. „Ég...
InnlentÆvareiður ökumaður ógnaði gangandi vegfaranda með priki Töluvert var um umferðalaga- og fíkniefnabrot seinnipartinn í gær og nótt samkvæmt dagbók lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Á áttunda tímanum í gærkveldi barst tilkynning til lögreglu um götuslagsmál milli tveggja ævareiðra manna í austurhluta borgarinnar. Ökumaður hafði stöðvað bifreið sína þegar gangandi vegfarandi gekk í veg fyrir hana. Ökumaðurinn taldi rétt til að stíga út úr bifreið sinni og ræða við...
Innlent„Höfum við tekið þá ákvörðun að afþakka heimsóknir skólabarna á vegum skólans á aðventunni“ Laugarneskirkja hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kirkjan hefur ákveðið að afþakka heimsóknir skólabarna á vegum skólans á aðventunni sem er í vændum. Tilkynning frá Laugarneskirkju: „Um áraraðir hafa heimsóknir skólabarna í Laugarneskirkju verið fastur liður í aðventuhaldi og jólaundirbúningi bæði kirkjunnar og skólans. Á seinni árum hefur tekið að gæta andstöðu við þessar heimsóknir meðal sumra foreldra og...