Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

„Höfum við tekið þá ákvörðun að afþakka heimsóknir skólabarna á vegum skólans á aðventunni“

Séra Davíð Þór Jónsson er í framboði
Séra Davíð Þór Jónsson er í fram­boði

Laugar­neskirkja hefur sent frá sér frétta­tilkynningu þar sem kirkjan hefur ákveðið að afþakka heim­sóknir skóla­barna á vegum skólans á aðventunni sem er í vændum.

Tilkynning frá Laugar­neskirkju:

„Um áraraðir hafa heim­sóknir skóla­barna í Laugar­neskirkju verið fastur liður í aðventu­haldi og jóla­undir­búningi bæði kirkjunnar og skólans.

Á seinni árum hefur tekið að gæta andstöðu við þessar heim­sóknir meðal sumra foreldra og hafa börn verið tekin út úr hópnum á meðan skóla­systkin þeirra hafa komið í heimsókn til okkar. Okkur í Laugar­neskirkju hefur sárnað eilítið þessi tortryggni foreldra í garð þessara heimsókna, enda einungis um að ræða vettvangs­ferð í samfélags­fræðslu.

Kirkjan er hluti af samfélagi okkar – hvað sem hverjum kann að finnast um það.

Ferðir þessar hafa verið að frumkvæði skólans og að öllu leyti á hans forsendum. Þeir kennarar og skóla­stjórnendur sem fylgt hafa börnunum geta vottað um að þar á sér ekkert stað sem kalla má trúboð eða trúar­iðkun, aðeins fræðsla.

Dagskrá heim­sóknanna hefur verið búin til í skólanum, ekki kirkjunni. Þrátt fyrir þetta hefur andstaðan við þessar heim­sóknir farið vaxandi ár frá ári og valdið ágreiningi á milli þeirra sem vilja halda í þessa hefð og hinna sem vilja að hún leggist af.

Við í Laugar­neskirkju viljum ekki vera í þeirri stöðu að valda ágreiningi í nærsamfélagi okkar. Við viljum ekki heldur vera þess valdandi að börn séu útilokuð frá þátttöku í hluta skóla­starfsins. Við viljum að um okkar góða starf ríki sátt og friður.

Því höfum við tekið þá ákvörðun að afþakka heim­sóknir skóla­barna á vegum skólans á aðventunni sem er í vændum.

Okkur er óljúft að taka þessa ákvörðun, en til að kirkjan geti sinnt starfi sínu í næði viljum við forðast að um hluta þess standi styr sem þessi – jafnvel þótt hann sé að okkar mati ástæðu­laus og óþarfur.

Þess í stað verður boðið upp á dagskrá fyrir skólabörn í Laugar­neskirkju alla fyrstu viku aðventunnar á milli kl. 3 og 5. Börn á grunn­skólaaldri eru velkomin í kirkjuna á þeim tíma og við munum gera okkur glaðan dag, lesa jóla­guðspjallið, syngja jólalög og eiga góða stund saman við bæn og tilbeiðslu.

Hvetjum við foreldra til að nýta sér það og kíkja í heimsókn til okkar.

Í Guðs friði, f.h. Laugar­neskirkju Sr. Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugar­dals­prestakalli.

„Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er Guðs ríki.“ (Lúk 18.16)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning