Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Sorgarsaga stúlknanna að Laugalandi – „Mér líður illa hér og ég er mjög hrædd við Ingjald“

Nærri 90 prósent þeirra unglings­stúlkna sem vistaðar voru að meðferðar­heimilinu Lauga­landi, áður Varpholti, upplifðu ofbeldi af hálfu Ingjalds Arnþórs­sonar forstöðu­manns. Yfir­gnæfandi meirihluti stúlknanna, nánar tiltekið 88 prósent þeirra eða 30 stúlkur af 34, upplifði andlegt ofbeldi af hans hálfu og um helmingur þeirra ýmist varð fyrir eða varð vitni að líkamlegu ofbeldi á meðferðar­heimilinu.

Í ágúst­mánuði 2007 var fyrst fjallað um ásakanir á hendur Ingjaldi þar sem hann var í DV sakaður um að bæta óeðli­legum aðferðum í samskiptum sínum við sín eigin börn, fyrrum eiginkonu sína, systur hans og skjólstæðingana að Lauga­landi. Blaðið fjallaði í fjórgang um meint andlegt og líkamlegt ofbeldi forstöðu­mannsins, sem sjálfur hafnaði öllum ásökunum á sínum tíma og naut ótvíræðs stuðnings Braga Guðbrands­sonar, þáverandi forstjóra Barna­verndar­stofu.

Hluti umfjöll­unar DV, í ágúst 2007.

Tilefni skrifa DV á sínum tíma var fjöldi ábendinga til Umboðs­manns barna, sem bárust embættinu árið 2001, um ofbeldi og illa meðferð skjólstæðinga að Lauga­landi. Tilkynningarnar höfðu þangað borist bæði frá mörgum stúlkum sem ýmist dvöldu þar og eða frá stúlkum og foreldrum þeirra sem það höfðu gert. Stúlkurnar lýstu því að þær væru kallaðar illum nöfnum, meðal annars druslur og hórur, á hverjum degi og þær sagðar geðveikar. Um leið og ný stúlka hafi komið inn á heimilið hafi allt verið gert til að brjóta hana niður andlega. Þær lýstu því að lagðar hefðu verið á þær hendur og þeim hent niður stiga.

Umboðs­maður barna sendi Braga forstjóra strax minnis­blað þar sem fram komu áhyggjur af fjölmargra mann­réttinda­brota af hálfu Ingjalds forstöðu­mann og „nauðsyn þess að eitthvað verði gert í sambandi við ástandið á Lauga­landi“. Þetta er meðal þess sem finna má í minnis­blaði umboðs­manns barna, dagsett 15.10.2001.

Minnis­blað Umboðs­manns barna til Barna­verndar­stofu, árið 2001: „[Þær] hafi verið beittar andlegu ofbeldi. […] þó einnig líkamlegu ofbeldi og svo er um fleiri að þeirra sögn.“Svo virð­ist sem ásak­an­irn­ar sem voru sett­ar fram hafi lítt eða ekki ver­ið rann­sak­að­ar af hálfu Barna­vernd­ar­stofu og Bragi forstjóri lýsti fullu trausti á Ingjald í sérstakri yfir­lýsingu sem birt var í DV á sínum tíma. 

Sjá einnig: Hópur kvenna af meðferðar­heimilinu Lauga­landi krefst rann­sóknar: „Hjálp“

Beitti sér hart

Bragi, þá­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, lagð­ist þungt á rit­stjóra og blaða­mann DV vegna um­fjöll­un­ar um meint of­beldi af hálfu Ingj­alds. Þá beitti Bragi sér fyr­ir því að fé­lags­mála­ráðu­neyt­ið kann­aði ekki ásak­an­ir á hend­ur Ingj­aldi og mælti með að ráð­herra tjáði sig ekki um mál­ið.

Óhætt er að segja að Bragi hafi beitt sér af hörku í þágu Ingjalds þegar fjallað var um ásakanir á hendur honum í DV árið 2007. Hann sagði að tilgangur skrifanna hafi verið að „svipta Ingjald ærunni og skaða það merka uppeldis­starf sem unnið hefur verið undan­farinn áratug af þeim hjónum og samstarfs­fólki þeirra. Barna­verndar­stofa fordæmir umfjöllun DV í þessu máli og vísar á bug þeim rakalausu full­yrðingum og ósannindum sem þar er að finna. Þannig hefur ekkert tilefni orðið til athugunar á meintum brotum Ingjalds af hálfu Barna­verndar Eyja­fjarðar, hvorki gagnvart eigin börnum né unglingum á meðferðar­heimilinu. Óhugsandi er að þeim uppeldis­aðferðum og ofbeldi sem lýst er í greininni sé eða hafi verið beitt á Lauga­landi,“ sagði Bragi í vörnum fyrir Ingjald.

Líkt og DV greindi frá árið 2007, og síðar hefur fengist staðfest, var ítrekað kvartað und­an fram­göngu Ingj­alds, sem for­stöðu­manns Varp­holts og Lauga­lands til Barna­vernd­ar­stofu. Um­boðs­mað­ur barna fékk fjölda ábend­inga um of­beldi og illa með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­un­um ár­ið 2001, bæði frá stúlk­um sem þar dvöldu eða höfðu dval­ið og frá for­eldr­um stúlknanna. Ingj­ald­ur starf­aði sem for­stöðu­mað­ur Lauga­lands allt til árs­ins 2007 og hefur alla tíð hafnað öllum ásökunum.

Nið­ur­brots­heim­ilið að Lauga­landi. Ingj­ald­ur starf­aði þar sem for­stöðu­maður allt til árs­ins 2007 og hefur alla tíð hafnað ásök­unum.

Góður andi í húsinu?

Meðferðar­heimilið Varpholt, sem síðar var flutt að Lauga­landi, hóf starfsemi í Eyjafirði sumarið 1997 undir stjórn forstöðu­mannsins Ingjalds Arnþórs­sonar. Heimilið var rekið sem fjölskyldu­heimili og bjuggu Ingjaldur og kona hans, Áslaug Brynjars­dóttir, á heimilinu með tveimur börnum sínum ásamt skjólstæðingum.

Kvörtun til Barna­vernd­ar­stofu þar sem 14 ára vist­stúlka segir hrædd við Ingjald.

Í samtali við DV á sínum tíma undraðist Ingjaldur mjög ásakanirnar. Hann hafnaði því algjör­lega að hafa beitt skjólstæðinga sína líkamlegu ofbeldi. „Ég kannast ekki við að hafa nokkurn tímann lýst ofbeldis­aðferðum fyrir nokkrum manni. Það er útilokað. Ég kann ekki slíkar aðferðir og get því hvorki hafa beitt þeim né túlkað þær fyrir aðra. Þessu hafna ég alfarið og þannig hefur aldrei verið unnið hérna,“ sagði Ingjaldur.

Mörgum mánuðum eftir að minnis­blað Umboðs­manns barna barst Barna­verndar­stofu barst embættinu svarbréf þar sem fram kemur „að starfið virðist ganga mjög vel, andinn í húsinu sé góður og stúlkurnar í góðri vinnslu. Vilji meðferðar­aðila til að taka athuga­semdum og gera betur ef unnt er sé ótvíræður. Stúlkurnar uni sér vel á Lauga­landi, þær taki framförum og megi vera óhræddar að taka upp mál sem hvíli á þeim gagnvart meðferðar­aðilum því ekki verði betur séð en að þeim verði vel tekið.“

Sjá einnig: Lýsa sorglegu ofbeldi og niður­broti á meðferðar­heimilinu Lauga­landi: „Ég var komin í helvíti“

„Hjálp“

Líkt og Mannlíf greindi frá í janúar í fyrra tók tugur kvenna, sem dvaldi á meðferðar­heimilinu Lauga­landi, höndum saman og fór fram á að farið yrði ofan í saumana á starfsemi heimilisins. Þær lýstu erfiðri og sársauka­fullri dvöl og töldu að frásögnum þeirra hafi verið sópað undir teppi af hálfu barna­verndar­yfirvalda.

Harpa Dögg Sævars­dóttir, ein kvennanna, óskaði eftir því að kafað yrði ofan í kjölinn á starfsemi heimilisins.  „Við erum einfald­lega að biðja um hjálp. Við viljum skila skömminni og fá það viðurkennt hvernig var komið fram við okkur. Fá afsökunar­beiðni og að fólkið þurfi að svara fyrir hvað það gerði. Þá vonumst við til að komið verði á betra eftirliti með svona heimilum og að hlustað verði á skjólstæðinga sem koma fram með marbletti, áverka­vottorð og sjúkra­skýrslur. Vonandi getum við fengið ríkis­stjórnina með okkur í lið,“ sagði Harpa Dögg.

Gígja Skúla­dóttir dvaldi líka á Lauga­landi og hún lýsti því hvernig hrollur fór um hana þegar hún sá frétt af lokun meðferðar­heimilisins og mynd birtist af staðnum. „Frá 14 til 16 ára aldri eyddi ég verstu árum lífs míns á stað þar sem andlegt og líkamlegt ofbeldi fékk að viðgangast. Undan­farið hef ég verið að rifja þennan tíma sem ég var algjör­lega búin að loka á, koma ,,útur úr skápnum” með þessa reynslu sem hefur fylgt mikil skömm,“ sagði Gígja og heldur áfram:

„Eftir stendur sú sannfæring mín að Barna­verndar­stofa brást okkur stelpunum algjör­lega. Þrátt fyrir tilkynningar um ofbeldi, áverka­vottorð og krafa frá umboðs­manni barna að rannsaka heimilið varði Bragi Guðbrandsson forstöðu­manninn opinber­lega, það var ekkert að og ásakanir um ofbeldi ættu ekki við rök að styðast (að hans mati). Málinu var sópað undir teppið og er þar ennþá.“

Harpa Særós

Harpa Særós Magnúsdóttir dvaldi líka á Lauga­landi. „Ég átti ekki von á öðru en þetta væri góður staður. Aldrei grunaði mig það sem var í vændum. Að mig myndi langa að jörðu gleypti mig. Ég var kominn í helvíti. Ég var bara barn,“ sagði Harpa Særós.

Sársaukafull dvöl

„Ég kom þaðan mölbrotin,“ segir Teresa Dröfn Freys­dóttir Njarðvík um vist sín á meðferðar­heimilinu Lauga­landi á unga aldri. Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá hefur stór hópur kvenna tekið höndum saman og stigið fram með ofbeldis­sögur gegn þeim meðan þær dvöldu ungar á meðferðar­heimilinu að Lauga­landi í Eyjafirði. Heimilinu var lokað um áramót og konurnar fara nú fram á raddir þeirra séu teknar alvarlega af yfir­völdum. Konurnar lýsa erfiðri og sársauka­fullri dvöl og telja að frásögnum þeirra hafi verið sópað undir teppi af hálfu barna­verndar­yfirvalda fram til þessa.

Stundin tók svo undir umfjöllum Mannlífs með ítarlegum hætti þar sem sex konur úr hópnum stigu fram með sögur sínar sem snúa að meintu ofbeldi þáverandi forstöðu­manns meðferðar­heimilisins, Ingjaldi Arnþórs­syni.

Viku síðar fundaði Ásmundur Daði Einarsson, barna- og félagsmála­ráðherra, með kvenna­hópnum sem sakar fyrrum forstöðu­mann meðferðar­heimilisins að Lauga­landi, Ingjald , um andlegt og líkamlegt ofbeldi. Konurnar vonuðu að nú yrði loksins hlustað á þær.

„Ég var bara barn“

„Ég var varla komin inn úr dyrunum á Lauga­landi þegar ofbeldið byrjaði. Tónninn var mjög skýr og sleginn á fyrsta degi. Ekkert varð aftur eins. Ég kom þaðan mölbrotin. Ég hef aldrei náð aftur almennilegu sambandi við fjöl­skyldu mína, aldrei náð aftur sjálfs­trausti eftir allt niður­rifið þar og get ómögulega treyst fólki, hvort sem það er venjulegt fólk eða aðilar sem eiga að hjálpa,“ sagði Teresa og bætti við:

„Ég vil að barna­verndar­nefndirnar viðurkenni að starfs­fólk þeirra hafi ekki
fylgst nógu vel með meðferðar­heimilinu og í raun þaggað niður það sem þar gekk á. Ég vil almenna viðurkenningu og afsökunar­beiðni. Ég er enn að glíma við afleiðingar þess að hafa lent á þessu heimili og ég var í mörg ár að vinna mig upp úr verstu vanlíðaninni. Ég þjáist af áfalla­streitu­röskun og vistin á Lauga­landi á stóran þátt í henni. Ég fæ enn martraðir sem snúast um að ég sé læst þarna inni gegn vilja mínum.“

Brynja Skúla­dóttir er ein þeirra sem var vistuð á Lauga­landi en hún var fjórtán ára gömul þegar hún var vistuð á meðferðarheimilnu. Hún fann strax að þar var engin meðferð í gangi heldur eingöngu boðið upp á niðurbrot þeirra skjólstæðinga sem á heimilinu voru. „Ég var ekki neikvæð þegar mér var sagt að ég yrði send þangað. Líf mitt hafði verið mjög erfitt. Þannig að þegar mér var sagt að ég færi á meðferðar­heimili úti á landi var mér létt því ég hélt að ég væri að fá þá aðstoð sem ég þurfti á þessum tíma. Ég áttaði mig á því fyrsta daginn að þarna var ekki verið að bjóða upp á meðferð heldur niðurbrot. Fyrstu dagarnir voru skelfi­legir og niður­brotið hófst strax,“ sagði Brynja.

Nokkrum mánuðum eftir að Brynja kom á meðferðarheimllið kom Gígja, tvíbura­systir hennar, þangað líka. „Frá fyrsta degi áttaði ég mig á að þetta var staður þar sem ofríki forstöðu­mannsins var algjört, þar sem ég var algjör­lega valdalaus. Ingjaldur lagði sig allan fram við að berja úr mér allan mótþróa og uppreisn. Ég veit núna að þetta var útpælt ofbeldi. Sú minning er þó sterkust þegar ég var 14 eða 15 ára gömul og þráði ekkert meira en að deyja. Ég bað Guð á hverju kvöldi að leyfa mér að sofna og vakna ekki aftur. Ég óttaðist mest að þurfa að vera þarna til 18 ára aldurs“ sagði Gígja í samtali við Stundina.

Kolbrún Þorsteinssdóttir lýsir einnig erfiðri og sársaukafulltri dvöl á meðferðar­heimilinu. „Ég man mjög vel eftir fyrsta deginum mínum þarna. Mér fannst stemningin á staðnum mjög skrítin. Þetta var upphafið að versta tímabili lífs míns sem litaðist af ótta, niður­lægingu og algerri undir­gefni. Ég var hrædd hvern einasta dag meðan ég var þarna, upplifði mikið vonleysi. Vanlíðanin var mér næstum um megn,“ segir Kolbrún og heldur áfram:

„Ég er búin að vera að reyna að safna kjarki í mörg ár til að stíga fram og segja frá því sem ég upplifði á meðferðar­heimilunum Varpholti og Lauga­landi þegar ég var unglingur. Ég vissi alltaf að ég þyrfti að segja frá því sem gerðist.“

Dagný Rut Magnúsdóttir vonar að barna­verndar­yfirvöld hlusti á frásagnir þeirra kvenna sem voru vistaðar að Lauga­landi. „Það er frelsi í því að skila skömminni af því að ég er búin að sitja ein með þessa vanlíðan alla tíð. Ég var bara barn og átti þetta ekki skilið. Orð lýsa því ekki nógu vel hvernig mér leið þarna. Þetta var hræðilegur tími,“ sagði Dagný Rut.

Haukur bróðir

Í ágúst­mánuði árið 2007 varð mikil umræða um málefni Ingjalds og Lauga­lands. Upphafið að þeim má rekja til þess að Haukur Arnþórsson, bróðir Ingjalds, steig fram í DV og hafði áhyggjur af framgöngu bróður síns í garð bæði Áslaugar Brynjars­dóttur, eiginkonu hans en einnig vegna lýsinga sem Haukur sagði að Ingjaldur hefði haft uppi um meðferð á stúlkunum á Lauga­landi.

Í DV á þessum tíma var meðal annars fjallað um persónuleg fjölskyldumál Ingjalds og Áslaugar og um rekstur meðferðar­heimilisins að Lauga­landi. Lýsingar Hauks, bróður Ingjalds, komu þar fram og haft eftir honum að að Ingjaldur hefði lýst því að beita þyrfti stúlkurnar sem dvöldu í Varpholti og síðar Lauga­landi líkamlegu ofbeldi. Sagði Haukur að Ingjaldur hefði lýst fyrir honum að hann tæki stúlkurnar meðal annars hálstaki og drægi þær berfættar eftir malarvegi, þar til þær létu undan vilja hans.

Í DV var fjallað um meint ofbeldi Ingjalds á hendur systur hans og sömuleiðis um ýmsar ávirðingar á hendur Ingjaldi er snúa að hans eigin börnum, sem og Áslaugu eiginkonu hans. Augljóst er á umfjölluninni á þessum tíma að hún er byggð á frásögn og áhyggjum Hauks af framgöngu bróður síns. Í blaðinu er rætt við Hauk sem tjáir sig um hið meinta ofbeldi bróður síns, sem í dag hefur fengist staðfest eftir að kafað var ofan í starfsemina og rætt við fjölda stúlkna sem þar dvöldu.

Ingjaldur og Áslaug eiginkona hans kærðu bæði Hauk og blaðamann DV vegna skrifanna. Í héraðs­dómi var blaða­maðurinn dæmdur en Haukur sýknaður með þeim rökum að hann hafi ekki fengið viðtalið sent til sín til yfir­lestrar og þannig ekki samþykkt það sérstak­lega.

Ingj­aldur Arn­þórs­son.

Í samtali við Stundina sagðist Haukur að hann hafi, eftir að hann steig fram í DV, ekki skipt sér frekar af málum bróður síns, málið hafi á sínum tíma verið mjög erfitt fyrir fjöl­skylduna. „Ég hef hins vegar heyrt frá þessum stelpum síðar og þær hafa þakkað mér fyrir og sagt að ég hafi verið sá eini sem hafi haft grun um hvað var þarna á ferðinni og verið tilbúinn til að stíga fram.“

Kolsvört skýrsla

Loksins varar hlustað á stúlkurnar. Ásmundur Daði ráðherra fól Gæða- og eftirlits­stofnun velferðar­mála (GEV) „að kanna hvort og þá í hvaða mæli börn, sem vistuð voru á meðferðar­heimilinu Varpholti/Lauga­landi á árunum 1997 til 2007, hafi sætt illri meðferð, andlegu eða líkamlegu ofbeldi meðan á dvöl þeirra stóð“. Nefnd, skipuð fjórum sérfræðingum með þekkingu á rann­sóknum, barna­vernd og áföllum vann að úttektinni og skilaði á dögunum kolsvartri skýrslu um meðferðar­starfið að Lauga­landi.

Í skýrslunni kemur fram að mikill meirihluti fyrrum vistbarna segist hafa upplifað andlegt ofbeldi, einu sinni eða oftar á meðferðar­tímanum, eða 30 af 34 einstaklingum. Voru þessar frásagnir oftast af ótta­stjórnun, harðræði eða niður­broti, aðallega af hendi forstöðu­manns en einnig forstöðu­konu. Margir viðmælendur sögðu frá fleiri atvikum en einu. Samtals 27 úr viðmælenda­hópnum greindu frá atvikum sem fela í sér einhvers konar ótta­stjórnun eða harðræði af hendi forstöðu­aðila.

Alls 20 vistbörn af 34 töluðu um móttökurnar þegar þau komu fyrst á Laugaland og 12 lýstu neikvæðri upplifun. Alls 14 vistbörn af 34 sögðust hafa verið beitt líkamlegu ofbeldi. Í frásögnum 12 þeirra er forstöðu­maðurinn tilgreindur gerandi, en tvær stúlkur tilgreina forstöðu­konuna. Til viðbótar sögðust 11 hafa orðið vitni að því að líkamlegu ofbeldi hafi verið beitt af hálfu forstöðu­manns.

Alls 10 vistbörn af 34 kvörtuðu yfir að símtöl hafi verið hleruð, sem hafi gert það að verkum að þau hafi ekki geta talað eins frjáls­lega og þau hefðu viljað. Alls 13 vistbörn af 34 töluðu um að hafa upplifað reglur um fatnað og eigur á neikvæðan hátt og jafnframt að hafa ekki mátt hlusta á þá tónlist sem þau vildu. Þá hafi verið gerðar athuga­semdir við útlit þeirra og ein stúlka lýsir því að hafa þurft að láta klippa og aflita á sér hárið gegn vilja sínum.

Alls 9 vistbörn af 34 sögðust hafa reynt að kvarta á einhverjum tíma­punkti við
barna­verndar­starfsmann eða Barna­verndar­stofu og upplifðu að það hefði engu breytt.

Helstu niður­stöður Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála um meðferðar­heimilið í Varpholti og á Lauga­landi árin 1997-2007:

  • Miðað við fyrir­liggjandi upplýsingar mátti greina að hópurinn sem kom til dvalar á meðferðar­heimilinu að Varpholti/Lauga­landi á árunum 1997-2007 hafði ólíkan bakgrunn og að vandi barnanna var oft og tíðum fjölþættur og þarfirnar flóknar.
  • Sálfræði­þjónustu fyrir börnin á meðferðar­heimilinu var ábótavant og að ekki hafi verið brugðist á fullnægjandi hátt við ákalli um að hún yrði aukin til að mæta þörfum skjólstæðinganna.
  • Þegar ljóst varð hve algengt það var að skjólstæðingar heimilisins hefðu orðið fyrir áfalli og ofbeldi og glímdu við afleiðingar þess, áður en dvölin hófst, hefði þurft að mæta því á mark­vissari hátt og gefa vinnu með afleiðingarnar mun meira rými í meðferðar­starfinu.
  • Yfir­gnæfandi meirihluti fyrrum vistbarna, er viðtölin náðu til, upplifðu andlegt ofbeldi við dvölina í Varpholti og á Lauga­landi, sem lýsti sér í ótta­stjórn, harðræði og niður­broti. Sterkar vísbendingar eru um að alvarlegu andlegu ofbeldi hafi verið beitt með kerfis­bundnum hætti. Frásagnir eru frá um helmingi fyrrum vistbarna, sem viðtöl voru tekin við, af líkamlegu ofbeldi og áreitni og önnur börn urðu vitni að slíku.
  • Eftirlits­skylda barna­verndar­yfirvalda brást að því leyti að þau hefðu átt að bregðast við ákalli um aukna geðheil­brigðis­þjónustu, hefðu átt að skerast í leikinn þegar ljóst var hve mikið álag hvíldi á starfs­fólki meðferðar­heimilisins og að skoðun á dagbókum og fundar­gerðar­bókum hefði átt að vekja grun­semdir um neikvæð viðhorf í garð vistbarna og gefa tilefni til að kanna hvort þau endur­spegluðust í framkomu við þau.
  • Á þessum tíma, er athugunin nær til, var til gagnreynd þekking um afleiðingar áfalla í æsku. Nokkuð ljóst er að á þeim tíma hafði sú faglega þekking ekki verið innleidd í meðferðar­úrræði Barna­verndar­stofu á meðferðar­heimilinu í Varpholti og á Lauga­landi.

Í skýrslunni má finna frekari lýsingar stúlknanna að Lauga­landi og svör forstöðu­fólks meðferðar­heimilisins. Hana má í heild sinni lesa hér.

Meðferðar­heimilið að Lauga­landi:
Sérhæft fyrir stúlkur með hegðunar­vanda Meðferðar­heimili var rekið að Lauga­landi síðan
í september 2000 en var áður í Varpholti í Hörg­árbyggð frá stofnun 1997. Það var rekið sem fjölskyldu­heimili og bjuggu hjónin þar ásamt tveimur börnum sínum og þeim unglingum sem þar voru vistaðir hverju sinni.

Að Lauga­landi var rekið meðferðar­úrræði fyrir unglinga á aldrinum 13 til 18 ára með fjölþættan hegðunar­vanda. Gert var ráð fyrir að þar vistist að jafnaði sex til átta unglingar í einu og skapaðist sú hefð að vista einungis stúlkur á staðnum.

For­stöðu­hjónin að Lauga­landi.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning