Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lýsa sorglegu ofbeldi og niðurbroti á meðferðarheimilinu Laugalandi: „Ég var komin í helvíti“

Lýsa sorglegu ofbeldi og niðurbroti á meðferðarheimilinu Laugalandi: „Ég var komin í helvíti“

„Ég kom þaðan möl­brotin,“ segir Teresa Dröfn Freys­dóttir Njarðvík um vist sín á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi á unga aldri. Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá hefur stór hópur kvenna tekið höndum saman og stigið fram með ofbeld­is­sögur gegn þeim meðan þær dvöldu ungar á með­ferð­ar­heim­il­inu að Lauga­landi í Eyja­firði. Heim­il­inu var lokað um ára­mót og kon­urnar fara nú fram á raddir þeirra séu teknar alvar­lega af yfir­völdum. Konurnar lýsa erf­iðri og sárs­auka­fullri dvöl og telja að frá­sögnum þeirra hafi verið sópað undir teppi af hálfu barna­vernd­ar­yf­ir­valda fram til þessa.

Stundin tók svo undir umfjöllum Mannlífs með ítar­legum hætti þar sem sex konur úr hópnum stigu fram með sögur sínar sem snúa að meintu ofbeldi þáver­andi for­stöðu­manns með­ferð­ar­heim­il­is­ins, Ingjaldi Arn­þórs­syni. Sjálfur þver­tekur hann fyrir ásak­anir hinna mörgu kvenna. Fyrir helgi stigu aðrar tvær fram í sam­tali við Mannlíf og þar að auki eru þrjár konur sem vegna sára sinna hafa ekki enn treyst sér til að stíga fram undir nafni. Kvenna­hóp­ur­inn sam­anstendur því að rúmum tug kvenna sem allar hafa svip­aða ofbeld­is­sögu að segja.

Ábend­ingar um ofbeldið bár­ust þegar árið 2000 en Barna­vernd­ar­stofa taldi þá ekk­ert hafa átt sér stað og ekk­ert var aðhafst. Heiða Björg Pálma­dótt­ir, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, seg­ist í dag til­búin til að hlusta á sögu allra kvenn­anna í hópnum sem nú hafa stigið hetju­lega fram. Hún full­yrti í sam­tali við Stundina að farið verði yfir starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins að Lauga­landi á því tíma­bili sem kon­urnar vitna til um meint ofbeldi og harð­ræði, á árunum 1997-2007.

Teresa Dröfn Freys­dóttir Njarðvík lýsir vist­inni að Laug­ar­landi með eft­ir­far­andi hætti: „En ég var varla komin inn úr dyr­unum á Lauga­landi þegar ofbeldið byrj­aði. Tónninn var
mjög skýr og sleg­inn á fyrsta degi. Ekkert varð aftur eins. Ég kom þaðan möl­brotin. Ég hef aldrei náð aftur almenni­legu sam­bandi við fjöl­skyldu mína, aldrei náð aftur sjálfs­trausti eftir allt nið­ur­rifið þar og get ómögu­lega treyst fólki, hvort sem það er venju­legt fólk eða aðilar sem eiga að hjálpa,“ sagði Teresa í sam­tali við Stundina og bætti við:

„Ég vil að barna­vernd­ar­nefnd­irnar við­ur­kenni að starfs­fólk þeirra hafi ekki
fylgst nógu vel með með­ferð­ar­heim­il­inu og í raun þaggað niður það sem þar gekk á. Ég vil almenna við­ur­kenn­ingu og afsök­un­ar­beiðni. Ég er enn að glíma við afleið­ingar þess að hafa lent á þessu heim­ili og ég var í mörg ár að vinna mig upp úr verstu van­líð­an­inni. Ég þjá­ist af áfallastreituröskun og vistin á Lauga­landi á stóran þátt í henni. Ég fæ enn martraðir sem snú­ast um að ég sé læst þarna inni gegn vilja mínum.“

Brynja Skúla­dóttir er ein þeirra sem var vistuð á Lauga­landi en hún var fjórtán ára gömul þegar hún var vistuð á með­ferð­ar­heim­ilnu. Hún fann strax að þar var engin með­ferð í gangi heldur ein­göngu boðið upp á nið­ur­brot þeirra skjól­stæð­inga sem á heim­il­inu voru. „Ég var ekki nei­kvæð þegar mér var sagt að ég yrði send þangað. Líf mitt hafði verið mjög erfitt. Þannig að þegar mér var sagt að ég færi á með­ferð­ar­heim­ili úti á landi var mér létt því ég hélt að ég væri að fá þá aðstoð sem ég þurfti á þessum tíma. Ég átt­aði mig á því fyrsta dag­inn að þarna var ekki verið að bjóða upp á með­ferð heldur nið­ur­brot. Fyrstu dag­arnir voru skelfi­legir og nið­ur­brotið hófst strax,“ sagði Brynja í sam­tali við Stundina.

Með­ferð­ar­heim­il­inu að Laug­ar­landi var lokað um ára­mótin. Sú lokun teng­ist þó ekki ásök­unum kvenn­anna gagn­vart Ingjaldi enda var heim­ilið nú síð­ast undir ann­arra stjórn. Mynd / Skjáskot RÚV.

Nokkrum mán­uðum eftir að Brynja kom á með­ferð­ar­heimllið kom Gígja, tví­bura­systir hennar, þangað líka. „Frá fyrsta degi átt­aði ég mig á að þetta var staður þar sem ofríki for­stöðu­manns­ins var algjört, þar sem ég var algjör­lega valda­laus. Ingj­aldur lagði sig allan fram við að berja úr mér allan mót­þróa og upp­reisn. Ég veit núna að þetta var útpælt ofbeldi. Sú minn­ing er þó sterk­ust þegar ég var 14 eða 15 ára gömul og þráði ekk­ert meira en að deyja. Ég bað Guð á hverju kvöldi að leyfa mér að sofna og vakna ekki aftur. Ég ótt­að­ist mest að þurfa að vera þarna til 18 ára ald­urs“ sagði Gígja í sam­tali við Stundina.

Harpa Dögg Sæv­ars­dóttir, ein kvenn­anna, á fund með Ásmundi Daða Ein­ars­syni, barna- og félags­mála­ráð­herra, þar sem hún krefst rann­sókn­ar­nefndar á vegum þings­ins þar sem kafað verði ofan í kjöl­inn á starf­semi heim­il­is­ins. Aðrar í hópnum hafa þó ekki verið með í ráðum við skipu­lagn­ingu þess fundar. „Við erum ein­fald­lega að biðja um hjálp. Við viljum skila skömminni og fá það við­ur­kennt hvernig var komið fram við okkur. Fá afsök­un­ar­beiðni og að fólkið þurfi að svara fyrir hvað það gerði. Þá von­umst við til að komið verði á betra eft­ir­liti með svona heim­ilum og að hlustað verði á skjól­stæð­inga sem koma fram með mar­bletti, áverka­vott­orð og sjúkra­skýrslur. Vonandi getum við fengið rík­is­stjórn­ina með okkur í lið,“ segir Harpa Dögg í sam­tali við Mannlíf.

Kolbrún Þor­steinssdóttir lýsir einnig erf­iðri og sárs­auka­full­tri dvöl á með­ferð­ar­heim­il­inu. „Ég man mjög vel eftir fyrsta deg­inum mínum þarna. Mér fannst stemn­ingin á staðnum mjög skrítin. Þetta var upp­hafið að versta tíma­bili lífs míns sem lit­að­ist af ótta, nið­ur­læg­ingu og algerri und­ir­gefni. Ég var hrædd hvern ein­asta dag meðan ég var þarna, upp­lifði mikið von­leysi. Van­líð­anin var mér næstum um megn,“ segir Kolbrún og heldur áfram:

„Ég er búin að vera að reyna að safna kjarki í mörg ár til að stíga fram og segja frá því sem ég upp­lifði á með­ferð­ar­heim­il­unum Varp­holti og Lauga­landi þegar ég var ung­lingur. Ég vissi alltaf að ég þyrfti að segja frá því sem gerð­ist.“

Harpa Særós Magn­ús­dóttir dvaldi líka á Lauga­landi. „Ég átti ekki von á öðru en þetta væri góður staður. Aldrei grun­aði mig það sem var í vændum. Að mig myndi langa að jörð gleypti mig. Ég var komin í hel­víti. Ég var bara barn,“ segir Harpa Særós Magn­ús­dóttir í sam­tali við Mannlíf.

Dagný Rut Magn­ús­dóttir vonar að barna­vernd­ar­yf­ir­völd hlusti núna á frá­sagnir þeirra kvenna sem voru vistaðar að Lauga­landi. „Það er frelsi í því að skila skömminni af því að ég er búin að sitja ein með þessa van­líðan alla tíð. Ég var bara barn og átti þetta ekki skilið. Orð lýsa því ekki nógu vel hvernig mér leið þarna. Þetta var hræði­legur tími,“ sagði Dagný Rut í sam­tali við Stundina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi