Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Hópur kvenna af meðferðarheimilinu Laugalandi krefst rannsóknar: „Hjálp“

Hópur kvenna af meðferðarheimilinu Laugalandi krefst rannsóknar: „Hjálp“

Tugur kvenna sem dvaldi á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi hefur tekið höndum saman og vilja að farið verði ofan í saumana á starf­semi heim­l­is­ins. Þær lýsa erf­iðri og sárs­auka­fullri dvöl og telja að frá­sögnum þeirra hafi verið sópað undir teppi af hálfu barna­vernd­ar­yf­ir­valda.

Með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi í Eyja­firði hefur verið lokað eftir að félagið sem rak það sagði upp samn­ingi við Barn­ar­vernd­ar­stofu. Starf­semi verður ekki boðin út aftur og því var heim­il­inu lokað. Á Lauga­landi var einka­rekið með­ferð­ar­heim­ili fyrir stúlkur sem starf­rækt er sam­kvæmt rekstr­ar­samn­ingi við ríkið, undir eft­ir­liti og yfir­stjórn Barna­vernd­ar­stofu.

Harpa Dögg Sæv­ars­dóttir, ein kvenn­anna, heldur til fundar með Ásmundi Daða Ein­ars­syni, barna- og félags­mála­ráð­herra, þar sem hún krefst rann­sókn­ar­nefndar á vegum þings­ins þar sem kafað verði ofan í kjöl­inn á starf­semi heim­il­is­ins. Aðrar í hópnum hafa þó ekki verið með í ráðum við skipu­lagn­ingu þess fundar. „Við erum ein­fald­lega að biðja um hjálp. Við viljum skila skömminni og fá það við­ur­kennt hvernig var komið fram við okkur. Fá afsök­un­ar­beiðni og að fólkið þurfi að svara fyrir hvað það gerði. Þá von­umst við til að komið verði á betra eft­ir­liti með svona heim­ilum og að hlustað verði á skjól­stæð­inga sem koma fram með mar­bletti, áverka­vott­orð og sjúkra­skýrslur. Vonandi getum við fengið rík­is­stjórn­ina með okkur í lið,“ segir Harpa Dögg.

Gígja Skúla­dóttir dvaldi líka á Lauga­landi og hún lýsti því í færslu á Facebook hvernig hrollur fór um hana þegar hún sá frétt af lokun með­ferð­ar­heim­il­is­ins og mynd birt­ist af staðnum. „Frá 14 til 16 ára aldri eyddi ég verstu árum lífs míns á stað þar sem and­legt og lík­am­legt ofbeldi fékk að við­gang­ast. Und­an­farið hef ég verið að rifja þennan tíma sem ég var algjör­lega búin að loka á, koma ,,útur úr skápnum” með þessa reynslu sem hefur fylgt mikil skömm,“ segir Gígja og heldur áfram:

„Eftir stendur sú sann­fær­ing mín að Barna­vernd­ar­stofa brást okkur stelp­unum algjör­lega. Þrátt fyrir til­kynn­ingar um ofbeldi, áverka­vott­orð og krafa frá umboðs­manni barna að rann­saka heim­ilið varði Bragi Guð­brands­son for­stöðu­mann­inn opin­ber­lega, það var ekk­ert að og ásak­anir um ofbeldi ættu ekki við rök að styð­ast (að hans mati). Málinu var sópað undir teppið og er þar ennþá.“

Harpa Særós

Harpa Særós Magn­ús­dóttir dvaldi líka á Lauga­landi. „Ég átti ekki von á öðru en þetta væri góður staður. Aldrei grun­aði mig það sem var í vændum. Að mig myndi langa að jörðu gleypti mig. Ég var kom­inn í hel­víti. Ég var bara barn,“ segir Harpa Særós Magn­ús­dóttir.

Mannlíf er með frá­sagnir kvenna, sem allar lýsa ofbeldi í sinn garð á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi. Á næst­unni mun Mannlíf fjalla meira um meint ofbeldi í garð kvenn­anna ásamt því að leita skýr­inga og svara við ásök­un­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina