Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Í góðum málum – Í slæmum málum

Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson
Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

Í góðum málum

Tann­læknirinn Heimir Hallgrímsson, sem er í guðatölu hér á landi eftir að hafa aðstoðað Lars Lagerbäck við að koma karlaliði Íslands á Evrópu­mótið og síðan komið liðinu á Heims­meistara­mótið fyrir nokkrum árum, er heldur betur í góðum málum. Á dögunum var tilkynnt að Heimir hafi verið ráðinn aðal­þjálfari karlaliðs Jamaíka í knatt­spyrnu en liðið er í 62 sæti á heims­listanum, einu sæti fyrir ofan Ísland. Heimir hefur verið eftir­sóttur síðustu ár en hann þjálfaði katarska félagið Al-Arabi en hann yfirgaf liðið á síðasta ári og hefur undan­farið verið ráðgjafi Hermanns Hreiðars­sonar hjá ÍBV í Bestu deild karla. Eyja­maðurinn tekur með sér þaulvana menn en Helgi Kolviðsson verður aðstoðar­þjálfari og Guðmundur Hreiðarsson verður markmanns­þjálfari liðsins. Þá verður Þjóð­verjinn Sebastian Boxleitner styrktar­þjálfari liðsins eins og þegar Heimir þjálfaði Ísland. Spennandi verður að sjá hvort Heimir nái að koma Jamaíka á HM, sem þá yrði í annað skipti sem liðið kæmist á það mót.

Í slæmum málum

Flokkur fólksins er í nokkuð slæmum málum þessa stundina. Fyrst kom upp úr dúrnum að vara­þingmaður flokksins tengdist hinu hræðilega hrossa­níðsmáli á Borgarnesi þar sem svo virðist vera að illa hafi verið farið með hross af eigendum þeirra. Sagðist Inga Sæland, formaður flokksins hafa fengið algjört sjokk þegar hún frétti að vara­þingmaður flokksins tengdist málinu. Þá var dóttir vara­þing­mannsins einnnig tengd málinu en hún var í framboði fyrir Flokk fólksins í síðustu Alþingis­kosningum og hefur unnið trúnaðar­störf fyrir flokkinn. Voru þær báðar beðnar um að stíga til hliðar sem þær og gerðu. En þetta er ekki það eina sem skekið hefur flokkinn undan­farið en þrjár konur úr flokknum stigu fram á Akureyri og lýstu lítilsvirðandi framkomu í sinn garð og í sumum tilfellum kynferðislegri áreitni af hendi karlmanna í forystu flokksins fyrir norðan. Vara­formaðurinn Guðmundur Ingi Kristinsson gaf út yfir­lýsingu þar sem hann sagðist vilja boða til stjórnar­fundar þar sem farið yrði yfir alvarlegar ásakanir um ólíðandi framkomu í garð kven­leiðtoga flokksins á Akureyri. Nú er bara spurning hvað næsta skref Ingu Sæland verði en hún er þekkt fyrir að ganga hreint til verks.

Hægt er að lesa nýjasta blað Mannlífs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning