Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Orðspor Íslands í Namibíu í rjúkandi rúst

Þróunar­samvinnu­stofnun Íslands eða ÞSSÍ starfaði frá 1981 til 2015 þegar hún var lögð niður og verkefni hennar sett undir Utan­ríkis­ráðuneytið. Meðal verkefna sem stofnunin stóð fyrir var þróunar­starf í Namibíu. Auk þess að útvega mannskap til hafrannsókna átti stofnunin þátt í að koma sjómanna­skóla á laggirnar í afríku­ríkinu en hóf hann starfsemi árið 1994. Í skýrslu sem gerð var fyrir Utan­ríkis­ráðuneytið segir að skólinn starfi þar enn og vegni vel. Fyrr­verandi kennari við skólann er á öðru máli. 

Árið 2014 kom út skýrsla um þróunar­samvinnu Íslands sem gerð var fyrir Utan­ríkis­ráðuneytið. Þar var farið yfir þá þróunar­samvinnu sem Ísland hefur stundað undan­farna áratugi í hinum ýmsu löndum. Varðandi slíka samvinnu í Namibíu segir orðrétt í skýrslunni: Nýútkomin úttekt á samvinnu ÞSSÍ við stjórn­völd í Namibíu 1990 – 2010 sýnir fram á merki­legan árangur. Í henni kemur fram hvernig íslensk aðstoð í fiskigeiranum, sem átti sér stað á 20 ára tímabili, átti ríkan þátt í að byggja upp fiskiðnað í landinu sem nú stendur undir 4% af þjóðar­framleiðslu og 9% á tímabili á árum áður. Þessi árangur er í úttektinni kallaður „raun­verulegt iðnvæðingar­kraftaverk. „Í landi þar sem voru engar atvinnu­veiðar á fiski og almenningur var ekki vanur sjó og fisk­veiðar voru nýstárlegar þá er þetta ekki lítill árangur,” segir í skýrslunni. „Á mjög skömmum tíma varð sjávar­útvegur í Namibíu ein af kjarna­iðngreinum í landinu, lagði til tölu­verðan hluta af þjóðar­tekjum og veitti fjölda fólks ný atvinnu­tækifæri.”  

Þá er einnig minnst á ágóða íslenskra fyrir­tækja á þróunar­samvinnunni í Namibíu í skýrslunni: Íslensk fyrirtæki hafa að einhverju marki tekið þátt í – og notið góðs af – íslenskri þróunar­samvinnu frá fyrstu tíð. Þannig ruddi stuðningur á vegum ÞSSÍ við sjávar­útveg í Namibíu brautina fyrir íslensk fyrirtæki á því sviði. Eftir tíu ára starfsemi ÞSSÍ í landinu, um aldamótin, bjuggu þar milli 60 og 70 Íslendingar á vegum ýmissa aðila.

Stefnulaust þróunarstarf

Sigurður Jónsson var kennari í Sjómanna­skóla Namibíu og hefur allt aðra sögu að segja en fram kemur í téðri skýrslu.

Namibian Maritime and Fis­heries Institute

„Þetta var svona laus­beislað þróunar­starf til að byrja með, án stefnu,“ sagði Sigurður Jónsson í samtali við Mannlíf en hann kenndi í skólanum á sínum tíma. Hann hélt áfram: „Það var engin stefna og hinir og þessir fengnir til að kenna á veiðar­færi og hinir og þessir fengnir til að gera hitt og þetta. En svo er ráðinn af skólanum Víðir Sigurðsson og hann er fenginn til þess að taka þetta svolítið fastari tökum. Og hann fær mig með sér og fyrir voru þar menn frá Noregi og Alfreð Steinar Rafnsson, kennari við skólann. Og þá var hugmyndin að gera þetta að almennilegum skóla. Og það hóf Víðir að gera, má segja.“

Sagði Sigurður að Víðir hafi hins vegar aldrei fengið þau tök sem voru nauðsynleg og að „kerfi“ Þróunar­samvinnu­stofnunarinnar hafi ætíð verið viðloðandi skólann. „Síðan er sendur maður þarna niður eftir sem að fór yfir reksturinn á þessu og það kemur í ljós að reksturinn er ekki til fyrir­myndar. Og þetta blandaðist allt saman sko, Namibíu­menn sem vildu hafa puttana í þessu því það komu inn í þetta peningar, bæði frá Íslandi og Noregi og seinna Spáni og þar sem eru peningar saman komnir á einn stað, þyrpast saman menn sem vilja komast í þá. Og upp frá því var farið að tala um ýmsa hluti, eins og það að það þyrfti að leggja niður mikla meira lang­tímaplan og Íslendingarnir þyrftu að vera óháðir einhverjum pólitískum duttlungum. En pólitískir duttlungar urðu ofan á.“

Sigurður sagði að fyrir vikið hefði skólinn aldrei orðið neitt. Sagði hann ennfremur að skýrsla um skólann sem gerð var eftir heimsókn starfs­manns Þróunnar­samvinnu­stofnunarinnar, hafi verið starfs­mönnum hans mjög mikil vonbrigði því það virtist sem skýrslan hafi verið gerð fyrir þá sem pöntuðu hana. „Sighvatur Björgvinsson var framkvæmdar­stjóri stofnunarinnar og Björn Ingi Hrafnsson var stjórnar­formaður. Þannig að þetta var mjög pólitískt,“ sagði Sigurður og hélt áfram: „Og pólitíkin gat aldrei séð það að til þess að skilja vel við þennan skóla, hefðum við þurft að hafa eitthvað langtíma markmið og standa við það.“ Aðspurður hvort hann teldi að skýrslu­höfundi hafi verið ætlað að skila ákveðinni niður­stöðu um skólann svaraði Sigurður: „Ja sko, ég man eftir einni spurningu sem var svona; „Telur þú að skólinn hafi verið til góðs eða ills fyrir Namibíu­menn?“. Og hverju svarar þú svona spurningu? Geturðu sagt nei og rökstutt það eða verður þú að segja já og allir verða glaðir? Þetta er ekki já og nei spurning. Það verður að skýra þetta mál aðeins öðruvísi. Og út af því að það var eiginlega ekki hægt að segja nei og færa rök fyrir því þá varð maður að segja já. Og þegar þeir eru búnir að leggja fyrir þig svona spurningar og það sýnir að þetta sé voða flott allt saman, þá geta þeir bara sagt „Ok! Nú erum við bara hættir og farnir.“, en skilja svo við þetta í lausu lofti.“

Hægt er að lesa greinina í heild sinni í nýjasta blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis