InnlentBjörk um framtíð konungsfjölskyldunnar: „Líklega höfum við kvatt síðustu drottningu Bretlands“ Ritstjóri helgarblaðs Fréttablaðsins, Björk Eiðsdóttir, skrifar um jarðarför Elísabetar II. Bretadrottningar – sem fór fram í gær: „Elísabet II. Bretadrottning var formlega kvödd í gær, á fremur dumbungslegum mánudegi í Lundúnaborg. Um heim allan fylgdist fólk með langri og tilkomumikilli dagskrá útfararinnar í beinni útsendingu þar sem drottningin sem ríkt hafði í 70 ár var kvödd með virktum. Eftir sjö...
InnlentKrefjast sýknunar fyrir Erlu Bolla: „Staðan er orðin verulega vandræðaleg fyrir dómsmálayfirvöld“ Hópur stuðningsmanna Erlu Bolladóttur stendur nú fyrir undirskriftasöfnun þar sem krafist er sýknunar í máli yfirvalda gegn Erlu í Guðmundar og Geirfinnsmálinu. Á vefsíðu söfnunarinnar segir að krafist sé „réttlætis fyrir Erlu vegna framgöngu dóms- og lögregluyfirvalda í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.“ Þar segir ennfremur meðal annars: „Erla var dæmd fyrir meinsæri á sínum tíma en löngu er ljóst að vitnisburður...
InnlentÞórður ritstjóri um Pál skipstjóra: „Ekkert liggur fyrir um að eitrað hafi verið fyrir manninum“ Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, segir að engin fyrirliggjandi gögn né handfastar vísbendingar séu uppi fyrir því að reynt hafi verið að eitra fyrir Páli Steingrímssyni, skipstjóra Samherja. Ritstjórinn sætir lögreglurannsókn, ásamt þremur öðrum blaðamönnuum, fyrir að hafa framið stafrænt kynferðisbrot gegn skipstjóranum. Páll hefur fullyrt að eitrað hafi verið fyrir honum og farsíma hans síðan stolið. Gögn úr hinum...
InnlentSegir af sér: „Gildi mín og Fimleikasambandsins samræmdumst ekki gildum landsliðsþjálfarans“ Kristinn Arason sagði af sér sem formaður Fimleikasambands Íslands í gær; en það gerði Kristinn vegna ákvörðunar stjórnar Fimleikasambandsins um að gera nýjan samning við landsliðsþjálfara, sem er grunaður um að hafa keyrt undir áhrifum áfengis eftir samkvæmi í sumar sem leið: „Það getur verið erfitt að vera foreldri og verið í forsvari fyrir íþróttahreyfingu þar sem að börnin manns...
InnlentTannlæknir kaupir hús af handboltastjörnu Besti handboltamaður allra tíma, Ólafur Stefánsson, og eiginkona hans, Kristín Soffía Þorsteinsdóttir, hafa nú selt glæsilegt einbýlishús sitt, staðsett á Álftanesi. Ólafur og Kristín ásamt börnunum eru nú á förum til Þýskalands, þar sem Ólafur verður aðstoðarþjálfari úrvalsdeildarliðs HC Erlangen. Óhætt er að segja að húsið áðurnefnda sé flott; það var Kjartan Rafnsson hjá KJ hönnun ehf. sem hannaði húsið...
InnlentKári segir faraldrinum loks að ljúka: „Ég hef lokað skilningarvitum mínum fyrir öllu tengdu Covid“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að nú loksins sé Covid-19 faraldrinum að ljúka. Hann segir veiruna vera í sínum huga orðna að „eldgamalli púkalegri veiru í bell-bottoms“. Yfirmaður hjá Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar tekur í sama streng í samtali við Fréttablaðið og forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sagði faraldurinn í síðustu viku vera í rénun. Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, lýsti því svo yfir...
InnlentSigurjón tekur afmælisdeginum með ró: „Ætli það verði ekki kökusneið?“ Afmælisbarn dagsins er af betri endanum en það er Tvíhöfðinn sjálfur, Sigurjón Kjartansson. Ku hann vera 54 ára í dag. Sigurjón lék með ýmsum pönksveitum í heimabæ sínum Ísafirði á sínum yngri árum en þekktastur er hann á tónlistarsviðinu sem hljómsveitarmeðlimur hinnar goðsagnakenndu rokksveitar Ham. Þá var hann einnig í böndum á borð við AnstæðA, Olympia og Jazzhljómsveit Konráðs Bé....
InnlentJátningar læknis að Laugalandi: „Hitti grátandi unga stúlku sem hafði áverka á enni“ Læknir sem um tíma starfaði við meðferðarheimilið að Laugalandi segist í dag skammast sín fyrir að hafa ekki tekið sjálfstæða ákvörðun um að hjálpa stúlkunum sem þar dvöldu. Læknirinn vill ekki láta nafn síns getið og fullyrðir hann að lögreglan hafi sagt sér að ekki ætti að trúa frásögnum stúlknanna frá heimilinu. Nærri 90 prósent þeirra unglingsstúlkna sem vistaðar voru...
InnlentSunna í algjöru sjokki í Mosfellsbæ: „Endilega ræðið við börnin ykkar og varið þau við!!“ Sunna nokkur, íbúi í Mosfellsbæ, biður netverja um að ræða við börnin sín og vara þau við hættunum í bænum. Hún segir að leigubílstjóri hafi reynt með blekkingum að lokka dóttur sína upp í bílinn. Sunna er búin að tilkynna atvikið til lögreglunnar.Í fjölmennum hópi bæjarbúa á Facebook lýsir Sunna atvikinu nánar:„Endilega ræðið við börnin ykkar og varið þau við!!...
InnlentRagnhildur sálfræðingur: „Stundum eru einkenni kvíða misskilin sem dónaskapur“ Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur biður netverja um að vera vakandi fyrir kvíðahegðun annarra sem gæti á suma virkað sem dónaleg. Hún segir að kvíðahegðun sé ekki persónuleg árás á nokkurn mann heldur varnarviðbrögð kvíðasjúklingsins.Ragnhildur, sem flestir þekkja betur undir nafninu Ragga nagli, er sálfræðingur að mennt með áherslu á heilsusálfræði. Hún er einnig lærður einkaþjálfari og er hún virk að deila...
InnlentDómsmálaráðherra vill afnema einokun ÁTVR: „Ekki samstaða milli ríkisstjórnarflokkanna“ Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram frumvarp núna í haust sem gerir íslenskum fyrirtækjum kleift að starfrækja netverslun með áfengi. Ekki er samstaða um málið innan ríkisstjórnarinnar, samkvæmt frétt RÚV, en þar segir að töluverð óvissa hafi ríkt um lögmæti netverslunar með áfengi hér á landi. Og að flest fyrirtæki sem bjóða upp á þannig þjónustu eru rekin á...
InnlentGrunsamlegir menn leituðu að ánamöðkum – Eldsvoði í miðbænum Klukkan hálf tíu í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um ölvaðan mann sem ráfaði úti á götu í hverfi 108. Lögregla hafði upp á manninum og vísaði honum upp á gangstétt. Hálftíma síðar var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í Kópavogi. Kom í ljós að grunsamlegu mennirnir voru í leit að ánamöðkum. Þá sinnti lögregla nokkrum útköllum í miðbæ Reykjavíkur. Það fyrsta...