Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Dómsmálaráðherra vill afnema einokun ÁTVR: „Ekki samstaða milli ríkisstjórnarflokkanna“

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra ætlar að leggja fram frumvarp núna í haust sem gerir íslenskum fyrir­tækjum kleift að starf­rækja netverslun með áfengi.

Ekki er samstaða um málið innan ríkis­stjórnarinnar, samkvæmt frétt RÚV, en þar segir að töluverð óvissa hafi ríkt um lögmæti netverslunar með áfengi hér á landi. Og að flest fyrirtæki sem bjóða upp á þannig þjónustu eru rekin á útlendri en ekki íslenskri kennitölu.

Eins og frægt er þá höfðaði ÁTVR mál í fyrra í þeim tilgangi að stöðva slíka sölu á grund­velli einka­leyfis. Héraðs­dómur vísaði málinu frá; því var ekki áfrýjað.

Dómsmála­ráðherra, Jón Gunnarsson, vill eyða allri óvissu um málið og heimila fyrir­tækjum sem eru með íslenska kennitölu að starf­rækja netverslun með áfengi hér á landi.

Frumvarp Jóns verður lagt fram í nóvember næst­komandi:

„Ég er bara að skýra leik­reglurnar um þessa tegund verslunar með áfengi sem er búið að vera staðreynd í okkar samfélagi í mörg mörg ár. Ég sé ekki mikinn mun á því hvort að menn kaupa í gegnum innlenda eða erlenda vefverslun,“ segir dómsmála­ráðherra.

Jón er spurður hvort hann sé með þessu frumvarpi að með afnema endanlega og formlega einokun ÁTVR á markaði:

„Ja, hvenær rofnaði hún? Var hún ekki rofin til að mynda með því að það er ekkert vandamál að flytja inn vín sjálfur. Kaupa vín af erlendum vefverslunum, hvort sem er hér í Evrópu eða annars staðar. Það koma hér heilu brettin jafnvel heilu gámarnir í slíkum innflutningi á hverju ári. Var einokunin rofin þá eða er verið að rjúfa hana núna? Eða rauf ég hana með frum­varpinu sem var samþykkt í vor með sérstöku leyfi fyrir brugg­húsin, bæði með sterkt vín og öl?“ segir Jón sem býst við því að frum­varpið verði ekki óumdeilt:

„Það segir það ekki endilega að það verði einhver samstaða milli ríkis­stjórnar­flokkanna í þessu máli. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það er svolítið langt á milli flokka þegar kemur að sjónar­miðum,“ segir dómsmála­ráðherra, Jón Gunnarsson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“