Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Ragnhildur sálfræðingur: „Stundum eru einkenni kvíða misskilin sem dónaskapur“

Ragnhildur Þórðar­dóttir sálfræðingur biður netverja um að vera vakandi fyrir kvíða­hegðun annarra sem gæti á suma virkað sem dónaleg. Hún segir að kvíða­hegðun sé ekki persónuleg árás á nokkurn mann heldur varnar­viðbrögð kvíða­sjúklingsins.Ragnhildur, sem flestir þekkja betur undir nafninu Ragga nagli, er sálfræðingur að mennt með áherslu á heilsu­sálfræði. Hún er einnig lærður einka­þjálfari og er hún virk að deila fróðleik um heilsusamlegt líferni meðal annars á samfélags­miðlum sínum, á fyrir­lestrum, með greina­skrifum og svo hefur hún einnig gefið út bók um efnið.Ragga Nagli er dugleg að fjalla um mikilvæg málefni á Facebook-síðu sinni og að þessu sinni tekur hún fyrir kvíða­hegðun:

„Kvíða­einkenni geta oft verið misskilin sem dóna­skapur. Ofur­árvekni fyrir umhverfinu og viðbrögðum annarra leiðir oft af sér hegðun sem virkar dónaleg fyrir sumum.

Manneskja með kvíða svarar ekki skila­boðum í marga daga því hún veit ekki hvað sé nógu gott svar. Skrifar jafnvel langa munnræpu en strokar út jafnóðum margsinnis áður en ýtt er loksins á send-takkann.

Oft er erfitt að horfa beint í augun á einhverjum þegar líkaminn er sósaður í kvíða­einkennum af hjartslætti og hnút í maga, svo þau forðast augn­samband í samtölum.

Manneskja með kvíða getur virkað óáreiðanleg því hún aflýsir hittingum á síðustu stundu og finnur fyrir létti en samvisku­biti samtímis.

„Hvað ef ég þekki engan í partýinu.“ „Ég treysti mér ekki að hitta neinn núna.“

Og hún gæti látið sig hverfa úr partýum því aðstæðurnar verða yfir­þyrmandi erfiðar.

Manneskja með kvíða getur virkað hrokafull þegar hún er bara sjúklega feimin.

„Ég þekki engan hérna, og enginn vill tala við mig. Ég ætla bara að sitja úti í horni og skrolla símann af því ég þori ekki að blanda geði.“

Manneskja með kvíða getur verið þögul í samskiptum, því hún er að analýsera í öreindir allt sem hún segir. „Verð að passa allt sem ég segi. Hvað ef henni finnst ég vera leiðinleg.“

Manneskja með kvíða getur átt erfitt með að einbeita sér í samtali við einhvern því hún er þjökuð af allskonar áhyggjum.

„Hvað ef yfir­maðurinn skammar mig fyrir að skila skýrslunni of seint.“ „Gleymdi ég kannski nestinu hjá barninu í morgun.“

Manneskja með kvíða getur virkað óákveðin, þegar hún er skíthrædd við að taka ákvörðun og standa með henni.

„Hvað ef ég ákveð bíómynd og hún er leiðinleg, og allir verða fúlir út í mig fyrir að eyði­leggja kvöldið“

Manneskja með kvíða getur verið þreytuleg, því hún á erfitt með að festa svefn þegar hugsanirnar eru á Formúlu­hraða að endur­spila atvik og endur­upplifa áföll og losa streitu­hormón.

„Ohh ég var svo asnaleg í sauma­klúbbnum. Átti aldrei að segja þennan brandara. Mér líður ömurlega yfir þessu rifrildi við Jóa í fjár­máladeild, ég hefði átt að standa betur með mér.“

Það er mikilvægt að átta sig á að þetta er ekkki dóna­skapur heldur er manneskja með kvíða að bregðast við óbærilegum innri einkennum sem enginn sér.

Þegar við áttum okkur á hegðunar­mynstri og kvíða­viðbrögðum, eigum við auðveldara með að sýna manneskjunni samkennd og skilning, í stað þess að verða móðguð og pirruð.

Þeirra hegðun er ekki persónuleg árás í okkar garð, heldur þau að vernda sjálfið sitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“