LandiðAkraneskaupsstaður fékk málverk í gjöf í tilefni 80 ára afmælinu Akraneskaupsstaður á 80 ára afmæl á þessu ári og af því tilefni færðu hjónin Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir og Guðmundur Ragnar Guðmundsson, eigendur Prentmets Odda, kaupstaðnum málverk að gjöf. Málverkið er af Bíóhöllinni á Akranesi og er eftir Bjarna Skúla Ketilsson eða Baska eins og hann kallar sig. Samkvæmt vefsíðu Akraneskaupsstaðar tók Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á móti málverkinu fyrir hönd...
LandiðLandlæknir er bjartsýnn á framtíð HSS: „Það hefur verið mótvindur hér og erfið umræða“ Alma Dagbjört Möller landlæknir var viðstödd opnun nýrrar röntgendeildar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, HSS, ásamt Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra, í síðustu viku. Víkurfréttir voru á staðnum og tók Ölmu tali. „Það er ánægjulegt að hér á HSS hefur verið tekið til hendinni og unnið að uppbyggingu á innviðum stofnunarinnar. Það er nauðsynlegt því mikil fólksfjölgun hefur orðið á svæðinu undanfarin ár...
LandiðÁstrali ákvað að stoppa við Djúpavog og bíða til kvölds – Nú er myndband hans í erlendum fjölmiðlum Myndband ástralska ljósmyndarans Jarrod Andrews af norðurljósum yfir nágrenni Djúpavogs hefur vakið heimsathygli. Samkvæmt Austurfrétt hefur myndbandið, sem tekið er af Jarrod Andrews sem er 36 ára Ástrali en hann ferðaðist um Ísland í febrúar og mars í þeim tilgangi að láta langþráðan draum sinn um að sjá norðurljósin, rætast. Varð honum að ósk sinni á fleiri stöðum en Djúpavogi... Myndband
LandiðHundur beit barn í andlitið – Barnið var gestur á bóndabæ Barn var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi til aðhlynningar og síðan til Reykjavíkur til frekari aðstoðar, eftir að hundur beit það í andlitið. Samkvæmt dagbók lögreglunnar á Suðurlandi var barnið bitið í andlitið af hundi á bóndabæ í uppsveitum Árnessýslu en barnið var gestkomandi á bænum. Atvikið gerðist fyrir helgi en barnið var útskrifað af sjúkahúsi sama kvöldi eftir...
LandiðDjúpavogsbúar gagnrýna áform Eimskips: „Skýtur mjög skökku við að draga úr þjónustu“ Heimastjórn Djúpavogs gagnrýnir harðlega áform Eimskips að skerða þjónustu sína í bænum á næstunni. „Hér hefur ekki verið meira að gera í tíu til fimmtán ár og það skýtur mjög skökku við að draga úr þjónustu á slíkum tímapunkti,“ sagði Eiður Ragnarsson, starfsmaður heimastjórnar Djúpavogs í samtali við Austurfrétt. Ekki hafa áformin verið staðfest formlega en Eimskip hyggst skerða þjónustu...
LandiðMótmæla sjókvíaeldi á Raufarhöfn: „Myndi gengisfella allar laxveiðiár“ Meðal þeirra sem mótmæla áformum um fiskeldi við Raufarhöfn eru sjö austfirsk náttúruverndarsamtök og veiðifélög. Í ályktun sem send var út í dag er varað við áhrifum eldisins á laxveiðiár á Norðausturhorni landsins. Austurfrétt sagði frá málinu í dag. Þar kemur fram að á Raufarhöfn séu til skoðunar áform um 10.000 tonna eldi, sem yrði í sjó part úr ári....
LandiðSeyðfirðingar móðgaðir yfir aprílgabbi, eða hvað? „Þetta er besta, langbesta apríl gabb ever! Seyðfirðingar brugðust sumir hverjir ókvæða við frétt sem birtist á heimasíðu Múlaþings í gærmorgun. Í fréttinni stóð að til stæði að taka fyrstu skóflustunguna að nýjum íbúðarkjarna fyrir eldri borgara á gamla íþróttavellinum. Um aprílgabb var að ræða en spurningin er, hver gabbaði hvern? Samkvæmt Austurfrétt birtist frétt rétt fyrir klukkan tíu í gærmorgun, um að nú ætti að taka...
LandiðFimmtán járngrindum stolið á Selfossi – Lögreglan óskar eftir upplýsingum Hvorki meira né minna en fimmtán járngrindum var stolið frá húsbyggingu á Selfossi á dögunum. Steinklumparnir sem grindurnar stóðu í hurfu einnig. Sunnlenska.is sagði frá málinu í dag. Þar kemur fram að járngrindunum, sem notaðar eru til að mynda til að girða af byggingarvæði, hafi verið stolið frá húsbyggingu í Breiðumýri á Selfossi fyrr í mánuðinum. Talið er að þjófnaðurinn...
LandiðLandhelgisgæslan dró hræ af búrhvali út á sjó – MYNDIR Varðskipið Freyja var kallað út um helgina til að kanna aðstæður við Bessastaði í Hrútafirði þar sem hval hafði rekið á land. Áhöfnin sendi tvo léttbáta frá skipinu til að athuga aðstæður umhverfis hræið. Reyndist um 15 metra langan búrhval að ræða. Taugum komið á sporðinnMynd: lhg.is Samkvæmt síðu Landhelgisgæslunnar var hvalurinn nánast á þurru en á meðan beðið var...
LandiðSímabann nemenda við Borgarhólsskóla Í dag varð Borgarhólsskóli á Húsavík símalaus skóli. Tilkynnt var um þetta á vef skólans. „Breyttir tímar kalla á breytta nálgun og nú hefur verið tekin sú ákvörðun að leggja símum nemenda í skólanum til hliðar. Frá og með deginum í dag er Borgarhólsskóli símalaus skóli. Nemendum í fyrsta til og með tíunda bekk verður óheimilt að nota farsíma á...
LandiðNýr miðbær Egilsstaða gerir ráð fyrir 160 íbúðum – Opin torg og græn svæði fjarri bílaumferð Gert er ráð fyrir 160 íbúðum í nýlega staðfestu deiliskipulagi í miðbæ Egilsstaða. Þá er einnig gert ráð fyrir verslun og þjónustu á neðri hæðum íbúðanna. Hefur hinn nýji miðbæjarkjarni hlotið nafnið Straumur en göngugatan Ormurinn er þar í lykihlutverki. Auglýsir nú Múlaþing eftir samstarfsaðilum um uppbygginguna. Fram kemur á heimasíðu Múlaþings að nú sé hafin uppbygging á nýjum miðbæ...
LandiðHald lagt á 158 kannabisplöntur á Selfossi: „Ég held að þeir hafi bara runnið á lyktina“ Lögreglan á Suðurlandi kom upp um kannabisræktun á Selfossi í síðustu viku. Var lagt hald á 158 plöntur og búnað til ræktunar. Sunnlenska.is sagði frá málinu í dag. Kemur þar fram að tveir menn hafi verið handteknir vegna málsins en voru látnir lausir eftir yfirheyrslu. Í samtali við Mannlíf sagði lögreglufulltrúi að upp hafi komist um kannabisræktunina af tilviljun. „Ég...