Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Seyðfirðingar móðgaðir yfir aprílgabbi, eða hvað? „Þetta er besta, langbesta apríl gabb ever!

Seyðfirðingar móðgaðir yfir aprílgabbi, eða hvað? „Þetta er besta, langbesta apríl gabb ever!

Seyð­firð­ingar brugð­ust sumir hverjir ókvæða við frétt sem birt­ist á heima­síðu Múla­þings í gær­morgun. Í frétt­inni stóð að til stæði að taka fyrstu skóflustung­una að nýjum íbúð­ar­kjarna fyrir eldri borg­ara á gamla íþrótta­vell­inum. Um apr­ílgabb var að ræða en spurn­ingin er, hver gabb­aði hvern?

Samkvæmt Aust­ur­frétt birt­ist frétt rétt fyrir klukkan tíu í gær­morgun, um að nú ætti að taka fyrstu skóflustung­una fyrir nýjum íbúð­ar­kjarna sem byggja á á gamla íþrótta­velli bæj­ar­ins. Seyð­firð­ingar voru hvattir til að mæta í bún­ingum við hæfi og helst með fána og freyði­vín. Þá var senni­leg­ast verið átt við hinn gula bún­ing Hugins Seyð­is­firði.

Ekki var fréttin búin að vera lengi inni þegar hún var merkt sem apr­ílgabb enda var 1. apríl einmitt í gær. Í hádeg­inu var fréttin svo fjar­lægð. Í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á Facebook-síðu Múla­þings í gær biðst starfs­fólk skrif­stof­unnar á Seyð­is­firði afsök­unar á athæf­inu og kveðst vera leitt að hafa sært eða móðgað íbúa bæj­ar­ins með gríni sem sett var fram í góðri trú.

Samkvæmt heim­ildum Aust­ur­fréttar tóku að ber­ast athuga­semdir á skrif­stofu Múla­þings, skömmu eftir að fréttin fór í loftið. Íbúða­kjarn­inn sem vissu­lega mun rísa á gamla íþrótta­vell­inum er ætl­aður fyrir eldra fólk á Seyð­is­firði en hópur þess hefur nú þegar fest sér íbúðir í nýja kjarn­anum.

Ef athuga­semdir við afsök­un­ar­beiðn­inni á Facebook-síðu Múla­þings eru skoð­aðar er ekki að finna einn móðg­aðan Seyð­firð­ing enda ann­ál­aðir húmoristar. Einn þeirra segir að þau einu sem hafi látið gabb­ast hafi verið frétta­smið­irnir sjálfir: „Þetta er besta, lang­besta apríl gabb ever! Það er að segja að þykj­ast móðg­ast yfir gabb­inu. Og að biðj­ast afsök­unar á því. Kæru vin­konur. Þið hlupuð 1. Apríl. Þetta gabb var svo sak­laus að það er ekki mögu­leiki að móðg­ast yfir því. Nema sveit­ar­stjór­inn kannski, það er hann sem fær pillu.“

Í frétt Aust­ur­fréttar kemur fram að hús­næð­is­skortur sé tals­verður á Seyð­is­firði en skriðu­föllin í des­em­ber 2020 gerðu illt verra. Í kjöl­far þeirra þurfti að finna nýtt land undir íbúa­byggð og varð gamli íþrótta­völl­ur­inn fyrir val­inu. En þrátt fyrir að skipu­lagn­ing sé hafin og úthlutun íbúa hefur átt sér stað, hafa fram­kvæmdir látið standa á sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil