LandiðVindmyllur við Lagarfossvirkjun komnar aftur á dagskrá Orkusalan hyggst byggja tvær vindmyllur skammt frá Lagarfossvirkjun í Múlaþingi. Samkvæmt frétt Austurfréttar eru áform Orkusölunnar um byggingu tveggja vindmylla aftur komin á fullt skrið eftir að hafa verið sett í salt. Hugmyndin kom fyrst fram árið 2018 en þá vildi Orkusalan sem sér meðal annars um rekstur Lagarfossvirkjunnar, kanna hagkvæmnina við uppbyggingu vindorku á svæðinu. Fram kemur í frétt...
LandiðAfar óvenjulegt haust í Grýtubakkahreppi: „Ég hef aldrei slegið í október fyrr“ Á frétt Bændablaðsins kemur fram að Stefán Rúnar Sævarsson, bóndi á Syðri-Grund í Grýtubakkahreppi, hafi verið að ljúka slætti í gær, 21. október. Veðrið var hið besta, miðað við árstíma, 10 gráða hiti og stilla. „Ég hef aldrei slegið í október fyrr,“ segir Stefán í samtali við blaðamann Bændablaðsins. Einnig náði hann að slá á miðvikudaginn en alls náði hann...
LandiðÓboðlegt að notast við Baldur áfram Nýlega sendi Vegagerðin frá sér tilkynningu er varðaði ferjusiglingar yfir Breiðafjörð. Kom þar fram að niðurstaða stofnunarinnar væri sú að áfram skuli notast við núverandi skip til ferjusiglinga yfir Breiðafjörðinn, á meðan samningur um þjónustu er enn í gildi. Þá skuli huga að endurnýjun ferjumannvirkja. Þar kemur einnig fram að ekkert skip hafi fundist sem uppfylli þær kröfur sem fram...
LandiðAtvinnuleysi á Suðurnesjum hefur lækkað um 17 prósent á átta mánuðum „Í byrjun ársins 2021 var atvinnuleysið á Suðurnesjum 26% á meðan heildaratvinnuleysi á landinu öllu var 12,8%. Á bak við töluna 26% voru 3.871 einstaklingar, fleiri konur voru atvinnulausar en karlar og aðeins fleiri atvinnuleitendur voru með erlent ríkisfang en íslenskt,“ segir Hildur Jakobína Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum, og bætir við: „Ríkisstjórnin setti á fót átakið „Hefjum störf“ og...
LandiðHalldór vert á Egilsstöðum æfur: „Þetta eru helgispjöll!“ Eigandi Tehússins á Egilsstöðum er æfur vegna fyrirætlana ÁTVR um að byrja sölu á JólaTuborg viku á undan J-deginum danska. Vill hann segja sig úr lögum við ÁTVRíkið. J-dagurinn hefur verið haldinn hátíðlega í Danmörku síðan 1990 en þá fagna kráareigendur komu jólaútgáfu Tuborg-bjórsins. Hefð er fyrir því að halda daginn fyrsta föstudag nóvember hvert ár en íslenskar krár hafa...
LandiðEnn eitt körfuknattleiksliðið sendir út neyðarkall – Nú er það Skallagrímur Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi berst nú fyrir tilvist sinni, en boðað hefur verið til neyðarfundar. Þar verður rætt um vandamál sem komið er upp hjá félaginu, en svo gæti farið að Skallagrímur þurfi að draga sig úr keppni á Íslandsmótinu. Er þetta þriðja körfuknattleiksliðið úti á landi sem sendir út neyðarkall, á stuttum tíma. Fyrir stuttu birti Mannlíf fréttir af...
LandiðTugmillljónatjón á Súðavík Töluvert tjón varð í Súðavíkurhöfn er óveðrið gekk þar yfir 28. september síðastliðinn. Auk þess skemmdist bátur frá Iceland Sea Angling allnokkuð er síða brotnaði. Mynd: bb.is Fram kemur á fréttavefnum Bæjarins besta, bb.is, að Bragi Þór Thoroddsson, sveitastjóri Súðavíkurhrepps, teldi tjónið neam um 15 til 20 milljónir en það sé lauslega áætlað. Sjá má á myndum bb.is að flotabryggjan...
LandiðSmit í Borgarhólsskóla: Húsvíkingum ráðlagt að fara varlega og spritta sig Óvissa ríkir nú á Húsavík eftir að kórónuveirusmit kom upp meðal nemenda og starfsfólks. Skólahald í Borgarhólsskóla fellur niður í dag og á morgun vegna smitsins.Smitrakning stendur nú yfir og verður staðan endurmetin á þriðjudag samkvæmt vefsíðu Borgarhólsskóla. Þá mælast skólastjórnendur til þess að fólk forðist hópamyndun og passi sérstaklega vel upp á persónulegar sóttvarnir. Reynt verður að sporna við...
LandiðSeyðisfjörður einn af 17 fallegustu smábæjum veraldar Seyðisfjörður er á lista yfir 17 fallegustu smábæjum heims, samkvæmt tímaritinu Travel + Leisure. Í inngangi greinarinnar segir að fyrir hverja Parísarborg, Róm eða Lundúnarborg, eru hundruðir lítilla evrópskra bæja sem fanga anda þjóða sinna. „Frá pínulitlu íslensku þorpi sem er umlukið stórkostlegu landslagi til ævaforns sjávarþorps við Svartahafið, hér eru 17 smábæir í Evrópu sem þú getur bætt við...
LandiðSlydda og ófært á Vestfjörðum Gul viðvörun á Vestfjörðum á morgun vegna veðurs. Færð og akstursskylirði erfið og getur versnað þegar líða tekur á daginn á morgun. Þá er spáð snjókomu nær sjávarmáli og vindur verður á bilinu fimmtán til 23 metrar á m/s. Veðurspá á landinu næstu daga er heldur kuldaleg og er hitanum hvergi spáð yfir níu gráður. Veðurhorfur eru bestar á Austurlandi...
LandiðHöfðingjasetur Sigurjóns á Austurlandi er gengið út – Landsbankinn seldi Eiða Þéttbýliskjarninn Eiðar í Múlaþingi hefur verið seldur. Lengi verið erfitt að finna staðnum hlutverk. Samkvæmt frétt Austurfrétta hefur Landsbankinn tekið tilboði í eignir sem hafa verið til sölu á Eiðum. Þó hefur ekki enn verið gengið frá kaupsamningnum en eignin hefur verið tekin af söluskrá. Síðastliðið vor tók Landsbankinn tilboði en með fyrirvörum um fjármögnum. Það tilboð gekk svo til...
LandiðSnæfell sendir út neyðarkall: „Þá er næst á dagskrá að leggja niður deildirnar“ Körfuknattleiksdeild Snæfells lýsti eftir fólki í stjórn á dögunum en fékk dræm viðbrögð. Nú sendir Snæfell frá sér neyðarkall á Facebook síðu sinni. Körfuknattleiksdeild Vestra, Ísafirði er ekki sú eina sem sent hefur frá sér neyðarkall vegna manneklu í stjórn en í gær kom slíkt kall frá körfuknattleiksdeild Snæfells. „Ef ekki næst að manna stjórn þá er næst á dagskrá...