LandiðÍtrekaðar íkveikjur á Selfossi – Brunavargur stundar ruslagámabrennslu Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu hefur að undanförnu slökkt elda sem kviknað hafa í ruslagámum á Selfossi. Svo virðist sem brunavargur eða vargar séu lausir í bænum. Klukkan 4, aðfaranótt laugardags síðastliðinn var Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu kallað út á Selfossi vegna elds í ruslagámi við Tryggvagötu. Kom þetta fram á Sunnlenska.is. Gámurinn sem um ræðir er stór plastgámur en það lokaði ansi...
LandiðTómas Þorvaldsson GK-10 með metafla til Grindavíkur – Farmurinn metinn á 323 milljónir Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK-10 kom til hafnar í Grindavík í fyrradag. Samkvæmt Sigurði Jónssyni skipstjóra var skipið við veiðar í um þrjátíu daga úti fyrir Suðurlandi og á Vestfjarðamiðum. Þá segir hann að þrátt fyrir nokkuð rysjótt veður hafi verið hægt að veiða alla dagana. Fram kemur í frétt VF.is að togarinn hafi verið úti fyrir Suðurlandi að eltast við...
LandiðCovid-19Starfmaður sjúkrahússins í Neskaupstað með Covid – Sjötíu sýni tekin í tengslum við smitið Seint í fyrradag var Covid-19 smit staðfest hjá starfsmanni Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupsstað. Í gær voru sjötíu sýni tekin í tengslum við þetta smit. Þá hafa heimsóknir á sjúkrahúsið verið takmarkaðar fram á þriðjudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi en Austurfrétt fjallaði um málið. Segir í tilkynningunni að strax í gærmorgun hafi, í samvinnu við...
LandiðCovid-19Austfirðingar duglegastir að þiggja þriðju sprautuna Tæplega 28 prósent Austfirðinga hafa nú þegið örvunarsprautu vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Er það langstærsta hlutfall sprautuþega á landinu. Austurfrétt segir frá þessu í dag. Upplýsingarnar eru fengnar frá Covid.is en heildarhlutfall fullbólusettra Austfirðinga sem hafa þegið eina örvunarsprautu, stendur í 77 prósentum. Er það á pari við heildarfjöldann annars staðar á landinu. Hingað til hafa Austfirðingar verið mun duglegir að...
LandiðEnginn fjörugur föstudagur í Grindavík í fyrsta sinn í áratug Ákveðið hefur verið að aflýsa Fjörugum föstudegi í Grindavík þetta árið. Ástæðan er að sjálfsögðu Covid. Fram kemur á vef vf.is að ákvörðunin hefði verið tekin í samráði við fyrirtækjaeigendur við Hafnargötu í Grindavík en halda átti daginn 3. desember næstkomandi. Kemur þetta til vegna þeirra samkomutakmarkana sem eru í gildi fram til 8. desember. Þó munu fyrirtæki við götuna...
LandiðEldur í Gullhólma SH – Áhöfnin brást kórrétt við Upp kom eldur í Gullhólma SH snemma í morgun en skipið var á Breiðafirði. Engan sakaði. Samkvæmt mbl.is er haft eftir Svani Tómassyni slökkviliðsstjóra, að skipverjar Gullhólma SH hafi brugðist hárrétt við en þeir ræstu slökkvikerfi skipsins, lokuðu rýmum og kallaði eftir aðstoð. Engan sakaði í brunanum. Var nærliggjandi bátum gert viðvart en björgunarskip Lífsbjargar, Björgin, dróg skipið til hafnar...
LandiðÞegar ég og fimm vinir mínir gengum berserksgang á Egilsstöðum Ætli árið hafi ekki verið 2001. Svona sirka. Það var föstudagskvöld að vetri til og við vorum sex félagarnir á pöbbarölti á Egilsstöðum. Já, það er hægt. Eins og oft vildi til á þessum árum, og sjálfsagt er það þannig enn, þá voru föstudagskvöldin ívið daufari en laugardagskvöldin. Og árið 2001 var engin Vika með Gísla Marteini til að stytta...
LandiðKolígerlar í neysluvatni Stöðfirðinga – hvattir til að sjóða vatnið Fundist hafa kolígerlar í neysluvatni Stöðfirðinga. Kom þetta fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu og eru Stöðfirðingar hvattir til að sjóða vatnið, til þess að gæta öryggis. Austurfrétt sagði frá þessu máli. Er þetta í annað skiptið á stuttum tíma sem þessi staða kemur upp á Stöðvarfirði en kolígerlar fundust í neysluvatninu í síðustu viku september.
LandiðKristján Þór gerði sænska poppsöngkonu að heiðursborgara Húsavíkur: Bergur bæjarfulltrúi er reiður Kristján Þór Magnússon, sveitastjóri Norðurþings, veitti nýverið sænsku söngkonunni Molly Sandén titilinn heiðursborgari Húsavíkur og virðist hann hafa gert það án alls samráðs við sveitastjórnina, að undanskilinni Helenu Eydísi Ingólfsdóttur, formanni byggðarráðs og fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í sveitastjórninni. Söngkonan sænska hlaut nafnbótina í beinni útsendingu í spjallþætti á sænsku sjónvarpsstöðinni TV4 og var það sendiherra Íslands í Svíðþjóð, Hannes Heimisson, sem...
LandiðSveindís Jane sú tíunda besta í Svíþjóð – Íslenskir ofurhæfileikar tryggja henni stórgott tímabil Víkurfréttir segja frá því í dag að sænski vefmiðillinn Damallsvenskan Nyheter setji Sveindísi Jane Jónsdóttir, landsliðskonu í knattspyrnu, í tíunda sæti yfir bestu leikmenn tímabilsins í sænsku knattspyrnunni.
LandiðNý björgunarmiðstöð var vígð á Flateyri um helgina: „Fjöllin hafa verið okkur erfiðust“ „Þetta er stórkostleg stund. Við erum að margfalda húsakostinn okkar og bæta mjög allt öryggi íbúa hér á Flateyri. Sagði Magnús Einar Magnússon formaður björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri. Björgunarsveitin tók í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði undir starfsemi sína á laugardaginn. Frá vigslunni um helgina.Mynd: Guðmundur Jón Sigurðsson. „Þetta er svo miklu meira en bara athvarf fyrir björgunarsveitina, hér verður...
LandiðBifreið endaði í Fjarðará á Seyðisfirði – Einn leitaði til læknis Bifreið endaði ofan í Fjarðará á Seyðisfirði á laugardagskvöld síðastliðið. Einn leitaði til læknis eftir óhappið. Lögreglan rannsakar málið. Samkvæmt frétt Austurfréttar um málið voru tveir einstaklingar í bifreiðinni en þeir komust sjálfir úr bílnum en bíllinn endaði nálægt bakkanum. Lögreglan kannar nú ástæður slyssins en grunar að bílnum hafi verið ekið of hratt.