LandiðÁlkassi setti allt í bál og brand: Drukkinn maður dæmdur fyrir að hóta að brjóta framtennur Karlmaður var nýlega dæmdur af Héraðsdómi Austurlands í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa hótað öðrum barsmíðum. Mennirnir deildu um álkassa. Samkvæmt Austurfrétt kom sá ákærði eitt júníkvöld í fyrra, að heimili hins mannsins, ásamt vini sínum. Var honum gefið að sök að hafa þar haft í hótunum við manninn og ógnað honum. Hótaði hann meðal annars að brjóta...
LandiðÓfremdarástand í sumarbyggð á Héraði: Sóðar og skotmenn bannaðir á Einarsstöðum Framvegis mun AFL Starfsgreinafélag tilkynna alla meðferð skotvopna, sem ekki samræmast reglum, til lögreglu. Hefur félagið undanfarið hert eftirfylgni með umgengni um bústaði félagsins á Einarsstöðum á Héraði. Í nóvember síðastliðnum var lögreglan kölluð að sumarhúsabyggðinni Einarsstöðum, eftir að rjúpnaskytta ógnaði unglingum sem þar voru að skemmta sér, með byssu. Fram kemur í frétt Austurfréttar var byssumaðurinn ekki í bústað...
LandiðCovid-19Sýnatökur á Austurlandi í mýflugumynd – Ekki allir geta farið í sýnatöku Smitum hefur fjölgað ört á Austurlandi að undanförnu og hafa nú þegar yfir 500 manns farið í sýnatökur eftir að aðgerðastjórnin á Austurlandi hvatti til þess. En það komast ekki allir í sýnatöku. „Mér finnst það umhugsunarefni að hvetja alla til að fara í próf til öryggis en gefa ekki öllum kost á því í raun og veru,“ segir Jóhanna...
LandiðAndlit húsvarðar eins og eftir efnabruna – Háskólinn á Akureyri óttaðist geislavirkni Húsvörður sem komst í snertingu við torkennilegan hlut í kjallara Háskólans á Akureyri í vikunni var sendur á sjúkrahús eftir skyndileg veikindi. Andlitið eins og eftir efnabruna Staðarmiðillinn Akureyri.net greinir frá þessu í morgun. Þar segir að hluturinn hafi verið stór geymsluhólkur. Starfsmaðurinn sem veiktist er einn af húsvörðunum í skólanum. Hann fékk að fara heim af sjúkrahúsinu í gær....
LandiðTveir vörubílar í harkalegum árekstri – mikil hálka á veginum Árekstur varð er tveir stórir vörubílar skullu harkalega saman á Akreyri um miðjan dag í dag. Varð áreksturinn á mótum þingvallastrætis og Miðhúsabrautar. Ekki liggja ástæður óhappsins fyrir en mikil hálka var á veginum. Bílarnir eru talsvert skemmdir en ökumenn sluppu með meiðsl. Mynd: Skapti Hallgrímsson Samkvæmt Akureyri.net lak nokkur olía úr bílunum en slökkviliðið var fljótt að mæta á...
LandiðLögreglan brást rétt í máli skotmannsins – rannsókninni hætt Héraðssaksóknari hefur hætt rannsókn á vinnubrögðum lögreglu við skotárás í Dalseli í lok ágúst síðastliðnum. Maður á fimmtugsaldri réðist í hús við Dalsel á Egilsstöðum að kvöldi 26. ágúst þar sem hann skaut úr byssum sínum, bæði innan húss og utan. Skotin hæfðu hús og bíla í nágreninu. Þá ógnaði hann tveimur drengjum sem voru á heimilinu sem hann réðinn...
LandiðCovid-19Ekkert skólastarf á Eskifirði í dag – Starfsmaður greindist með smit Allt skólahald hefur verið fellt niður í Eskifjarðarskóla í dag eftir að starfsmaður skólans greindist með Covid smit. Samkvæmt Austurfrétt eru nemendur sem og starfsmenn skólans hvattir til að taka PCR próf í dag. Opið er á heilsugæslunni á Reyðarfirði milli 12 og 13. Er fólk beðið um að halda sig heima fyrir þar til niðurstaða liggur fyrir sem ætti...
LandiðTálknfirðingar eru áhyggjufullir: Sláturskip svelta hafnirnar Á síðasta fundi sínum tók sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps sérstaklega til umræðu áhrif af sláturskipum í fiskeldi og áhrifum þeirra á rekstrartekjur hafna. Lýst var yfir áhyggjum af málinu og vill sveitarstjórnin setja ákvæði í lög um starfsemi og notkun sláturskipa hér við land. Samkvæmt Bæjarins bestu er tilefni bókunarinnar það að tvívegis hafi komið til lands fyrir vestan norskt sláturskip til...
LandiðBrennuvargurinn á Selfossi náðist á mynd Undanfarnar vikur hefur brunavargur gengið laus á Selfossi en hefur hann sérhæft sig í að kveikja í ruslagámum. Síðast kveikti hann í ruslagámi við Vefjuna við Tryggvagötu og stuttu síðar í ruslagámi við Vallaskóla. Samkvæmt frétt sunnlenska.is, sést aðili í eftilitsmyndavélum, í blárri úlpu, svartri hettupeysu, dökkum buxum og dökkum skóm með hvítri rönd koma eftir Bankavegi kl. 2:33, fara...
LandiðÓmar segir landsbyggðina hlæja: „Hlálegt að kalla nokkurra sentimetra snjóföl fannkyngi“ Ómar Ragnarsson skrifar stutta en skemmtilega færslu á bloggsíðu sinni í morgun með fyrirsögninni „Hlálegt að kalla nokkurra sentimetra snjóföl fannkyngi.“ Segir Ómar að það vekji kátínu landsbyggðarinnar þegar Reykvíkingar tala um að snjó kyngdi niður þegar smá snjókoma er. Ómar Ragnarsson „“Snjó kyngdi niður“ og hliðstæð ummæli um nokkurra sentimetra þykkan snjó, sem féll á höfuðborgarsvæðinu vekur kátínu hjá...
LandiðJómfrúarverkefninu er lokið – Fyrsti dráttur Freyju heppnaðist Nýjasta varðskip Landhelgisgæslunnar, Freyja, kláraði í fyrradag fyrsta verkefni sitt en Freyja kom til landsins 6. nóvember. Gekk verkefnið framar vonum og lauk því fyrr en áætlað var. Skipið dró flutningaskipið Franxisku til hafnar. Þessi fyrsti dráttur varðskipsins næyja heppnaðist einstaklega vel og var skipinu komið heilu til hafnar. Varðskipið FreyjaMynd: lhg.is Samkvæmt lhg.is kom Freyja með flutningaskipið Franciscu til...
LandiðInnbrotaalda á Suðurlandi – þrjú innbrot á tveimur vikum Snemma í síðustu viku var brotist inn í vinnuskúr við Stóru Laxá og rafmagnsverkfærum stolið þaðan. Eru þau metin á aðra milljón króna. Sunnlenska.is fjallar um málið í dag. Verkfærin eru framleidd af Dewalt og Milwakee og af hinum ýmsum tegundum. Ekki urðu miklar skemmdir á vinnuskúrnum. Lögreglunni var einnig tilkynnt um stuld á pípulagnaefni og verkfæri úr húsbyggingu á...