Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Álkassi setti allt í bál og brand: Drukkinn maður dæmdur fyrir að hóta að brjóta framtennur

Álkassi setti allt í bál og brand: Drukkinn maður dæmdur fyrir að hóta að brjóta framtennur
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands

Karl­maður var nýlega dæmdur af Hér­aðs­dómi Aust­ur­lands í 30 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að hafa hótað öðrum bar­smíðum. Menn­irnir deildu um álkassa.

Samkvæmt Aust­ur­frétt kom sá ákærði eitt júní­kvöld í fyrra, að heim­ili hins manns­ins, ásamt vini sínum. Var honum gefið að sök að hafa þar haft í hót­unum við mann­inn og ógnað honum. Hótaði hann meðal ann­ars að brjóta fram­tenn­urnar á mann­inum á tröpp­unum.

Ástæða deil­unnar milli mann­anna er álkassi sem sá sem kærði smíð­aði. Var kass­inn geymdur hjá félaga manns­ins þar til hann hvarf árið 2017. Sá ákærði sagð­ist hafa fundið kass­ann á brota­járns­haug og tekið hann.

Sá er smíð­aði álkass­ann sá síðar kass­ann hjá mann­inum og hringdi í hann og bauð honum pen­ing fyrir kass­ann. Þegar því boði var hafnað fór hann og sótti kass­ann. Þegar sá ákærði kom á svæðið tók hann eftir að fleira en álkass­inn var horfið. Bað hann því vin sinn að keyra sig að heim­ili smiðs­ins.

Fyrir dómi við­ur­kenndi mað­ur­inn að hafa verið reiður og hávær þegar hann mætti heim til manns­ins og slegið flötum lófa á húsið til að leggja áherslu á orð sín. Segist hann enn­fremur ekki hafa ætlað að berja mann­inn, þetta hafi bara verið rifr­ildi milli tveggja manna, engin ögrun hafi átt sér stað né hót­anir. Að lokum var hann dreg­inn í burtu af vini sínum. Þegar lög­reglan kom á vett­vang var því allt yfir­staðið.

Vitnin að atburð­inum, þar með tal­inn vin­ur­inn og fleiri sjón­ar­vottar, studdu ekki þessa frá­sögn manns­ins, en vin­ur­inn hafði fengið sím­töl frá óþekktum aðilum um að draga fram­burð sinn til baka en lét sér ekki segj­ast.

Samkvæmt vitn­unum var mað­ur­inn aug­ljós­lega drukk­inn og brjál­aður þegar hann mætti að heim­ili kassa­smiðs­ins. Hafi hann haft uppi nóg af hót­unum, meðal ann­ars um að brjóta fram­tenn­urnar á hús­ráð­and­anum. Sá hefði hins vegar ekki ögrað gest­inum, heldur verið ákveð­inn en rólegur.

Taldi dóm­ur­inn fram­burð vitn­anna trú­verð­ugan og með þeim hefði verið sannað að mað­ur­inn hafi við­haft gróf hót­un­ar­orð sem hefðu verið til þess fallin að vekja ótta hús­ráð­and­ans um líf sitt og heil­brigði. Var hann því dæmdur í 30 daga skil­orðs­bundið fang­elsi til næstu tveggja ára. Þar að auki þarf hann að greiða helm­ing máls­kostnað, um 180 þús­und krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil