Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kristján Þór gerði sænska poppsöngkonu að heiðursborgara Húsavíkur: Bergur bæjarfulltrúi er reiður

Kristján Þór gerði sænska poppsöngkonu að heiðursborgara Húsavíkur: Bergur bæjarfulltrúi er reiður

Kristján Þór Magn­ús­son, sveita­stjóri Norð­ur­þings, veitti nýverið sænsku söng­kon­unni Molly Sandén tit­il­inn heið­urs­borg­ari Húsa­víkur og virð­ist hann hafa gert það án alls sam­ráðs við sveita­stjórn­ina, að und­an­skil­inni Helenu Eydísi Ing­ólfs­dóttur, for­manni byggð­ar­ráðs og full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sveita­stjórn­inni.

Söng­konan sænska hlaut nafn­bót­ina í beinni útsend­ingu í spjall­þætti á sænsku sjón­varps­stöð­inni TV4 og var það sendi­herra Íslands í Svíðþjóð, Hannes Heim­is­son, sem veitti Sandén nafn­bót­ina við dyn­andi lófa­klapp. Kristján sjálfur var fjarri góðu gamni því hann er í veik­inda­leyfi frá störfum sínum sem bæj­ar­stjóri.

Kristján Þór Magn­ús­son, sveit­ar­stóri Norð­ur­þings.

Flestir hissa

Svo virð­ist sem það komi flestum sveita­stjórn­ar­full­trúum á óvart að Sandén söng­kona hafi hlotið þennan heiður, án þess að það hafi hvorki nokkuð verið rætt af sveita­stjórn­inni né tekið fyrir í byggð­ar­ráði. Stað­ar­mið­ill full­yrðir að sveit­ar­stjórn­ar­full­trúar kann­ist fæstir við að heiðra hafi átt söng­kon­una með nafn­bót­inni heið­urs­borg­ari.

Í sam­tali við Viku­blaðið stað­festir Helena að Kristján bæj­ar­stjóri hafi komið á mál við sig og þau hafi saman verið mjög jákvæð fyrir því að veita Sandén tit­il­inn. „Vegna eðli máls­ins var ekki hægt að setja afgreiðsl­una í fund­ar­gerð þar sem koma átti Molly á óvart en vissu­lega hefði átt að ræða málið og fá sam­þykki ráðs­ins,“ segir Helena.

Eins og frægt er orðið þá söng Sandén lagið Husavik (My Hometown) í kvik­mynd­inni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, sem til­nefnt var til Óskar­verð­launa í ár sem besta frum­samda lagið.

Sænska söng­konan hefur komið einu sinni til Húsa­víkur og söng þá lagið ásamt stúlkna­kór sem flutt var sem opn­un­ar­at­riði á verð­launa­há­tíð­inni í apríl síð­ar­liðnum.

Fyrir þá sem vilja njóta tóna Sandén þá er lagið hennar Husavik í spil­ar­anum hér fyrir neðan:

Falsfrétt

Bergur Elías Ágústs­son sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi er alls ekki hrif­inn af því að Sandén hafi nú þegar hlotið tit­il­inn enda sér útnefn­ing heið­urs­borg­ara stórt mál sem ræða þurfi vel í sveita­stjórn. Hann segir fréttir af mál­inu því fals­fréttir því heið­urs­nafn­bótin hafi hvorki fengið umræðu né verið form­lega sam­þykkt.

„Áður en lengra er haldið, er rétt að það komi fram að Molly ásamt fleirum hafa staðið fyrir frá­bærri kynn­ingu á mínu indæla sam­fé­lagi sem Húsavík er, eftir því hefur verið tekið um víða ver­öld. kæra Molly, takk fyrir allt sem þú hefur fært Húsavík með þínum hæfi­leikum, gleði og gæsku. Í mínum huga ert þú eistak­lingur árs­ins á Húsavík, þó svo að heið­urs­nafn­bótin heið­urs­borg­ari hafi ekki verið sam­þykkt. Hver veit nema að það verði gert síðar og þá af þar til bærum aðilum. Málið hefur því miður hvergi verið rætt í sveit­ar­stjórn né ákvörðun tekin um veit­ingu tit­ils­ins. Því miður er málið þannig vaxið að hér er um „fals­frétt“ að ræða sem sveit­ar­stjóri og for­maður byggð­ar­ráðs bera alfarið ábyrgð,“ segir ósáttur Bergur og bendir á að ákveðnar reglur gildi um nafn­bótin sem ekki hafi verið farið eftir.

„Það vekur mikla furðu að sendi­herra Íslands í Svíþjóð, hefur fyrir hönd sveita­stjóra Norð­ur­þings veitt okkar ynd­is­legu Molly titil heið­urs­borg­ara, með þeirri ábyrgð sem því fylgir. Svo virð­ist sem sendi­herra hafi ekki tryggt að sú heið­urs­nafn­bót sem hann afhenti  eigi við rök að styðj­ast. En senni­lega er það ósann­gjörn krafa til sendi­herr­ans að fylgj­ast með stjórn­sýslu­af­greiðslum í litlu sveit­ar­fé­lagi á Norð­ur­landi.“

Leyfið framlengt

Eins og Mannlíf greindi fyrst frá er Kristján Þór Magn­ús­son, sveit­ar­stjóri Norð­ur­þings, í veik­inda­leyfi af ótil­greindum ástæðum. Hann hafði verið í fjög­urra vikna veik­inda­leyfi en það var í vik­unni fram­lengt um aðrar þrjár vikur.

Bergur er reiður yfir því hvernig staðið var að mál­inu og segir skýrar við­mið­un­ar­reglur gilda um útnefn­ingu heið­urs­borg­ara. Á Húsavík hljóti að þurfa að fylgja reglum að hans mati og tínir Bergur til neð­an­greindar reglur hvað varðar ákvörðun nafn­bót­ar­innar:

1. Störf við­kom­andi hafi haft veru­leg jákvæð áhrif á sam­fé­lagið.

2. Störf og fram­ganga hafi verið til fyr­ir­myndar og til eft­ir­breytni.

3. Jákvæða ímynd bæði innan sam­fé­lags­ins sem utan.

4. Sveit­ar­stjórn skal vera ein­huga við val á heið­urs­borg­ara.

5. Sveit­ar­stjórn skal fara með val á heið­urs­borg­ara sem trún­að­ar­mál fram að heiðrun við­kom­andi, þó skal nán­ustu ætt­ingjum vænt­an­legs heið­urs­borg­ara gert kunn­ugt um valið.

6. Heið­urs­borg­ari skal heiðr­aður við hátíð­lega athöfn, s.s. við opin­bera hátíð eða stóraf­mæli við­kom­andi.

7. Heið­urs­borg­ari fær skraut­ritað inn­ram­mað skjal und­ir­ritað af öllum sveit­ar­stjórn­ar­full­trúum til stað­fest­ingar. Á skjal­inu kemur fram nafn við­kom­andi, dag­setn­ing fundar sveit­ar­stjórnar, und­ir­ritun sveit­ar­stjórnar og sveit­ar­stjóra.

8. Heið­urs­borg­ari hefur engar skyldur gagn­vart sveit­ar­fé­lag­inu sem slíkur.

9. Sveit­ar­fé­lagið hefur eft­ir­far­andi skyldur gagn­vart heið­urs­borg­ara: Fellir niður fast­eigna­skatt af íbúð­ar­húsi heið­urs­borg­ara sem hann á og býr í.

10. Býður heið­urs­borg­ara til opin­berra athafna/veislna á vegum sveit­ar­fé­lags­ins.

11. Heldur nöfnum heið­urs­borg­ara með titl­inum heið­urs­borg­ari á lofti við til­hlýði­leg tæki­færi.

12. Tekur þátt í athöfn við útför heið­urs­borg­ara, þegar þar að kemur, að beiðni sveit­ar­stjórnar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil