Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar ég og fimm vinir mínir gengum berserksgang á Egilsstöðum

Þegar ég og fimm vinir mínir gengum berserksgang á Egilsstöðum
Heimskast

Ætli árið hafi ekki verið 2001. Svona sirka. Það var föstu­dags­kvöld að vetri til og við vorum sex félag­arnir á pöbb­arölti á Egils­stöðum. Já, það er hægt. Eins og oft vildi til á þessum árum, og sjálf­sagt er það þannig enn, þá voru föstu­dags­kvöldin ívið dauf­ari en laug­ar­dags­kvöldin. Og árið 2001 var engin Vika með Gísla Marteini til að stytta unga fólk­inu stundir á föstu­dags­kvöldum. Athugið að nöfnum hefur verið breytt.

Við fórum sem sagt á bar sem bar hið frum­lega nafn Ormurinn. Fyrir utan okkur vit­leys­ing­ana og bar­þjón­inn, var stað­ur­inn tómur. Við ákváðum þá að rölta yfir göt­una og yfir á bar­inn á Hótel Héraði. Hann var dýr­ari og leið­in­legri en við ákváðum samt að prófa. Þegar við komum þangað var næt­ur­vörð­ur­inn að loka barnum enda klukkan orðin þrjú að nóttu og ekki sála á barnum. Við ætl­uðum þá að láta okkur hafa það og halda drykkj­unni áfram á Orminum. Það vildi ekki betur til en svo að þeim bar var einnig lokað, þar sem fjöldi gesta, sem var 0, svar­aði ekki launa­kostn­aði.

Hvað gátu þá hressir, ungir karl­menn með tölu­vert áfengi í æðum til bragðs tekið? Farið heim að sofa? Ekki að ræða það.

Við byrj­uðum á að stela fánum frá fyr­ir­tækjum í nágrenn­inu. Ég gerði heið­ar­lega til­raun til að taka fána­stöng upp úr fest­ingu sinni fyrir framan 10/11-verslun sem þá var á Egils­stöðum. Það tókst ekki betur en svo að ég missti stöng­ina og braut þar með kúl­una sem var efst uppi. Það átti eftir að verða hópnum að falli síðar meir.

Við gengum svo um bæinn í leit að fjöri en tveir úr hópnum, sem við skulum kalla Vékel og Fífil, ákváðu að fara inn í garð hjá ein­hverju fólki og inn í tré­hús sem þar stóð. Þar fóru þeir að leika apa með til­heyr­andi gólum og ólátum. Okkur til skelf­ingar rauk hús­bónd­inn á heim­il­inu út úr húsi sínu, vopn­aður hafna­bolta­kylfu. „Hvað eruð þið að gera? Af hverju eruð þið að eyði­leggja margra mán­aða vinnu sonar míns?“ öskr­aði mað­ur­inn reiður. Hann var auð­vitað að mis­skilja okkur, við vorum ekk­ert að skemma, bara skemmta. Við hlupum skelk­aðir í burtu.

Stuttu seinna ákváðum við að nóttin væri ung og nú skyldum við fara í leik. Við skiptum okkur í tvo hópa. Ég, Vékell og Jörfi vorum saman í hóp en í hinum hópnum voru þeir Fífill, Tímóteus og Her­leifur. Liðin fóru svo hvort á sinn enda Egils­staða. Leik­ur­inn, sem var nokkuð óskýr enda við frekar óskýrir þegar hér var komið sögu, fólst í því að það lið sem næði að læð­ast upp að hinu lið­inu og bregða því, myndi vinna.

Þegar leik­ur­inn stóð sem hæst tók ég eftir því að bæði lög­reglan og pabb­inn með hafna­bolta­kylf­una, voru á ferð­inni í leit að okkur. Ég hringdi í Herleif, sem nú starfar sjálfur sem lög­reglu­maður, og hvísl­aði að honum í sím­ann að lög­reglan væri á eftir okkur. Í fyrstu trúði hann mér ekki, en sá svo fljótt að ég var ekki að ljúga þessu enda vel upp alinn maður. Náðu bæði liðin að fela sig fyrir lög­regl­unni en annað má segja hvað varðar pabbann.

Þegar þeir Tímóteus og Fífill voru að ganga yfir gang­braut birt­ist bíll skyndi­lega við hlið þeirra og voru þeir sem hrein­dýr í háu ljós­unum, augun upp­glennt og munn­ur­inn galop­inn. Pabbinn skrúf­aði niður fram­rúð­una og leit út og sagði hvass: „Hvurn and­skot­ann eruð þið að gera? Af hverju eruð þið að láta eins og smá­krakkar, hálf­full­orðnir menn?“ Það eina sem Tímóteusi datt í hug að segja var eitt­hvað sem pabb­inn er enn að klóra sér í hausnum yfir, nú 20 árum síðar. Hann skroll­aði ekki venju­lega, en þarna ákvað hann að prófa það í fyrsta skipti. „Menn? Við erum ekki menn, við erum dvergar!“ Og svo hlupu þeir í burtu og skildu pabbann eftir orð­lausan.

Um klukkan 6 um morg­un­inn hitt­umst við allir heima hjá mér og fórum yfir atburði næt­ur­innar, búnir á því og með harð­sperrur af hlátri.

Daginn eftir mættu þeir Her­leifur og Vékell til vinnu í 10/11. Versl­un­ar­stjór­inn, Sæsól, var ekki ánægður enda var bæði búið að stela fána versl­un­ar­innar og brjóta kúl­una á fána­stöng­inni. Versl­un­ar­stjór­inn, sem er mjög fyndin kona, kíkti á mynd­bands­upp­tökur frá nótt­inni og sá þar ungan og bráð­mynd­ar­legan mann með kleinu­hringja­skegg í slag­togi með öðrum ungum manni og taldi sig vita upp á hár hver þetta væri. Þetta væri Fáskrúðs­firð­ing­ur­inn Elent­ínus en hann bar jafn fal­legt skegg og sá sem sást brjóta kúl­una. Þegar þeir Her­leifur og Vékell sáu fram á að Elent­ínus fengi skell­inn, blásak­laus, urðu þeir að segja yfir­manni sínum sann­leik­ann. Hún sprakk sem betur fer úr hlátri en ég þurfti að greiða 2.000 krónur í sekt.

Það var vel þess virði.

Þessa sögu og fleiri má hlusta á í nýjasta HEIMSKast-þætti okkar Adams. Hér er hlekkur til dæmis, en svo má einnig hlusta á hann á Spotify.

Smelltu hér til að lesa brak­andi feskt helg­ar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil