MannlífiðHrátt og nútímalegt Androgyne-sófaborðið er nýtt úr smiðju danska fyrirtækisins Menu, hannað af norska arkitektinum og hönnuðinum Danielle Siggerud. Borðið var upphaflega gert fyrir Menu Space-kaffihúsið en fór fljótlega á almennan markað. Borðið er með marmaraplötu og stálfótum og einstaklega fagurt á að líta. Það stendur sem skúlptúr og hentar í hinum ýmsu rýmum og varpar fallegum skuggamyndum. Nútímalegt, hrátt og fágað.
MannlífiðRabarbari – búbótin mikla í garðinum Rabarbari, eða tröllasúra, er eitt af því harðgera grænmeti sem er mjög auðvelt að rækta hér á landi. Þessi frábæra jurt vex næstum við hvaða aðstæður sem er. Það er hægt að gæða sér á nýsprottnum rabarbara strax í byrjun júní og hann er einstaklega ljúffengur einmitt þá. Það er ýmislegt hægt að gera við rabarbara annað en að sulta...
MannlífiðSérstök hátíðarútgáfa Hans J. Wegner hefði orðið 105 ára á þessu ári og hefur danski húsgagnaframleiðandann Carl Hansen & Son sett á markað sérstaka afmælisútgáfu af Wishbonestólnum til þess að heiðra minningu hans. Stóllinn var eitt þekktasta húsgagn Wegners, en hann var upphaflega hannaður árið 1949 fyrir Carl Hansen & Son. Þessi útgáfa hefur aldrei sést áður, grindin er gerð úr valhnetuvið...
MannlífiðGeggjaður kjúklingaborgari – dýrari týpan Hamborgarar eru vinsælir á grillið enda fljótlegur og þægilegur matur. Algengast er að þeir séu gerðir úr nautahakki og ef hráefnið er gott þarf lítið annað að gera en að krydda með pipar og salti og málið er dautt. Það er hinsvegar gaman að breyta til og gera eitthvað nýtt og spennandi og hér höfum við útbúið frábæra kjúklingaborgara með skemmtilegu indversku ívafi.
MannlífiðKombó sem getur ekki klikkað Þessi kaka er frábær þegar henda skal í eitthvað gómsætt með stuttum fyrirvara. Marens sem slíkur stendur alltaf fyrir sínu en þegar Snickers-krem og rjómi bætist við erum við með kombó sem getur ekki klikkað.
MannlífiðHeilgrilluð klausturbleikja með aioli-sítrónudillsósu Við eigum að vera dugleg að nota fiskinn á grillið, bæði er hann hollur og einstaklega ljúffengur grillaður. Það er alveg eins hægt að grípa með sér fisk á leiðinni heim eins og kjöt. Kryddlegið kjöt í pakkingum, tilbúið til eldunar á grilli, er oftar fyrir augunum á okkur í búðunum á vorin en fiskurinn. Það er sáraeinfalt að grilla hann.
MannlífiðStyðjum íslenska smávöruverslun Hér eru nokkrar íslenskar vefverslanir sem bjóða upp á fjölbreytt úrval af fallegum og vönduðum heimilis- og lífsstílsvörum sem vert er að skoða. En þess má þó geta að margar húsgagna- og gjafavöruverslanir eru einnig með vefverslun.
Mannlífið„Bæjarfélag sem margir bera taugar til“ Hveragerði býr yfir einstaklega fallegu umhverfi þar sem jarðhitinn og hverastrókarnir eru einkennandi. Þar eru líka blómlegir veitingastaðir á heimsklassa sem Gestgjafinn heimsótti nýlega og í nýjasta tölublaðinu eru viðtöl við atorkumikla einstaklinga sem sáu sér tækifæri í þessum blómlega bæ.
MannlífiðMisabel fær eigin línu Þjónustustúlka Múmínmömmu, Misabel, fékk sína eigin vörulínu hjá Arabia á þessu ári.
MannlífiðLegubekkur eftir Børge Mogensen aftur í framleiðslu Hvert húsgagn sem framleitt er af Carl Hansen & Søn á sér sérstaka sögu og er legubekkurinn BM0865 eftir Børge Mogensen þar engin undantekning. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1958 en nú hefur framleiðslan hafist aftur.
MannlífiðGamli góði rabarbaragrauturinn Réttur sem stendur alltaf fyrir sínu. Hráefni, fyrir um 4: u.þ.b. 1 kg rabarbari, skorinn í bita 4-5 dl vatn 2-3 msk. rifsberjahlaup (má sleppa) 120 g sykur 30-40 g kartöflumjöl Setjið rabarbara, rifsberjahlaup og vatn saman í pott og sjóðið í 10 mín. eða þar til rabarbarinn hefur allur losnað vel í sundur. Sigtið blönduna eða maukið með töfrasprota....
MannlífiðNáttúruleg og falleg handsápa Aukinn handþvottur er alls staðar. Við fundum fallega sápu sem er laus við öll aukaefni. Hún mýkir húðina og ilmar dásamlega. Handsápan frá Spa of Iceland hefur mýkjandi eiginleika og varðveitir náttúrulegt rakajafnvægi húðarinnar. Hún inniheldur hafþyrnisþykkni og styrkjandi íslenskt sjávarsalt sem er ríkt af steinefnum, með mildum ilmi af íslenskum mosa og tímíani. Spa of Iceland-vörurnar eru hreinar og...