MenningFyrsta lagið á íslensku í langan tíma Royal Gíslason var að senda frá sér lagið Kóróna Cola, fyrsta íslenska lagið sem hann sendir frá sér í þónokkur ár.
MenningKef Lavík með útgáfutónleika Áfengispensluðu sígarettusætu heimsendapoppararnir í kef LAVÍK hyggjast halda upp á útgáfu fyrstu fullrar lengdar breiðskífu sinnar, Blautt heitt langt vont sumar, á KEX Hostel 14. september næstkomandi með stórtónleikum.
MenningSin Fang í alls konar aðstæðum Sindri Már Sigfússon hefur svo sannarlega komið víða við á löngum og glæstum tónlistarferli en hann gengur yfirleitt undir nafninu Sin Fang.
MenningRolling Stones gekk á eftir Kaleo Óhætt er að segja að Kaleo hafi í nógu að snúast um þessar mundir, því sveitin var á tónleikaferðalagi með Rolling Stones og vinnur nú að nýrri plötu. Albumm náði tali af Jökli Júlíussyni, söngvara sveitarinnar, og spurði út í plötuna og tónleikaferðalagið.
MenningTabit Lakhdar í Fríkirkjunni Tabit Lakhdar klárar tónleikaferðalag sitt í Fríkirkjunni.
MenningBenni Hemm Hemm hefur engu gleymt Listamaðurinn Benni Hemm Hemm var að senda frá sér nýtt lag sem nefnist Miklabraut. Lagið er grípandi með fallegum og melódískum útsetningum eins og Benna einum er lagið.
MenningByggja lítið tónlistarævintýraland í Danmörku RPM Records er nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á vínylplötum.
MenningÞað á enginn að deyja á kaldri götunni Loftur Gunnarsson svaf á götunni þegar ekki var pláss í Gistiskýlinu. Hann lést 32 ára gamall úr magasári sem auðvelt hefði verið að meðhöndla. Á þeim tíma sem hann lést var ekki auðvelt fyrir utangarðsfólk að verða sér úti um fordómalausa læknisaðstoð. Loftur Gunnarsson hefði átt afmæli þann 11. september, hefði orðið 40 ára.
MenningVibes fagna fjórum árum Í ár fagnar plötusnúða-krúið Vibes fjögurra ára afmæli sínu og af því tilefni ætla Vibes-liðar að halda brjálað partí og smita íslenska næturlífið af góðum straumum og fylla það af ást.
Menning„Ást er allt sem þarf“ Fyrir skömmu sendi einn ástsælasti söngvari landsins, sjálfur Bubbi Morthens, frá sér plötuna Regnbogans stræti sem er hans þrítugasta og þriðja hljóðversplata. Óhætt er að segja að kappinn sé einstaklega afkastamikill tónlistarmaður en hann segist aldrei vera uppiskroppa með viðfangsefni, melódíur eða lagstúfa.
MenningKraftgalli í Mengi Kraftgalli, a.k.a. Arnljótur Sigurðsson, ætlar að fagna útgáfu á nýju lagi sínu Rússíbani með tónleikum í Mengi annað kvöld, laugardagskvöldið 7. september klukkan 21.