Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Rolling Stones gekk á eftir Kaleo

Óhætt er að segja að Kaleo hafi í nógu að snú­ast um þessar mundir, því sveitin var á tón­leika­ferða­lagi með Rolling Stones og vinnur nú að nýrri plötu. Albumm náði tali af Jökli Júl­í­us­syni, söngv­ara sveit­ar­innar, og spurði út í plöt­una og tón­leika­ferða­lagið.

Rolling Stones gekk á eftir Kaleo

„Mick var búinn að ganga á eftir því að fá okkur til að opna tón­leik­ana en ég hafði neitað nokkrum sinnum, því það er heil­mik­ill pakki og umstang í kringum hverja tón­leika og ég var að reyna að vinna að nýju plöt­unni, hafði ein­angrað mig í stúd­íói að mestu leyti síð­asta árið til að gera það. En þegar hann hafði sam­band í fjórða skiptið gaf ég eftir og sam­þykkti að spila á tvennum tón­leikum,“ svarar Jökull, þegar hann er spurður að því hvernig það hafi komið til að Kaleo kom fram á tón­leikum stór­hljóm­sveit­ar­innar Rolling Stones. „Við spil­uðum með þeim í Evrópu fyrir tæpum tveimur árum og það var gaman að fá líka tæki­færi til að gera það í Banda­ríkj­unum.“

„En þegar hann hafði sam­band í fjórða skiptið gaf ég eftir og sam­þykkti að spila á tvennum tón­leikum.“
Hljóm­sveitin Kaleo er nýkomin heim úr tón­leika­ferða­lagi með Rolling Stones. „Þeir eru bara í mjög flottu formi miðað við aldur og fyrri störf,“ segir Jökull, hér með Keith Richards.

Spurður hvort eitt­hvað hafi komið honum á óvart á ferða­lag­inu með Stones eða bak­sviðs svarar hann því til að hann geti tak­markað tjáð sig um það. „Þeir eru bara í mjög flottu formi miðað við aldur og fyrri störf og það kæmi mér ekki á óvart ef þeir héldu eitt­hvað áfram að túra. Þeir eru með eitt besta teymi í heim­inum á bak­við sig og eru auð­vitað búnir að gera þetta í um það bil 50 ár og eru því öllu vanir.“

Ertu sjálfur mik­ill Stones-aðdá­andi? „Ég er nú meiri Bítla­maður,“ játar hann. „En Stones eru auð­vitað ódauð­legir og búnir að festa sig í sessi sem ein stærsta rokk­hljóm­sveit allra tíma. Það eru bara for­rétt­indi að fá að taka þátt í þessu með þeim og skemmti­legt að sjá hvað þeir hafa gaman af þessu enn í dag.“

Myndir / Jimmy Fisco

Eins og fyrr segir er Kaleo með nýja plötu í vinnslu og er hún vænt­an­leg á næsta ári en sveitin ætlar að senda frá sér fyrstu smá­skíf­una af plöt­unni snemma árs 2020.

„Ég hef tekið mér góðan tíma í gerð þess­arar plötu og unnið með alveg frá­bæru fólki í Nas­hville, Los Angeles og New York síð­asta árið. Hef reynt að finna rétt „sound“ fyrir hvert og eitt lag. Þau eru mjög frá­brugðin hvert öðru og ef ég ætti að lýsa þess­ari nýju plötu með einu orði þá myndi ég segja að hún væri dýnamísk,“ segir Jökull og bætir við að hann verði á flakki í Band­ríkj­unum næstu mán­uði til að klára hana. „Þannig að von­andi næ ég að halda jól og ára­mót á Íslandi með fjöl­skyld­unni og vin­unum.“

Jökull Júl­í­us­son, söngv­ari Kaleo. Ný plata frá sveit­inni er vænt­an­leg á næsta ári en fyrri plata sveit­ar­innar, A/B, hlaut lof gagn­rýnenda um allan heim.

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Myndir / Jimmy Fisco

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar