„Kramer“ opnar sig um krabbameinsbaráttu sína: „Er einhver leið til að framlengja lífið svolítið?“
Seinfeld stjarnan Michael Richards opnaði sig nýverið um krabbameinsbaráttu sem hann háði í leyni árið 2018. Hinn 74 ára grínisti, sem lang þekktastur er fyrir að leika hinn óborganlega Cosmo Kramer í Seinfeld þáttunum, minnist augnabliksins þegar hann fréttir að hann hefði mælst með hækkað PSA-gildi í blöðruhálsinum, í venjubundnu eftirliti. Greiningin hafi verið áfall. „Ég hugsaði, jæja, þetta er...