Gítarleikari The Allman Brothers Band er látinn: „Dickey var stærri en lífið sjálft“
Ein aðalsprauta The Allman Brothers Band, Dickey Betts er látinn, áttræður að aldri. The Allman Brothers Band var ein af vinsælustu og áhrifamestu rokkhljómsveitum Bandaríkjanna á áttunda áratug síðustu aldar. Gítarleikari og einn af söngvurum hljómsveitarinnar, Dickey Betts, var einnig höfundur nokkurra klassískra rokkslagara, þar á meðal stærsta smell hljómsveitarinnar, Ramblin´Man sem kom út árið 1973. Meðal annarra laga eftir...