Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Poetrix með nýtt lag: „Það er hægt að bjarga lífi hans Sævars, en til þess þurfum við ykkar hjálp“

Poetrix með nýtt lag: „Það er hægt að bjarga lífi hans Sævars, en til þess þurfum við ykkar hjálp“
Poetrix

Rapp­ar­inn Poetrix er að gefa út áður óút­gefið efni til styrktar góð­gerð­ar­söfn­unar til að safna fyrir lækn­is­þjón­ustu erlendis sem er honum ekki til boða á Íslandi. Á næst­unni fer hann í stórar skurð­að­gerðir til að bjarga honum en hann er langt gengin úr alvar­legum áverkum og er líf hans í húfi.

Poetrix er hlið­ar­sjálf Sævars Daníels Kol­anda­velu en í frétta­til­kynn­ingu segir að texta­gerð hans sé þannig að hann setji sig í hlut­verk sögu­manns sem fer í hin ýmsu hlut­verk í íslensku sam­fé­lagi og tjáir sig þaðan, beitt sam­fé­lags­rýni og oft má greina kald­hæð­inn tón í bland við frammúr­stefnu­lega ljóð­list.

Lagið kemur af plötu sem full­kláruð var með lands­liði hljóð­færa­leik­ara fyrir um ára­tug síðan, átta árum eftir frumraun lista­manns­ins, en vegna per­sónu­legra aðstæðna, og lík­lega „óhóf­legri sjálfs­gagn­rýni og full­komn­un­ar­áráttu hans,“ eins og það er orðað í frétta­til­kynn­ing­unni, kom hún aldrei út en aðeins átti eftir að taka upp raddir.

Sævar hefur verið hvattur af með­spil­ara sínum, Einar Scheving, til að byrja gefa lögin út, og var um helg­ina tekin upp EP plata í stúd­íó­inu hjá Einari, með það að mark­miði að þó Sævar sé slas­aður, að gera alís­lenskan rímna­seið, og reyna að fanga augna­blikið úr þessum áður óút­gefnu lögum, og ná þeim á teip áður en hann fer í erf­iða lækn­is­með­ferð, fjár­öflun og helj­ar­mikið ferða­lag sem framundan er.

Einar fékk efnið nýlega í hend­urnar og stakk upp á því að gefa það út til að kynna fjár­mögn­un­ina á Karolina Fund, sem sett hefur verið í gang fyrir lækn­is­með­ferð­inni, og hvort Sævar treysti sér til að klára þær raddupp­tökur sem eftir voru.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ing­unni er „hægt að bjarga lífi hans Sævars, en til þess þurfum við ykkar hjálp, ann­ars tekst okkur það ekki.“ Fyrrum yfir­maður heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og heim­il­is­læknir er, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni, að panta nauð­syn­legar mynda­tökur sem Sævar fer í á morgun, og verða þær myndir sendar út, og Sævar fer svo í kjöl­farið á eftir og von­andi undir lækn­is­hendur taf­ar­laust, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni en er staða hans er veru­lega tæp lík­am­lega, þó hann beri sig vel, og framundan þrjár aðgerðir yfir þriggja mán­aða tíma, og ljóst að staða hans þolir ekki mikið meiri bið.

Þetta lag Fyrir alla er það eina sem var búið að taka upp rödd í fyrir löngu og lista­maður temmi­lega sáttur með af því óút­gefna, og fær það því að flakka hér, en restin af EP plöt­unni er núna í hljóð­blöndun og verið að klára gestainn­komu. Hún verður svo send í master­ingu á mánu­dag og svo verður opin­ber útgáfu í næstu viku.

Sævar og kona hans stunda einnig list­sköpun undir lista­manna­nafn­inu Thugmonk_, þar sem hiphoptón­list, aust­ur­lenskri heim­speki, íslenskum sagna­arfi og fram­úr­stefnu­legri „sæka­dedellik“ pæl­ingum er blandað og sett fram í litlum „atóm­ljóðum“ sem í mynd, hljóði, köll­unum í vís­indin og forna visku, í bland við líf­ræna mynd­list, ljós­myndum, ljóð­list og svo aðstoð gervi­greindar, koma til skila skap­andi og hug­vekj­andi skila­boðum um styrk hug­ans og litlum fal­legum sögum.

Hér má hlusta á nýju útgáfun en platan mun heita Biluð plata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu