Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Katrín er „hversdagsrómantíker“: „Hef tekið þá afstöðu í lífinu að stökkva frekar en að hrökkva“

Katrín er „hversdagsrómantíker“: „Hef tekið þá afstöðu í lífinu að stökkva frekar en að hrökkva“
Katrín Jak­obs­dóttir. Mynd: Instagram.

Senn rennur út frestur til að safna lág­marks­fjölda með­mæl­enda, ætli maður sér að sækj­ast eftir því að verða for­seti Íslands. Á átt­unda tug manna hefur að und­an­förnu safnað með­mælum en nokkrir hafa nú þegar náð þeim áfanga og eru því gjald­gengir í fram­boð.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir þeim fram­bjóð­endur sem náð hafa lág­marks­fjölda með­mæla, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör fram­bjóð­end­anna vera birt á næstu dögum.

Katrín Jak­obs­dóttir er næsti for­seta­fram­bjóð­and­inn sem svarar spurn­inga­lista Mannlífs. Þar kennir ýmissa grasa en hún hefur skýra sýn á hlut­verki for­seta Íslands, borðar lunda­bagga með bestu lyst og er „hvers­dags­róm­an­tíker“.

Hér má sjá svör Katrínar:

Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Það er erfitt að velja einn stað, hver og einn staður hefur sín sér­kenni. Ég gæti nefnt Þing­velli, speg­il­sléttan Arn­ar­fjörð, birt­una sem umfaðmar mann við Búlandstind eða Garð­skaga­fjör­una og þannig mætti lengi telja.

Á forseti að sitja lengur en tvö kjörtímabil?

Per­sónu­lega myndi ég telja 8-12 ár hæfi­legan tíma.

Hvaða breytingar viltu sjá á stjórnskipan Íslands?

Ég lagði á sínum tíma fram frum­varp um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá sem byggði á mjög vand­aðri vinnu og ég tel að feli í sér jákvæðar umbætur á stjórn­ar­skránni. Þar voru lagðar til skýr­ari línur um for­seta­emb­ættið en einnig ný ákvæði, meðal ann­ars um auð­lindir og umhverfi.

Hver er þinn uppáhalds forseti?

Það er ógjörn­ingur að gera upp á milli þeirra sem ég hef fylgst með sinna emb­ætti for­seta Íslands. Öll hafa þau sinnt því ein­stak­lega vel þannig að sómi hefur verið að og þau eru sönn fyr­ir­mynd fyrir næsta for­seta.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Fjöldi kjós­enda á kjör­skrá àrið 1944 var tæp­lega 75.000 og svar­aði því lág­marks­fjöldi með­mæl­enda (1.500) til u.þ.b. 2% kjós­enda, en hámarks­fjöldi (3.000) til 4%. Ég hef lagt til að þessi fjöldi verði upp­færður í stjórn­ar­skrá í takti við fjölgun íbúa og verði hlut­falls­legur eða minnst 2,5% kosn­inga­bærra manna.

Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu?

For­eldrar mínir eru örugg­lega mín helsta fyr­ir­mynd en í líf­inu hef ég kynnst ótrú­lega mörgu fólki sem hefur haft áhrif á mig með lífs­við­horfi sínu og gild­is­mati. Eins er margt lista­fólk og íþrótta­fólk sem hefur veitt mér mik­inn inn­blástur.

Hver er uppáhaldstónlist þín?

Það sem Gunnar og drengirnir eru að hlusta á hverju sinni!

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Nei.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neitunarvaldinu á sínum tíma?

Já, ég tel að Ólafur Ragnar hafi gert rétt með því að beita mál­skots­rétt­inum og þar með stað­fest að rétt­ur­inn er raun­veru­legur og virkur.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Það eru fæð­ingar son­anna þriggja, hver og ein ógleym­an­leg lífs­reynsla og hver og einn ein­stakur.

Hver eru mestu vonbrigðin?

Von­brigðin fel­ast yfir­leitt í því sem maður gerir ekki frekar en því sem maður gerir. Þannig að ég hef tekið þá afstöðu í líf­inu að stökkva frekar en að hrökkva.

Fallegasta ljóðið?

Langar að nefna ljóð eftir Gerði Kristnýju og Gyrði Elíasson, auð­vitað Jóhann Sig­ur­jóns­son og þulur Theódóru- en lík­lega gleymi ég því aldrei þegar Þor­steinn frá Hamri las ljóð sitt um kvöldið við útför móður minnar árið 2011.

Besta skáldsagan?

Það er auð­vitað ekk­ert hægt að nefna eina skáld­sögu, þær eru margar í svo miklu upp­á­haldi. En Salka Valka hafði mikil áhrif á mig þegar ég las hana fyrst í mennta­skóla.

Hvað er það besta við Ísland?

Fólkið og nátt­úran.

Kanntu á þvottavél?

Já nokkuð góð á þvotta­vélar!

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Óskin um frið­sæla og far­sæla fram­tíð.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Að beita áhrifum sínum í opin­berri umræðu til að standa vörð um þau grunn­gildi sem íslenskt sam­fé­lag hefur byggt á allt frá lýð­veld­is­stofnun – lýð­ræði, mann­rétt­indi og rétt­ar­ríkið. Að vernda und­ir­stöður sam­fé­lags­ins – menntun og menn­ingu – en tryggja um leið að fjöl­breytnin fái að blómstra. Og tala gegn skautun – tala til þjóð­ar­innar allrar.

Síðan er það klárt að for­seti hefur það hlut­verk að tryggja að það sé starf­hæf rík­is­stjórn. Hann getur skotið málum til þjóð­ar­innar séu þau stór og lík­leg til að hafa langvar­andi eða grund­valla­r­á­hrif á sam­fé­lagið eða það hefur mynd­ast gjá milli þings og þjóðar. Forseti þarf að geta hafið sig yfir dag­leg við­fangs­efni stjórn­mál­anna og tekið ákvarð­anir með óhlut­drægum hætti. Og for­seti þarf að gæta hags­muna Íslands á alþjóða­vett­vangi – ekki síst á við­sjár­verðum tímum og vera góður full­trúi þjóð­ar­innar og menn­ing­ar­innar hvert á land sem hann kemur.

Borðarðu þorramat?

Já ég borða þorra­mat og lunda­baggi er mitt upp­á­hald.

Ertu rómantísk/ur?

Kannski má segja að ég sé hvers­dags­róm­an­tíker.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til embættis forseta Íslands?

Ég trúi því að ég hafi bæði reynslu og þekk­ingu til að bera sem nýt­ist í þessu emb­ætti. Ég hef fengið að kynn­ast landi og þjóð, farið um allt land og verið full­trúi þess á alþjóð­legum vett­vangi. Ég þekki ágæt­lega gang­verk sam­fé­lags­ins og menn­ingu. Og fyrst og fremst vil ég vinna þjóð­inni gagn því að mér þykir vænt um fólkið í land­inu. Kannski er það mik­il­væg­ast af öllu fyrir for­seta lýð­veld­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu