Guðný María með hátíðarhljómleika á Bryggjan Brugghús: „Ástfangin af lífinu, án krabbameins!“
Gleðisprengjan og tónlistarkonan Guðný María Arnþórsdóttir heldur hátíðarhljómleika þann 29. desember á Bryggjan Brugghús. Guðný María, sem glatt hefur landann undanfarin ár með frumsaminni tónlist sinni og jákvæðni, heldur sína fyrstu hljómleika eftir Covid-faraldurinn og glímu við krabbamein. Verða þeir haldnir þann 29. desember á Bryggjan Brugghús en þeir byrja klukkan 22:00. Aðspurð segist Guðný María ætla að frumflytja nýtt...