Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Listasjómaður gefur út barnabók: „Okkur langar að gera teiknimyndir“

Listasjómaður gefur út barnabók: „Okkur langar að gera teiknimyndir“
Davíð Örn Krist­jáns­son með kær­ustu sinni og með­höf­undi Vendula Frydrychová

Davíð Örn Krist­jáns­son er ungur og efni­legur rit­höf­undur en hann var að gefa út sína fyrstu bók. Hún ber nafnið Anja og Nóra. Bókina skrif­aði hann með Vendula Frydrychová en hún er kærasta hans. Davíð fædd­ist á Bol­ung­ar­vík en flutt ungur í Árbæinn. Þegar Davíð er ekki að skrifa starfar hann sem sjó­maður og ferð­ast um heim­inn. Mannlíf ræddi við Davíð um bók­ina, lífið og til­ver­una.

„Bókin er um tvær tví­burastelpur á Íslandi sem vita ekki alveg hvað þær geta gefið for­eldrum sìnum í jóla­gjőf,“ sagði Davíð um hvað bókin fjallar um. „Hug­mynda­flug þeirra dregur þær um fal­lega Íslandið okkar. Þær sjá heim­inn í öðrum augum en full­orðnir gera og vilja gefa þeim fal­lega mán­ann og lit­ríku norð­ur­ljósin en það er ekki svo auð­velt. Falleg saga og mynd­irnar eru lista­verk.“.

En hver er inn­blást­ur­inn?

„Ég hef alltaf haft gaman að því að lesa fyrir börn og hef mikið gaman að lesa ákveðnar bækur sem eru vel mynd­skreyttar og flottar,“ sagði Davíð um málið. „Inn­blást­ur­inn að þess­ari bók voru dætur systur minnar, Anja og Nóra, og elska þær bók­ina mikið og er ég búinn að lesa bók­ina mörgum sinnum fyrir þær og þær vita sko alveg að þessi bók er um þær. Ég fékk þessa hug­mynd af því kærastan mín gjőr­sam­lega elskar að teikna Ísland og fal­legu lit­ina úr nátt­úr­unni þannig mér datt í hug að gera jóla­bók. Hún sagð­ist ekki getað samið sögu en elskar að teikna svo þannig byrj­aði það,“ en Davíð er ekki eini lista­mað­ur­inn í fjöl­skyld­unni.

„Yngsta systir mín var á lista­braut og stòð sig mjőg vel. Móðir mín hefur list­ina mikið í sér. Gerir fatnað, skrifar og teiknar. Málaði þegar ég var ungur, held ég. En mest af þeim öllum er það eldri bróðir minn. Hann hefur haldið fjöl­margar lista­sýn­ingar ì mörgum löndum og verið í mörgum hljóm­sveitum og gert margar plötur og lög og ker­amik og held ég að það sé haldið upp á Helgi Fest í minn­ingu hans í Leipzig, Þýska­landi.“

„Erum með enda­laust af mark­miðum. Okkur langar að gera meira Önju og Nóru og ekki bara bækur,“ sagði Davíð hvort að þau með ein­hver sett mark­mið. „Okkur langar að gera teikni­myndir líka. Ég elska að leika mér í for­ritum en minna í teikn­ing­unum en ef við sam­ein­umst getum við gert fal­lega teikni­mynd og er það næsta skref, já og fleiri bækur. Sér­stak­lega af því hversu góðar mót­tökur þessi fékk.“

„Ég verð senni­lega með annan fót­inn á sjó og hinn í Tékk­landi,“ sagði Davíð um hvað væri næst á dag­skrá hjá þeim. „Er að læra núna mikið um „online store“ og von­andi opnum við hana og er kæró mìn mik­ill lista­maður og ég sjàlfur hef gaman að skapa en ekki teikna og mála allt annað. Vonandi hrindum við því af stað ásamt von­andi fullt af öðrum skemmti­legum verk­efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu