Mann(eskju)líf Friðriks Agna – Það koma samt jól
Það rignir úti, enginn snjór, það eru plús gráður úti, jólatréð er ekki komið upp, það er ekki búið að ryksuga, það er ekki búið að kveikja á friðarkerti úti á svölum. Svona horfði einn Þorláksmessudagurinn við mér sem barni í Vesturbænum. Ég jólabarnið sjálft sem fyllir árshring hvern aðfangadag var ekki ýkja sátt við yfirvofandi jól. Ég man ég...