Ofstjórn og óreiða í Grindavík: Gos eða ekki gos, þarna er efinn
Ástandið í Grindavík einkennist af ofstjórn og óstjórn í bland við ótta við hið ókomna. Alið hefur verið á ofsahræðslu íbúa. Frá því á aðfaranótt föstudagsins hefur bærinn verið tómur og íbúarnir á vergangi. Ástæðan var vissa vísindamanna um að eldgos væri í vændum. Mínútuspursmál, sögðu sumir. Aðrir töluðu um klukkustundir eða daga. Úlfur, úlfur. Eftir harða jarðskjálfta á föstudaginn...