Mig langar … Mig vantar … En þarf ég?
Ég gekk á vini og samstarfsfólk og spurði hvað það langaði í. Svörin stóðu ekki á sér: Stærra húsnæði, rafmagnsbíl, nýtt gólfefni, sjónvarp, fallegan lampa, tölvu og nýjan síma. Ég svaraði sjálf spurningunni og sagði þeim að mig langaði í bílskúrhurðaropnara. „Lára, þú ert með plebbalegasta svarið,“ hrópaði einn kolleganna og hló. Sannarlega satt; til að langa í bílskúrhurðaropnara þarf...