Hempunnar menn og húmor Guðs og vegir
„Mín skoðun er sú að guð hafi húmor,“ var haft eftir leikaranum góðkunna, Karli Ágústi Úlfssyni, árið 1997. Þá höfðu Spaugstofumenn lent í kröppum dansi við biskup Íslands og fleiri vegna páskaþáttar Spaugstofunnar á RÚV. Ásteitingarsteinninn var grein hegningarlaga, númer 125, þar sem segir: „Hver, sem opinberlega dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags, sem er hér...