Börn haga sér betur þegar þeim fer að líða betur
Höfundur / Íris Eik Ólafsdóttir, fjölskyldufræðingur, réttarfélagsráðgjafi og sáttamiðlari hjá Samskiptastöðinni. Á þessum óvissutímum eru fjölskyldur mikið saman og fer rútínuleysi misvel í okkur, þráðurinn getur orðið styttri og krefjandi hegðun meira áberandi. Ef börn eru að missa stjórn á skapi sínu er fyrsta skrefið að skoða rútínu barnsins og spila þar stór hlutverk nægur svefn, matur og skjátími. En...